Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 74
74 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021
Frakkar kalla sendiherra
í Bandaríkjunum heim í
fyrsta sinn
Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í september að Bandaríkin
myndu deila tækni sinni til að knýja kafbáta með Áströlum. Banda-
ríkjamenn hafa haldið þessari tækni vandlega leyndri og var litið á
þetta sem hluta af viðleitni þeirra til að stemma stigu við áhrifum
Kína í Asíu og á Kyrrahafi.
Frakkar mótmæltu harkalega og kvöddu sendiherra sína í Banda-
ríkjunum heim í fyrsta skipti í sögu samskipta ríkjanna, sem nær allt
aftur til 1778. Ástralar riftu samkomulagi, sem þeir höfðu áður gert
um kaup á hefðbundnum frönskum kafbátum, rétt áður en greint
var frá samningnum um bandarísku AUKUS-bátana.
SÞ segja að sjálf-
stýrður dróni hafi
drepið fólk
Sjálfstýrður dróni gæti hafa á eigin spýtur elt uppi fólk
og drepið það í Líbíu, samkvæmt skýrslu frá Sameinuðu
þjóðunum. Dróni af gerðinni Kargu-2, framleiddur af
tyrkneskum hergagnaframleiðanda, var notaður í mars
á svæði þar sem bráðabirgðastjórnin, sem SÞ hafa við-
urkennt, og hermenn Khalifas Haftars, eiginlegs leið-
toga líbíska þjóðarhersins, tókust á. Þótt fjarstýrðir
drónar hafi um skeið verið notaðir í stríði er þetta fyrsta
skjalfesta dæmið um að gervigreind hafi verið gefinn
laus taumur til að finna og taka fólk af lífi.
Í fyrsta skipti í tveggja alda sögu Rijksmuseum í
Amsterdam hafa þrjú 17. aldar verk eftir konur verið
hengd upp til sýnis. Myndir eftir Judith Leyster,
Gesinu ter Borch og Rachel Ruysch munu verða til
sýnis til frambúðar í þeim hluta safnsins, sem ætl-
aður er fyrir ástsælustu hollensku meistaraverkin,
þar á meðal Næturvaktina eftir Rembrandt van Rijn.
Verk kvenlistamanna
til sýnis til frambúð-
ar í safni í Hollandi
Fyrsti þrívíddarprentaði skóli í heimi var opn-
aður í júlí í Malaví. Skólann reisti 14Trees,
sem er samstarfsverkefni milli bresks þróun-
arfyrirtækis og svissnesks fyrirtækis, sem
sérhæfir sig í byggingarefnum. Skipuleggj-
endurnir vonast til að með þessari ódýru og
hraðvirku tækni megi vinna bug á sárum
skorti á skólum í landinu.
Fyrsti þrívíddar-
prentaði skólinn
opnaður í Malaví
Nýtt undir sólinni
Óvæntir, alvarlegir og stundum
kjánalegir viðburðir og straum-
ar, sem gerðust eða vart var við
í fyrsta skipti 2020.
Tricia Tisak
21 HLUTUR SEM GERÐIST FYRSTA SINN ÁRIÐ 2021
Í El Salvador voru sett lög í september um að taka
upp bitcoin sem gjaldmiðil ásamt bandaríkjadal.
Margir íbúar landsins höfðu efasemdir um þessa
ráðstöfun vegna sveiflna í gengi bitcoin. Sérfræð-
ingar í efnahagsmálum lýstu yfir áhyggjum af því
að dulkóðaði gjaldmiðillinn myndi ýta enn undir
efnahagslegan óstöðugleika og peningaþvætti í El
Salvador.
Kevin Martinez (26 ára til vinstri) og Harold Valle (32
ára) reyna að senda fé í gegnum Chivo-hraðbanka í El
Salvador í september eftir að landið varð það fyrsta til
að taka upp rafmyntina bitcoin sem þjóðargjaldmiðil.
