Saga - 2018, Side 23
á hvernig tveir ólíkir straumar, annars vegar flutningar lægri stétt-
arinnar úr sveit í borg og hins vegar stöðugur hreyfanleiki hinnar
ráðandi stéttar geta af sér tiltekna stéttaárekstra innan Reykjavíkur.
Sér í lagi hvernig þeir birtast í viðleitni efsta stéttalagsins til að nota
erlenda tísku og hluti til að treysta stéttarstöðu sína með því að
draga mörk milli sín og fólks af lægri stéttum.
Hér er því fetað í fótspor fræðimanna á borð við Arjun Appa -
durai og John Urry, en þó sérstaklega sagnfræðinganna Emily S.
Rosenberg og Dirk Hoerder. Síðustu tvo áratugi hafa þau talað fyrir
því að fræðimenn á sviði fólksflutninga hverfi frá þjóðríkinu sem
grundvallarviðmiði rannsókna sinna en leggi meiri áherslu á hreyf-
anleika (e. mobility/ies), flæði (e. flows) og strauma (e. currents) fólks,
hugmynda og tækni yfir landfræðileg og pólitísk mæri.3 Ber þar sér-
staklega að nefna tvenns konar nálganir sem eru tiltölulega nýjar af
nálinni. Annars vegar þá sem Dirk Hoerder nefnir Trans cultural
Societal Studies sem gengur út á að skoða hvernig einstaklingum og
hópum auðnaðist að búa samtímis í tveimur eða fleiri menningar-
heimum (e. cultures) og skapa sér um leið rými þvert á landamæri
þjóðríkja.4 Hins vegar nálgun þýskra og svissneskra fræðimanna
sem nefnist einfaldlega þvermenningarleg saga (e. transcultural
history), sem hefur það að markmiði að gera sagnfræðingum kleift
að gefa hnattræna mynd af flæði hugmynda, varnings og fólks en
skoða um leið hvernig það fléttast saman við hið staðbundna og tek-
ur við það á sig nýja mynd.5 Hér er því lögð áhersla á, í anda Urry,
að klæða af sér sveitamennskuna 21
3 Arjun Appadurai, Modernity at Large. Cultural Dimensions of Globalization. Public
Worlds 1. Ritstj. Dilip Gaonkar og Benjamin Lee (Minneapolis og London:
University of Minnesota Press 1996), bls. 48–65; Emily S. Rosenberg, „Trans -
national Currents in a Shrinking World“, A World Connecting 1870-1945. Ritstj.
Emily S. Rosenberg. A History of the World 5. Ritstj. Akira Iriye og Jürgen
Osterhammel (Cambridge, Mass.: Belknap Press of Harvard University Press
2012), bls. 813–996, einkum bls. 817–821; John Urry, Mobilities (Cambridge:
Polity 2007), bls. 3–16; Dirk Hoerder, „Historians and Their Data: The Complex
Shift from Nation-State Approaches to the Study of People’s Transcultural
Lives“, Journal of American Ethnic History 25:4 (2006), bls. 85–96, einkum bls. 92;
Dirk Hoerder, „Migrations and Belongings“, A World Connecting 1870–1945.
Ritstj. Emily S. Rosenberg. A History of the World 5. Ritstj. Akira Iriye og Jürgen
Osterhammel (Cambridge, Mass.: Belknap Press of Harvard University Press
2012), bls. 433–589, einkum bls. 469–473.
4 Hoerder, „Historians and Their Data“, bls. 91.
5 Madeleine Herren, Alex Michaels og Rudolf G. Wagner, „Introduction: What is
NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:45 Page 21