Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 70
70 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021
Áður en við horfum fram til ársins 2022 skul-
um við eitt augnablik velta fyrir okkur árinu
2021 þegar við áttum að ná okkur aftur á strik
eftir 2020. (Þau renna einhvers staðar saman,
er það ekki?) Að minnsta kosti einum skammti
af bóluefni við kórónuveirunni var komið til um
4,02 milljarða manna um allan heim, en hið
bráðsmitandi Delta-afbrigði varð til þess að
smittíðni snarjókst og kveikti efasemdir um
skynsemi þess að halda stórar samkomur þar
sem fólk kom saman í raunheimum. Þeir sem
halda alþjóðlega viðburði létu það ekki stöðva
sig og gerðust frumlegir.
Þegar Bretar bættu Tyrklandi á „rauða
listann“ þremur vikum fyrir úrslitaleik Meist-
aradeildarinnar í Istanbul færði stjórn Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA, leikinn til
Porto í Portúgal. Þrátt fyrir uppsveiflu í smit-
um í Írak fór Frans páfi í fyrstu páfaheimsókn
sögunnar þangað og hafði viðkomu í fyrrver-
andi vígjum Ríkis íslams í Norður-Írak þar
sem vígasveitir hafa skilið eftir sig sviðna jörð.
Í Tókýó fjölgaði smitum hratt í aðdraganda
sumarólympíuleikanna og áhorfendum var að
mestu bannað að vera viðstaddir viðburði sem
leiddi til best skipulögðu og um leið skrýtnustu
leika sögunnar.
Um leið var allt bolmagn netsins nýtt. Sam-
kvæmt könnun rannsóknarstofnunarinnar
Pew tók 81% Bandaríkjamanna þátt í netsíma-
fundum í mynd eftir að faraldurinn skall á.
43% þeirra notuðu þessar netsamkundur fyrir
brúðkaup, jarðarfarir, kirkjufundi, stefnumót
og tíma hjá lækni. Þegar Facebook datt út 4.
október — öll smáforrit fyrirtækisins, þar á
meðal Instagram, WhatsApp, Messenger og
Facebook sjálf, lágu niðri í fimm klukkustund-
ir — fór stór hluti af 3,5 milljörðum notenda
Facebook yfir á aðra félagsmiðla á borð við
Twitter. Atvikið sýndi hvað við treystum mikið
á félagsmiðla, sérstaklega í heimi kórónuveir-
unnar, og hvað vettvangur samskipta okkar
getur verið brothættur.
Þetta veldur Mark Zuckerberg þó ekki
áhyggjum. Hann er upptekinn af því að undir-
búa sig fyrir næsta ár þegar Facebook verður
steypt út í sýndarheima, stafræna eftirlíkingu
af raunveruleikanum, sem á ensku heitir „meta-
verse“ og hann segir að notendur geti „farið inn
í frekar en að horfa bara á“. Lesið áfram til að
fræðast meira um þetta og alla aðra viðburði
sem munu skekja eða hrista mjúklega okkar
raunverulegu og stafrænu heima árið 2022.
Janúar
Bandaríkin, 1. janúar: Langar einhvern í
reykt beikon? Í Kaliforníu á að bæta meðferð
ræktaðra dýra með því að banna sölu á kjöti af
gyltum, sem eru á básum undir 2,2 metrum að
flatarmáli á meðgöngu. Tillaga 12 um vistun
dýra, sem samþykkt var í Kaliforníu gæti haft
tvennar afleiðingar. Annars vegar gæti hún
orðið til þess að verulega dragi úr framboði á
beikoni í ríkinu þar sem aðeins 4% banda-
rískra svínabænda fylgja fyrirmælum nýju
laganna eins og er. Hins vegar gæti sú stað-
reynd að íbúar Kaliforníu neyta 15% alls þess
svínakjöts, sem borðað er í Bandaríkjunum,
orðið til þess að bændur á verksmiðjubýlum
landsins stækki meðgöngubásana sína.
Indland, 14. janúar: Frá dögun til sólarlags
verða flugdrekar á himni yfir Ahmedabad á al-
þjóðlegu indversku flugdrekahátíðinni Uttara-
yan. Á hátíðinni verður boðið upp á flugdreka-
slag þar sem keppendur reyna að láta
flugdreka andstæðinga sinna hrapa til jarðar
með því að klippa á spottana í þeim. Þegar það
tekst heyrist hrópað „kai po tsje!“ eða „ég hef
klippt!“ En strengirnir, sem eru notaðir í
þessu sjónarspili, eiga sér skuggalega fortíð.
