Morgunblaðið - 31.12.2021, Page 52

Morgunblaðið - 31.12.2021, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 Morðið á George Floyd átti sér stað rétt eftir að ég hafði varið nokkrum mánuðum í að mynda á og í kringum staði þar sem áður voru plantekrur í Louisiana. Einmitt þá neyddist ég til að hætta að mynda og fara í sóttkví vegna kórónuveirunnar. Fyrir mér kallaðist dauði Floyds fyrir hendi hvíts lögregluþjóns á við söguna, sem er alls staðar í landslaginu þar sem ég hafði dvalið þessa mánuði, saga tilefn- islauss ofbeldis og vanvirðingar á lífi svartra var dregin aftur fram á sjónarsviðið. En að þessu sinni brást heimurinn við og var ofboðið. Það gaf til kynna að vanvirðing gagnvart lífi svartra og hinar ýmsu endurteknu birtingar- myndir hennar í samtímanum yrðu hvorki liðnar né virtar að vettugi. Þegar ég sneri aft- ur til Louisiana fyrir stuttu styrktist ég í þeirri trú að við bjóðum hættunni heim ef við gleym- um sögunni og að kalla hana til vitnis – líkt og ég geri í verkum mínum – fær okkur til að halda vöku okkar og geta brugðist við þessum hræðilegu þáttum úr fortíð, sem getur enn komið okkur í koll ef ekki er hugað að henni. 2019, árið fyrir faraldurinn, hafði ég varið þó nokkrum tíma í Louisiana til að undir- byggja vinnu mína sem listamaður og ljós- myndari; að reyna að skapa tengsl við afrísk- ameríska sögu og hvernig innri spenna hennar og harmleikir leiða okkur ekki bara aftur í for- tíðina heldureiga skírskotun í samtíma okkar á þessari stundu. Hið langa ár sjálfssóttkvíar, sem fylgdi í kjölfarið, gaf mér tíma og pláss til að fara jafnvel enn dýpra ofan í það hvað þessi vinna mín gæti þýtt á okkar tímum. Ég hafði verið að rannsaka og síðan byrjað að taka myndir á og við plantekrurnar Ever- green, Destrehan, Laura, Oak Alley og Whit- ney á vesturbökkum Mississippi. Val mitt á þessum stöðum – sykurreyrsekrum, kofum, fenjum og trjám – endurspeglaði vilja minn til að gera vettvang upphafsins á sambandinu milli Bandaríkjanna og svartra borgara þeirra enn fyrirferðarmeiri og þar með sjá til þess að það þyrnum stráða samband væri til staðar í samræðu okkar nú um kynþáttamál. Sagan getur iðulega skýrt samtímann og það á við um sögur og frásagnir af ofbeldis- fullu og ómannúðlegu arðráni svartra í þræla- haldi, vinnuafli, sem var haldi föngnu og launa- lausu og látið vinna á plantekrum á amerískri grund. Frá þessu sambandi, þar sem líf svartra var notað, léttvægt fundið og ekki talið þess virði að njóta minnstu mannúðar, má draga beina línu til morðsins á Floyd. Mis- kunnarlaust morð lögreglumanns í Minneapol- is á honum er bergmál af hrottaskapnum og grimmdinni, sem svartir þrælar urðu fyrir af hendi umsjónarmanna sinna, meðal annars á plantekrunum, sem ég fór nú um og tók mynd- ir af. Eftir að hafa verið í burtu frá umhverfi plantekranna í Louisiana í rúmt ár átti ég þess loks kost að snúa aftur og halda vinnu minni áfram. Eftir allt sem hafði gerst frá því að ég var þar síðast fannst mér þörfin á að vera þarna jafnvel enn brýnni. Það fékk mig til að velta fyrir mér hvort alþjóðlegu viðbrögðin við morðinu á George Floyd væru til marks um að rúmu ári síðar værum við á öðrum stað sem land en áður. ©2021 Dawoud Bey Hús á Whitney-plantekrunni í Wallace í Lousiana, 2019. Með leyfi listamannsins. Fortíðin er hér Ljósmyndarinn Dawoud Bey komst að því að bergmál fortíðarinnar setur enn mark sitt á samtímann í flokki ljósmynda, sem hann tók á gömlum plantekrum í Louisiana. DAWOUD BEY er við rannsóknir hjá MacArthur-stofnuninni og lista- maður sem skoðar fortíð svartra í Bandaríkjunum í ljósi samtímans. Eitt nýjasta verkefni hans er að taka myndir á plantekrum í Louisiana, „Á þessum stað hér“, og eru þær til sýnis í Prospect.5 í New Orleans. Yfirlitssýning á verkum hans verður opnuð í Museum of Fine Arts í Houston árið 2022. Frá þessu sambandi, þar sem líf svartra var notað, léttvægt fundið og ekki talið þess virði að njóta minnstu mannúðar, má draga beina línu til morðsins á Floyd. HORFUR Í HEIMI: ÁRIÐ Í GEGNUM LINSU LISTAMANNSINS ’’

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.