Saga - 2018, Page 80
og einlægni, að engum getur komið til hugar nokkur tvöfeldni eða
hlutdrægni.“54
Hér verður samt sem áður að hafa í huga markmið Páls með sinni
sagnaritun sem var að finna sagnaritara sem hægt væri að treysta og
fylgja sem leiðarvísi um sextándu öldina, segja söguna eins og hún
raunverulega var. Þegar þessu Ranke-íska markmiði er sleppt blasir
hins vegar við að Jón Egilsson gat verið og þurfti iðulega að vera
bæði tvöfaldur og hlutdrægur. Hann er tvöfaldur gagnvart siða -
skipt unum, sá þau bæði sem fram- og afturför. Óhlutdrægur var
hann ekki, þvert á móti er augljóst hvaða biskupar voru hans menn
og hverjir voru það ekki. Þess vegna þegir Jón yfir verkum Gissurar
Einarssonar og Marteins Einarssonar en eignar Gísla Jónssyni flestar
þær framfarir sem hann taldi að hefðu fylgt siðbótarhreyfingunni.
Eins og áður hefur verið getið höfðu sagnaritarar sem fetuðu í spor
Jóns ýmislegt að athuga við sýn hans á verk einstakra manna. Sú
hugmynd að fyrstu áratugir siðaskiptanna hefðu verið hnignunar-
tími festi sig hins vegar rækilega í sessi.
Hið veraldlega vald
Í Biskupaannálunum er töluvert sagt frá deilum biskupa við verald-
lega valdsmenn, en þó sjaldan reynt að grafast fyrir um orsakir þeirra.
Jón Egilsson gerir oftast ráð fyrir að ágreiningurinn hafi verið per-
sónulegur, fremur en að hann hafi snúist um stöðu kirkjunnar í sam-
félaginu.
Dæmi um slíkt viðhorf er til dæmis hvernig sagt er frá deilum
Stefáns Jónssonar biskups við Torfa Jónsson í klofa á Landi, en að
sögn Jóns Egilssonar var undirrót þeirra „að Torfi tók að sér alla
sakamenn svo biskup kom engum refsingum yfir þá, og gengu svo
ókvittir og óleystir því biskupar áttu þá með öllum kvennamál-
um“.55 Hins vegar segir Jón einnig að deilurnar hafi farið minnk -
andi eftir að biskup læknaði Torfa á Alþingi, þar sem hann hafði
verið andsetinn af svörtum flóka í myndum lítil fugls, „svo að þar
eptir urðu þeir biskup og hann útvortis vinir, en aldri þelalaust“.56
Jón segir frá því að Björn Guðnason hafi verið „bannfærður af bisk -
sverrir jakobsson78
54 Sjá Páll Eggert Ólason, Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi IV, bls. 50–
51.
55 „Biskupa-annálar Jóns Egilssonar“, bls. 52.
56 „Biskupa-annálar Jóns Egilssonar“, bls. 53.
NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:45 Page 78