Þeir eru húðaðir með málmi eða muldu gleri til
að auðvelda að skera á aðra flugdreka. Manja
kallast þeir og hafa fengið viðurnefnið „streng-
ir dauðans“ því að þeir geta farið utan í fólk og
skorið það á háls með skelfilegum afleiðingum.
Fyrir hátíðina gerir lögregla upptækar mörg
þúsund rúllur af hinum bannaða flugdreka-
streng hjá sölumönnum um alla borgina.
Febrúar
Bangladess, Bútan, Indland, Indónesía,
Kambódía, Kína, Laos, Malasía, Mjanmar,
Nepal, Rússland, Taíland og Víetnam, 1.
febrúar:
Upphaf hins kínverska árs tígursins markar
stundina Tx2, þá stund sem 13 lönd höfðu
skuldbundið sig til að tvöfalda fjölda tígrisdýra
innan marka sinna. Um er að ræða eitt metn-
aðarfyllsta verkefni, sem nokkru sinni hefur
verið ráðist í til að auka veg einnar tegundar.
Blásið var til þess árið 2010. Þá voru svo vitað
var 3.200 tígrisdýr til í heiminum. Síðan þá
hafa Indland, þar sem heimkynni 60% af stofn-
inum eru, samþykkt 14 ný verndarsvæði fyrir
tígrisdýr og Rússar þrefaldað fjölda tígrisdýra
í þjóðgarðinum Landi hlébarðans.
Kína, 4.-20. febrúar: Peking verður fyrsta
borgin í heimi til að halda bæði sumar- og vetr-
arólympíuleika. Sumarleikarnir voru haldnir
þar 2008. Þá hyggst Banki alþýðunnar í Kína
prófa nýja stafræna mynt, sem nefnd er „e-
CNY“ og á að vera rafrænt reiðufé, hjá íþrótta-
mönnum og gestum. Eina spurningin er hvað
margir muni mæta. Mörg hundruð mannrétt-
indasamtök hafa hvatt til þess að „þjóðar-
morðsleikarnir“ verði sniðgengnir og vísa þar
til ofsókna Kínverja á hendur múslimskum
úigúrum í Xinjiang.
Mars
Argentína, 31. mars: Argentína býður upp í
fjármálatangó við hina ýmsu lánardrottna sína.
Fyrstur í röðinni er Parísarklúbburinn, óform-
legur hópur 22 þjóða, sem hafa lánað Argent-
ínu. Hann á í vændum 2,4 milljarða dollara
(312,8 milljarða króna) greiðslu eftir að hafa
með naumindum afstýrt því í fyrra að Argent-
ína færi í vanskil. Næstur er Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn, sem veitti landinu hæsta lánið í
sögu sinni, 57 milljarða dollara (7,4 billjónir
króna), og eru samningar um endurgreiðslu
þess í stöðugri endurskoðun.
Apríl
Frakkland, 10. apríl: Frakkar ganga að kjör-
borðinu til að kjósa sér forseta og það væri
bráðræði að bóka að slagurinn muni aftur
standa milli dansfélaganna frá því síðast,
Emmanuels Macrons, sitjandi forseta, og Mar-
ine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar. Sósí-
alistinn Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, og
Michel Barnier, sem var helsti samningamaður
Evrópusambandsins um Brexit, hafa einnig
Kona í gervi Evu Peron biðst skuldavægðar
fyrr hönd Argentínu við höfuðstöðvar AGS.
Mandel Ngan/Agence France-Presse
VÍTT OG BREITT UM HEIMINN
Áhugamenn um flugdreka bregða á leik á fyrsta degi alþjóðlegu átta daga flugdrekahátíðar-
innar í Ahmedabad á Indlandi í janúar 2020. Þar verður haldinn hinn æsilegi flugdrekaslagur.
Amit Dave/Reuters
Tígur í dýragarði í Kolkata á Indlandi. Þar hafa
sett á fót 14 ný verndarsvæði tígra frá 2010.
Dibyangshu Sarkar/Agence France-Presse
Mótmælendur í Indónesíu skora grímuklæddir á ríki og íþróttamenn að sniðganga vetrarólympíuleikana í Peking vegna ofsókna kínverskra
stjórnvalda á hendur múslimskum Úigúrum í Xinjiang héraði í Kína. Peking er fyrsta borg heims til að halda bæði vetrar- og sumarólympíuleika.
Ajeng Dinar Ulfiana/Reuters
MASHA
GONCHAROVA
Viðburðir sem munu skekja eða
hrista heiminn mjúklega 2022