Saga - 2018, Page 167
klaustra þeirra og kanúkasetra — ekki síst á hinum nýkristnu Norðurlönd -
um, þar sem kirkjan var nýtt þjóðfélagsfyrirbæri utan ættarsamfélagsins.
Athyglisverð er tenging Norðurlanda við engil-normanska kirkju, þ.e.a.s.
tengingin við frankversku kirkjuna eftir að Vilhjálmur sigurvegari, hirð hans
og klerkar náðu völdum á Englandi. Texti Gottskálks er þéttriðinn af
fróðleik, tilvísunum og þvervísunum. Gottskálk hefur hið sagnfræðilega
handverk á valdi sínu og er handgenginn fornfræðum. Höfundur spennir
fimlega bogann frá frægum ummælum Jóns Loftssonar til Halldórs Laxness
og sjálfstæðisbaráttu tuttugustu aldar. Af ritaskrá má sjá að höfundur hefur
víða leitað fanga og sparað lesendum sporin að þessum skemmtilega fróð -
leik.
Margaret Cormack gerir í grein sinni, „Monastic Foundation and Found -
a tion Legends“, grein fyrir stofnun klaustranna í kirkjubæ, Þykkvabæ,
Þingeyrum, Helgafelli, Viðey og Reynisnesi. Hún rekur annars vegar fjár-
hagslegar forsendur klausturstofnunnar — þ.e.a.s. hinnar veraldlegu víddar
og hins vegar yfirskilvitlegrar víddar í formi forspár, drauma og spádóma
— að hér væri um yfirskyggða staði að ræða, þar sem rétt væri að byggja
kirkjur og klaustur. Guðleg forsjón kæmi til skjalanna og styrkja slíkar sögur
tilvist viðkomandi klausturs. Héraðshöfðingjar gáfu gjarnan jörð undir
klaustur. Í ættarsamfélagi, þar sem eignir tilheyrðu ættinni, gátu klaustra-
menn átt yfir höfði sér að erfingjar riftu slíkum samningi. Nikulás Break -
spear kardináli, síðar Hadrian IV. páfi fékk við stofnun erkibiskupsstólsins
í Niðarósi 1152/1153 þær reglur samþykktar að einstaklingur mætti gefa til
kirkju og helgra staða tíund af erfðafé og fjórðung af aflafé. Eins og
Margaret bendir á var klausturstofnun í Þykkvabæ einföld, þar sem gefand-
inn, Þorkell ríki, var barnlaus. Stofnun klaustursins á kirkjubæ rekur höf-
undur til Oddaverja og var Halldóra Eyjólfsdóttir, fyrsta abbadísin, af þeirri
ætt. kirkjubær hafði allt frá tímum Papa verið byggður kristnum mönnum
og höfundur telur kirkjubæ ætíð hafa verið kirkjulega miðstöð. Margaret
rekur sögu Þingeyraklausturs og koma þar við sögu hin veraldlega og hin
yfirskilvitlega vídd. Gefandinn var Þorkell Trandill, fóstbróðir Jóns helga
Hólabiskups, sem setti þar bú og mælti fyrir um að á Þingeyrum yrðu
byggð kirkja og klaustur. Síðan segir kraftaverkasagan að Jón helgi Hóla -
biskup hafi í hallæri heitið ásamt „öllum mönnum“ að byggja þar kirkju og
mælt fyrir henni. Síðan birtist Þorkell Trandill helgum Jóni í draumi, þá
andaður suður í Skálholti. Draumsagan styður kirkju- og klausturbygg-
inguna og hefur fallið í góðan jarðveg hjá miðaldamönnum, sem voru ekki
eins þrúgaðir af skynsemishyggjunni og nútímamaðurinn. Þeir hafa væntan -
lega látið fé og timbur af hendi rakna til framkvæmdanna. Glæsilegust er
sagan af Guðríði Þorbjarnardóttur, sem ekki var tekin í dýrlingatölu. Þarna
slær saman forneskju, sögu um mikilfenglegan seið á Grænlandi, sem Guð -
ríður tekur þátt í og fær spádóma um gæfusama og hákristilega afkom -
endur. Vegur Guðríðar verður mikill, því eins og höfundur gerir grein fyrir
ritdómar 165
NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:46 Page 165