Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 75
Kona frá Afríku
yfir Alþjóðavið-
skiptastofnuninni
Ngozi Okonjo-Iweala komst í sögubækurnar
í mars þegar hún varð fyrsta konan og fyrsti
Afríkubúinn til að verða framkvæmdastjóri
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Okonjo-
Iweala var líka fyrsta konan til að verða
fjármálaráðherra í heimalandi sínu, Nígeríu,
og gegndi því ráðherraembætti tvisvar.
©2021 The New York Times Company and Tricia Tisak
Ngozi Okonjo-Iweala, fyrsti Afríkubúinn og fyrsta
konan til að leiða Alþjóðaviðskiptastofnunina,
situr blaðamannafund í Genf í Sviss í október.
Denis Balibouse/Reuters
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 75
Jared Isaacman, milljarðamæringur og forstjóri Shift4Payments,
leiddi för Inspiration4 til að safna peningum fyrir barnaspítalann St.
Jude. Geimhylki SpaceX var ásamt fjögurra manna áhöfn í fjóra daga
á braut í kringum jörðu og var enginn lærður geimfari með um borð.
SpaceX sendir fyrstu áhöfn
með almennum borgurum
eingöngu út í geim
Ómönnuðum dróna var stýrt inn í miðju fellibylsins Sam í september. Sam var fjórða stigs fellibylur og
var vindhraðinn í honum rúmlega 190 km á klukkustund. Vísindamenn hjá Saildrone, sem gerir rann-
sóknir fyrir bandarísku hafrannsóknastofnunina, vonast til að með gögnunum sem söfnuðust megi
öðlast betri skilning á því hvernig kraftur fellibylja magnast upp.
Skjáskot úr fyrstu upptökunni innan úr meiriháttar fellibyl. Myndin er tekin í Sam, sem taldist fjórða stigs
fellibylur, yfir Atlantshafinu í september, og sýnir sannkallaðan ólgusjó.
Saildrone/NOAA via Reuters
Hafdróni nær fyrstu
myndunum inni í fellibyl
Tæki sem kallast MOXIE, sem stendur fyrir Mars Oxygen In-Situ Resource Utilization
Experiment, var notað til að búa til súrefni á Mars úr koltvísýringi, sem er megin-
uppistaða lofthjúpsins á rauðu plánetunni. Tækið er um borð í Marsjeppanum Þraut-
seigju, sem bandaríska geimvísindastofnunin, NASA, sendi til Mars. Þessi tækni er
enn á frumstigi, en gæti hjálpað til að gera mannaða leiðangra þangað mögulega.
Tæknimenn NASA láta til-
raunatækið MOXIE síga of-
an í geimjeppann Þraut-
seigju. Tækið var fyrst notað
í apríl til að búa til súrefni í
gufuhvolfi Mars og hafði
það ekki verið gert áður.
NASA/JPL-Caltech via Reuters
Þrautseigja býr til súrefni á Mars
Blaðamaðurinn Maria Ressa fékk friðarverðlaun Nóbels á árinu
ásamt rússneska blaðamanninum Dmitrí Múratov. Fékk hún verð-
launin fyrir fréttaflutning af umdeildum harðstjóratilþrifum Rodrigos
Dutertes, forseta Filippseyja, í stríðinu gegn eiturlyfjum. Hún er fyrsti
Filippseyingurinn til að hljóta Nóbelsverðlaun.
Múratov er ritstjóri blaðsins Novaja Gaseta, sem er þekkt fyrir
gagnrýna umfjöllun um ráðamenn í Kreml.
Fyrsti Filippseyingurinn
fær friðarverðlaun Nóbels
Vísindamönnum við Brown-háskóla á
Rhode Island tókst að tengja mannsheila að
fullu við tölvu með sendi og gæti það valdið
straumhvörfum fyrir fólk með mænuskaða.
