Morgunblaðið - 22.10.2021, Side 2

Morgunblaðið - 22.10.2021, Side 2
E kkert fyrirtæki verður til í tómarúmi. Öll eru þau stofnuð vegna þess að eigendur þeirra sjá tækifæri til þess að veita þjónustu eða framleiða vöru. Í flestum tilvikum er þá um vöru eða þjónustu að ræða sem markaðurinn þekkir í einhverri mynd, en svo eru dæmi um fyrirtæki þar sem sköpunarstarfið nær þeim hæðum að til verður afurð sem markaðurinn hefur ekki séð áður, uppfyllir jafnvel þarfir eða leysir vandamál sem heim- urinn vissi ekki af að væru til staðar. Í tólfta sinn kynnir Creditinfo lista yfir úrvalshóp fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla ströng skilyrði um eignastöðu, eigið fé og jákvæða rekstrarniðurstöðu. Þótt listinn sé langur á íslensk- an mælikvarða, þ.e. á níunda hundraðið, þá komast aðeins um 2% virkra fyrirtækja á listann. Það eru því aðeins þau fyrirtæki sem ná eftirtektarverðum árangri sem talist geta framúr- skarandi. Síðustu ár hefur Morgunblaðið í samstarfi við Creditinfo gefið út sérstakt blað helgað þess- um fyrirtækjum. Listinn sjálfur er birtur ásamt áhugaverðri tölfræðilegri samantekt varðandi fyrirtækin sem á honum eru. En við höfum einnig tekið fjöldamarga fyrirtækjastjórnendur tali og er blaðið sem hér lítur dagsins ljós engin undantekning í þeim efnum. Fyrirtækin sem þetta fólk stjórnar eru eins fjölbreytt og þau eru mörg en sameiginlegur þráður tengir þau þó öll saman. Þau hafa á að skipa öflugum hópi starfsfólks. Það hefur undir forystu stjórnenda og eigenda sýnt þrautseigju við að byggja fyrirtækin upp og þar skiptir ráðdeild í bland við heil- brigða áhættutöku máli. Stofnun fyrirtækis er út af fyrir sig áhættusamt framtak, en með ábyrgri framgöngu í bland við heppni og fyrrnefnda áhættutöku verða töfrarnir til. Og fyrirtækin eiga það líka sameiginlegt, óháð stærð og umsvifum, að þau skipta öll máli fyr- ir samfélagið. Þjónustan og framleiðslan sem þau standa fyrir skiptir sköpum, ekki aðeins við verðmætasköpunina sem slíka, heldur einnig grundvallarþætti sem hvert verlferðarþjóðfélag verður að búa yfir. Þetta birtist t.d. hjá fyrirtækinu Distica sem tryggir aðgengi landsmanna að bestu lyfjum og lækningatækjum sem heil- brigðiskerfið þarf á að halda. Mýflug flytur fólk milli landshluta svo koma megi því undir læknishendur. Benchmark Genetics fram- leiðir hrogn fyrir starfsgrein sem eftir fá ár mun skapa hundraða milljarða gjaldeyristekjur fyrir samfélagið. Optical Studio flytur inn gler svo snúa megi á sjóndep- urð fólks og Verksýn tekur á mygluvandamálum í hús- um vítt og breitt. Það er í raun magnað að heyra sög- urnar sem viðmælendur okkar hafa að segja, hver og einn. Þær eru bitar í stærra púsli sem nefnist íslenskt atvinnulíf. Þar verða verðmætin til sem eru undir- staða alls þess sem við viljum geta boðið okkur upp á og komandi kynslóðum í fyllingu tímans. Nú þegar ný ríkisstjórn er á teikniborðinu mætti helsta verkefni hennar vera að búa þessum fyrirtækjum og þeim sem eru í burðarliðnum einfalt og skýrt regluverk sem íþyngir ekki um of. Það gæti orðið mikilvægasta fram- lag hennar til komandi ára, sé rétt á málum haldið. Þrautseigja skilur á milli feigs og ófeigs Stefán Einar Stefánsson 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Útgefandi Árvakur Umsjón Stefán Einar Stefánsson Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Baldur Arnarson baldur@mbl.is, Þóroddur Bjarnason thoroddur@mbl.is Auglýsingar Berglind Guðrún Bergman berglindb@mbl.is Viðar Ingi Pétursson vip@mbl.is Grafík Sigurður B. Sigurðsson Forsíða Kristinn Magnússon Prentun Landsprent ehf. Unnið í samstarfi við Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3 Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi? Í ljósi þeirra fordæmalausu aðstæðna sem uppi eru vegna COVID-19 áskiljum við okkur rétt til að kalla eftir frekari up- plýsingum sem kynnu að varpa ljósi á rekstur fyrirtækja ef ástæða þykir til. Tekið verður tillit til allra opinberra framlenginga RSK á skilafresti ársreikninga. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem eru listuð hér að neðan. Lísa Björk Óskarsdóttir stýrir Nathan & Ol- sen. Hún segir mikilvægt að hlúa að starfs- fólki og gæta að jafnrétti fólks á vinnustaðn- um. Hlúa að starfsfólki 70 Benchmark Genetics er annað tveggja risa- fyrirtækja í heiminum á sviði hrognafram- leiðslu. Staða fyrirtækisins er afrakstur þrot- lausrar vinnu síðustu áratugi. Leiðandi á heimsvísu 18 Marel vermir efsta sætið á lista yfir framúrskarandi fyrir- tæki á Íslandi. Fyrirtækið varði 11 milljörðum króna í nýsköpun á síðasta ári og stefnir á frekari vöxt. Marel fremst meðal jafningja 66 Hjá Mýflugi skiptir máli að bregðast hratt við þegar sjúkraflugið er annars vegar. Þar skipta mínúturnar máli og flugmenn þjálfaðir í að undirbúa flug með skömmum fyrirvara. Hraðinn skiptir máli 76 Júlía Rós Atladóttir var nýtekin við hjá Dis- tica þegar fyrirtækið fékk það risaverkefni í hendur að halda utan um bóluefnainnflutn- ing hingað til lands vegna kórónuveirunnar. Risaverkefni í fangið 30 VIÐSKIPTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.