Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 58

Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 Á miðöldum var dæmigert að fólk lifði alla sína ævi í sama samfélaginu. Það var ekki fyrr en með nútímanum og að lestir, bílar og flugvélar voru fundnar upp að fólk byrjaði að flakka vítt og breitt um yfirborð jarðar. Jafnvel listamað- ur eins og ég getur farið tvisvar og hálfu sinni umhverfis jörðina líkt og ég gerði árið 2019. Venjulega hef ég aðsetur í New York og fæst þar við ört fjölgandi verkefni sem snúast um einkasýningar, fyrirlestra, leikhúsuppfærslur og arkitektaverkefni. Svo kom Covid-19. Svo vildi til að ég var í Japan þegar faraldurinn hófst. Vegna þess að heimurinn var settur í lás hef ég uppgötvað að nýju þá einföldu ánægju, sem er fólgin í því að búa í sama samfélaginu – í þessu tilfelli Shirikane-hverfinu í Tókýó – í rúmlega eitt og hálft ár. Árið 1665 lék plágan lausum hala í London. Isaac Newton dró sig í hlé til Woolsthorpe við Colsterworth, fæðingarþorps síns í austurhluta Englands, í eitt og hálft ár til þess að forðast útbreiðslu smita. Þar sökkti hann sér í rann- sóknir sínar. Þar áttaði hann sig á kenningunni um þyngdarlögmálið eftir að hafa séð epli falla. Þar áttaði hann sig á því að dagsljósið brotnar í róf sjö lita eftir að hann stillti upp margstrend- ingi á annarri hæð húss síns. Þar þróaði hann líka kenningar sínar um örsmæðareikning. Með þeirri vinnu var grunnurinn lagður að nú- tíma eðlis- og stærðfræði. Heimsfaraldur getur leitt eitthvað gott af sér. Vinna mín við ljós- myndun á þakkarskuld að gjalda tilraunum Newtons á ljósbrotinu í faraldrinum þá. Ég kaus að fylgja fordæmi Newtons, nota þessa 18 mánuði í Japan sem rannsóknarleyfi og einbeita mér af krafti að vinnu minni. Í mínu tilfelli þýddi það að ýta mínu hinsta verki – verkinu sem verður arfleifð mín – nær lokum. Ég hef kallað þetta verkefni Eunora- athugunarstöðina, þverfaglega menningar- miðstöð, þar sem er að finna safn, tvö svið fyrir sviðslistir, tehús, skrín og fjölda skála. Hún stendur á 10 ekrum í hlíð með útsýni yfir Sagami-flóa í Kataura-umdæmi í Odawara og arkitektúrinn sækir í stíl sem til forna var not- aður til athugunar á himinhvelfingunni. Fyrir sjö þúsund árum byrjuðu menn að reisa mann- virki til að staðfesta að sólin rísi í austri og setj- ist í vestri og að eftir því sem tíminn líði taki ein árstíð við af annarri. Ég ímynda mér að þetta hafi gefið þeim tilfinningu fyrir því að þeir ættu sér stað og tilgang í alheiminum. Fornstjörnu- fræðileg mannvirki af þessum toga eru nú rústir einar í Egyptalandi, Perú og á Írlandi svo eitthvað sé nefnt. Menningarheimar rísa og falla. Í því skyni að undirbúa mögulegt fall okkar nútímalegu siðmenningar er ég nú að gera garð sem mun breytast í steinarústir. Ef til vill mun eitthvert framtíðarsamfélag, með litla þekkingu á okkar tímum, finna þennan stað og velta fyrir sér merkingu hans. Hér í Eunoru, þar sem ég strita dag hvern, hef ég skipað mig verkstjóra steinsmiða. Til leiðsagnar hef ég leitað í „Sakuteiki“ eða „Ábendingar um hönnun garða“ sem Tachib- ana Toshitsuna skrifaði á 11. öld. Í þessari bók segir Tachibana að mikilvægast sé að „hlusta á raddir steinanna“. Hver steinn hefur sína ein- stöku eiginleika. Með því að hlusta á steininn og átta mig á eiginleikum hans get ég áttað mig á tilgangi hvers og eins og séð hvernig á að raða þeim saman til að þeir nái samhljómi. Á meðan ég hef ekki getað farið frá Japan hef ég unnið að næsta stórverkefni mínu í fjar- vinnu. Ég hef tekið að mér það ögrandi verk- efni að gefa styttugarði Hirschhorn-safnsins nýtt líf. Gordon Bunshaft, arkitekt Hirshhorn og hönnuður upprunalega garðsins, var undir miklum áhrifum frá steingörðum í Japan á miðöldum. Ég sótti innblástur í draum Bun- shafts um steingarð í stíl módernista og ákvað að japönsk steinhleðsla gæti verið táknræn tenging á milli hins forna og nýja og veitt full- kominn bakgrunn fyrir módernískar styttur safnsins. Rétt áður en kórónuveirufaraldurinn braust út heimsótti ég steinnámur á austurströnd Bandaríkjanna. Nú þegar ég vinn að því að reisa Eunora-athugunarstöðina hugsa ég um höggmyndagarðinn í Hirschhorn á meðan ég hlusta á raddir steinanna. Steinarnir sem tengja þessa tvo staði sinn hvorum megin á jörðinni voru til löngu áður en mannkyn kom til sögunnar og munu standast tímans tönn löngu eftir að siðmenning okkar fellur. ©2021 The New York Times Company ogHiroshi Sugimoto Skúlptúr úr steinum við Enoura-athugunarstöðina, sem Hiroshi Sugimoto vinnur við að skipu- leggja og reisa. Sugimoto vill að hann hafi sögu að segja þótt hann verði rústir einar. Shina Peng fyrir The New York Times 100 metra langt sýningarsvæði í Enoura-athugunarstöðinni með útsýni yfir bláan Sagami- flóann. Stöðin er á austurströnd Japans, um klukkustundar akstur frá Tókýó. Shina Peng for The New York Times Hiroshi Sugimoto við hlaðinn steinvegg við Eunora-athugunarstöðina, sem hann hefur unnið að undanfarið, strandaglópur í Japan í kórónuveirufaraldrinum. Shina Peng for The New York Times Mannvirki til eilífðarnóns Að skipuleggja vettvang með rústum þannig að hann tali til menningarheima framtíðar. HIROSHI SUGIMOTO er listamaður, arkitekt og rithöfundur. Menningarheimar rísa og falla. Í því skyni að undirbúa mögulegt fall okkar nútímalegu siðmenningar er ég nú að gera garð sem mun breytast í steinarústir. Ef til vill mun eitthvert framtíð- arsamfélag, með litla þekkingu á okkar tímum, finna þennan stað og velta fyrir sér merkingu hans. TÍMAMÓT: FYRIR STRANDAGLÓPA URÐU LANGIR FARALDURSMÁNUÐIR AÐ EINS KONAR RANNSÓKNARLEYFI ’’
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.