Fred Ramos/The New York Times
El Salvador fyrsta
landið til að gera
bitcoin að þjóðarmynt
Ráð tískuhönnuða í Bandaríkjunum tilkynnti í september að Daniel
Day, sem iðulega er kallaður Dapper Dan, myndi hljóta heiðurs-
viðurkenningu ársins 2021 fyrir framlag sitt til tískuhönnunar.
Dapper Dan er þekktur fyrir að hafa innleitt lúxustísku í hipphopp-
heiminn í tískuverslun sinni í Harlem á níunda áratug 20. aldar.
Hann er fyrsti svarti hönnuðurinn sem fær viðurkenninguna og
sömuleiðis sá fyrsti sem ekki hefur haldið stóra tískusýningu undir
eigin nafni eða „solo runway show“ eins og það heitir á ensku.
Dapper Dan, fyrsti svarti hönnuðurinn til að fá Geoffrey Beene-
viðurkenninguna fyrir ævistarf sitt hjá Ráði tískuhönnuða í Bandaríkj-
unum, gengur út af Mark-hótelinu á leið á Met Gala, helstu hátíð
bandarísks tískuheims, á Metropolitan-safninu í New York í maí 2019.
Benjamin Norman fyrir The New York Times
Dapper Dan fyrsti svarti
tískuhönnuðurinn til að
fá æðstu viðurkenningu
Mörgæsir stökkva á bráðnandi ísjaka undan
strönd Suðurskautslandsins í hafinu, sem
kortagerðarmenn National Geographics
ákváðu í júní að skyldi heita Suður-Íshafið.
Daniel Berehulak/The New York Times
Kortagerðarmenn National Geo-
graphic viðurkenna fimmta úthafið
Á degi heimshafanna lýsti National Geographic Society opinberlega yfir því að skilgreina
bæri strauminn umhverfis Suðurskautslandið sem Suður-Íshaf. Samtökin hafa gefið út
kort og kortabækur frá árinu 1915. Nú hafa þau dregið nýtt kort þar sem þetta úthaf er
merkt inn til viðbótar við Atlantshaf, Indlandshaf, Kyrrahaf og Norður-Íshaf. Vísinda- og
fræðimenn hafa árum saman viljað skilgreina þennan hraðskreiða straum sérstaklega.
Rafknúin lest, sem kostaði 5,6 milljarða dollara
(735 milljarða króna), var gangsett í júní á milli
höfuðborgarinnar Lhasa og borgarinnar Nyingchi.
Leiðin er um 400 km og liggur í gegnum 47 göng
og yfir 121 brú. Leiðin er að mestum hluta í um
3.000 metra hæð yfir sjávarmáli og fyrir vikið er
lestin búin sjálfvirku kerfi, sem gætir að súrefnis-
stigi inni í vögnunum.
Fyrsta ofurhrað-
lestin í Tíbet
Verið getur að ljós geti ekki sloppið út úr svartholi,
en í fyrsta sinn sáu stjörnufræðingar ljós bogna
fyrir aftan svarthol í 800 ljósára fjarlægð frá jörðu.
Greint var frá því að þetta hefði sést í grein í tímarit-
inu Nature og er það til enn frekari staðfestingar á
afstæðiskenningu Alberts Einsteins.
Stjörnufræðingar sjá
ljós handan svarthols
Pandora tilkynnti að hætt yrði að nota demanta úr námum í skart-
gripi og kynnti til sögunnar fyrstu gervisteinana úr smiðju sinni.
Skartgripalínan var kynnt undir heitinu Pandora Brilliance og hef-
ur þegar verið sett í verslanir á Bretlandi. Verður hún sett víðar á
markað 2022. Framleiðandinn sagði ástæðuna fyrir breytingunni
að skartið yrði hagstæðara í verði og viðskiptavinir gerðu siðferð-
iskröfur um uppruna og ábyrgð gagnvart umhverfinu.
Pandora kynnti í maí fyrstu skartgripalínuna með gervidemöntum.
Fyrirtækið hyggst hætta að nota demanta úr námum og setja í stað-
inn gervisteina í skartgripi sem það framleiðir.
Ints Kalnins/Reuters
Stærsti skartgripafram-
leiðandi heims kynnir
fyrstu vörurnar fram-
leiddar á tilraunastofu