Þátttakendur í tilrauninni áttu við lömun að
stríða. Gátu þeir hreyft þjarkalimi með því að
ímynda sér hreyfingu þeirra.
Mannsheili tengist
tölvu þráðlaust
Rigning mældist á toppi Grænlandsjökuls í
um 3.200 metra hæð í fyrsta skipti frá því
mælingar hófust þar árið 1987. Hitinn fór yfir
frostmark í ágúst og rigndi í nokkrar klukku-
stundir að sögn Snjó- og ísupplýsinga-
miðstöðvar Bandaríkjanna. Sögðu sérfræð-
ingar að þetta væri enn ein vísbendingin um
hlýnun loftslags.
Regn mælist á
hæsta tindi
Grænlandsjökuls
Rafmagnsbílar seldust betur en díselbílar í fyrsta skipti í Evrópu
samkvæmt Evrópsku rafbílaskýrslunni. Sérfræðingar segja að þetta
gæti verið sveifla, sem í bili muni ganga til baka, að hluta til vegna
hremminga í aðfangakeðjum um allan heim, en þó hafi átt sér stað
grundvallarskref í átt að bílum án útblásturs.
Sala bíla án útblásturs fer fram
úr sölu díselbíla í Evrópu
Hvunndagar: Fyrstu 5.000 dagarnir eftir listamanninn Mike Win-
kelmann, sem einnig er þekktur undir nafninu Beeple, seldist á
69,3 milljónir bandaríkjadala (8,6 milljarða króna) á uppboði hjá
uppboðshaldaranum Christie’s. Verkið er sett saman úr 5.000
stafrænum myndum og var fyrsta verkið sem ber skilgreining-
una NFT í sölu hjá einu af stóru uppboðshúsunum. NFT stendur
fyrir Non-Fungible Token og á við um fyrirbæri eða upplýsingar
sem skilgreindar hafa verið með dulkóðun og verður ekki skipt
út fyrir neitt annað. Þetta var einnig í fyrsta skipti sem Christie’s
tók við greiðslu í rafmynt.
Vignesh Sundaresan bálkakeðjufrumkvöðull sýnir stafrænu
myndina Hvunndagar: Fyrstu 5.000 dagarnir eftir Beeple, sem
hann keypti á 8,6 milljarða króna á uppboði hjá Christie’s.
Roslan Rahman/AFP
Stafrænt listaverk selt á
uppboði fyrir milljarða
María Clemente García
og Salma Luévano
skráðu sig í sögubæk-
urnar með því að ná kjöri
til þings í Mexikó og
verða þar með fyrstu yfir-
lýstu transþingmennirnir
í Mexíkó. García og
Luévano náðu kjöri til
neðri deildar þingsins og
sitja þar fyrir hönd stjórn-
arflokks Andrésar Manu-
els Lópezar Obradors.
Efst á dagskrá þeirra er
að berjast gegn fátækt
og gæta hagsmuna hin-
segin fólks í landinu.
Rodrigo Arangua/AFP
Fyrstu transþingmenn-
irnir kjörnir í Mexíkó
María Clemente García varð í júní ásamt
Sölmu Luévano fyrsti yfirlýsti trans-
þingmaðurinn til að ná kjöri til neðri
deildar mexíkanska þingsins í júní.
Richard Branson, stofnandi Virgin Galactic, hafði betur í kapp-
hlaupi milljarðamæringanna um að komast út í geim þegar
hann hóf sig til himins í hinu hljóðfráa vængjaða loftfari Space-
ShipTwo í júlí. Níu dögum síðar bættist Jeff Bezos, stofnandi
Amazon og Blue Origin, í geimklúbb milljarðamæringanna í
sinni eigin geimflaug, New Shepard.
Branson horfir til jarðar í þyngdarleysinu yfir Nýju-Mexíkó í júlí.
Virgin Galactic/Via Reuters
Richard Branson fyrsti
óbreytti borgarinn til að fara
út í geim í eigin geimskipi