Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Qupperneq 3
SJÁLFSBJÖRG
ÚTGEFANDI: LANDSSAMBAND FATLAÐRA
Ritstjórn og ábyrgðarmenn:
Emil Andersen, Akureyri,
Hulda Steinsdóttir,' Sigluf.,
Ingibjörg Magnúsdóttir, ísa-
firði, Valgerður Hauksdóttir,
Hveragerði, Sigursveinn D.
Kristinsson, Reykjavik. —
Prentað í Prentverki Odds
Björnssonar h.f., Akureyri.
1. ÁRGANGUR 1959
A V A R P
Byrjun sólmánaðar. Skollasálin var enn
þá alhvít og Skútudalurinn, en klettapeys-
an hægramegin á Hólshyrnunni var svört
nreð hvítum röndum. Suðrið andaði þýð-
vindum, og þegar sólin skein á klettana
roðnuðu þeir strax á vangann.
Tveir menn hittust í góðviðrinu á tröpp-
unum við Gránugötu 14, annar handar-
vana, hinn með bilaða fætur. Þeir ræddu
um það, hvort ekki væri hægt að koma á
fót samtökum til þess að berjast fyrir rétt-
indum fatlaðs fólks. Næstu daga stækkaði
hópurinn. Það var rætt við fleiri, sem höfðu
skerta starfsorku vegna fötlunar. Allir voru
sammála um nauðsyn samtakanna, og fyrsta
félagið var stofnað 10. júní 1958 og hlaut
nafnið Sjálfsbjörg — félag fatlaðra á Siglu-
firði.
Síðar um sumarið risu upp félög í
Reykjavík, ísafirði, Akureyri og í Árnes-
sýslu, öll undir nafninu Sjálfsbjörg — félag
fatlaðra.
Stefnt var að því frá upphafi, að félögin
mynduðu samband sín á milli.
Dagana 4.-6. júní 1959 var stofnþing
Sjálfsbjargar — landssambands fatlaðra háð
í Reykjavík. Þar voru mættir fulltrúar frá
öllum Sjálfsbjargarfélögunum. Störf þings-
ins einkenndust af sama áhuganum fyrir
samtökum hinna fötluðu um félags- og at-
vinnumál, eins og árið áður hafði komið í
ljós við stofnun Sjálfsbjargarfélaganna.
Baráttu- og áhugamál samtakanna eru
margþætt, og verður hér aðeins minnzt á
nokkur hin þýðingarmestu.
Það er nrarkmið samtakanna að gera öllu
fötluðu fólki kleift að taka þátt í félagslífi,
sér og öðrum til ánægju og uppbyggingar.
Heilbrigt fólk á að vonum erfitt með að
gera sér þess ljósa grein hve risavaxnar þær
hindranir eru, sem fatlað fólk þarf stundum
að sigrast á, til að geta notið þess að vera
þátttakendur í almertnu félagslífi.
Við, sem orðið lröfum að glíma við þá
erfiðleika, jafnt innri sem ytri, vitum hve
mikilvægt verkefni samtök okkar hafa að
leysa á þessu sviði.
Eitt fyrsta verkefnið til úrlausnar félags-
málunum er að félögin og landssambandið
geti komið sér upp félagsheimilum, sem
jafnframt geti orðið miðstöð fyrir létta
vinnu félaganna. Styrktarfélagar Sjálfsbjarg-
ar, sem að jafnaði eru heilbrigt fólk, geta
veitt ómetanlegan stuðning við að leysa hin
félagrslegu vandamál.
Bezta lausnin á atvinnumálum fatlaðra
er að starfskraftar okkar verði nýttir í al-
mennum atvinnurekstri eða þjónustu eins
og annarra þegna þjóðfélagsins, eftir því
sem orka okkar og aðstæður leyfa.
sjálfsbjörg 1