Saga - 2018, Blaðsíða 119
á svæðinu úti fyrir Snæfellsnesi og suður um allt austur til Horna -
fjarðar, fór að hrygna fyrir Norðurlandi. Gagnstæð breyting hefur
að líkindum orðið vegna kólnunar á þrettándu eða fjórtándu öld og
hefur hún átt sinn þátt í að gera Suðvesturland að helsta fisk-
veiðisvæði landsins. Þar með er ekki sagt að það hafi verið hrygn-
ingarþorskur sem Norðlendingar höfðu veitt að sumarlagi. Þó aðal-
hrygningarstöðvar þorsksins hafi verið fyrir sunnanverðu landinu
um aldir þá þýðir það ekki að engan þorsk hafi verið að hafa fyrir
Norðurlandi. Miðað við heimildir frá átjándu öld hafa þessar fisk-
veiðar einfaldlega verið mjög smáar í sniðum. Þegar við bætist að
fram á tólftu og þrettándu öld voru norðlenskir fiskimenn ekki ein-
göngu að veiða þorsk heldur í talsverðum mæli aðrar tegundir, sem
sjávarhiti hefur ekki sams konar áhrif á, sýnist ólíklegt að það hafi
skipt miklu máli fyrir þessar veiðar hvar stærsti hluti stofnsins
hrygndi. Þorskstofninn á Íslandsmiðum var meira en tvær og hálf
milljón tonn fyrir 1950160 og gefur augaleið að veiði upp á 5–10
þúsund tonn, eins og gæti hafa verið á miðöldum,161 hefur ekki
verið háð því að fara fram þar sem mest var af þorskinum á hverj -
um tíma.
Í öðru lagi hefur fiskur, sem dreginn var úr sjó á sumrin, ekki
verið verkaður á sama hátt og skreið síðari alda. Bæði fornsögur og
máldagar staðfesta að um norðanvert landið voru aðkomnir ver-
menn við róðra sumarlangt og hefur þá greinilega verið veitt meira
en í soðið. Maðkaflugutíminn kann að hafa verið eitthvað styttri en
nú, eftir að loftslag fór að kólna, en hefur þó alltaf spannað einhverja
mánuði, og þótt fólk kunni að hafa gert sér minni rellu út af maðka-
skemmdum, þá getur maðkurinn étið fiskinn upp til agna;162 er því
ólíklegt að venjuleg skreiðarþurrkun hafi verið aðalverkunar aðferð -
in á sumarvertíðarfiski. Söltun kemur til greina; vitað er að salt var
gert á Íslandi á miðöldum163 og brenndar smáskeljar sem finnast
innan um fiskbein í öskuhaugum inn til landsins gætu bent til að
hvar reru fornmenn til fiskjar? 117
160 Sigfús A. Schopka, „Fluctuations in the cod stock off Iceland during the twen-
tieth century in relation to changes in the fisheries and environment”, ICES
Marine Science Symposia 198 (1994), bls. 175–193.
161 Miðað við að þorskafli hafi verið 50–75% af heildarafla sem hafi verið helm-
ingur af heildarafla eins og hann var á sautjándu og átjándu öld.
162 Páll Gunnar Pálsson, Þurrkhandbókin. Fjölbreyttar og gagnlegar upplýsingar um
þurrkun á fiski (Reykjavík: Matís 2014), bls. 42.
163 Guðmundur Finnbogason „Saltgerð“, Iðnsaga Íslands 2 (Reykjavík: Iðnaðar -
mannafélagið í Reykjavík 1943), bls. 30–39.
NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:45 Page 117