Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 9

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 9
með skemmtisamkomu, sem Sjálísbjörg í Reykjavík bauð okkur til og haldin var í félagsheimilinu í Kópavogi, þar voru frarn bornar veitingar og ýmislegt var þar til skemmtunar, og í alla staði mjög ánægju- legt. Það var að öllu leyti mjög ánægjulegt að sitja þetta fyrsta þing samtaka okkar, og er vonandi að í framtíðinni ríki ávallt hinn sami félagsandi innan samtakanna og ríkti þar að þessu sinni, þá mun vel farnast og öllum málum hinna fötluðu miða áfram á réttri braut, braut samvinnu og samhjálpar. Viljum við fulltrúar héðan af Akureyri þakka félögunum alls staðar af landinu fyr- ir góða samvinnu og sérstaklega ánægjuleg- ar samverustundir þessa júnídaga í Reykja- vík, og við bjóðum þá velkomna til Akur- eyrar, þar sem þing Landsambandsins verð- ur háð á næsta vori. Emil Andersen, forseti. GÓÐIR LESENDUR Nú þegar samtök okkar fara af stað með sitt fyrsta ársrit, vil ég aðeins fylgja því úr hlaði með örfáum orðunr. Það er von mín og ósk, að þessu riti okkar verði vel tekið. Ég veit vel að það er allt yfir fullt af alls konar ritum og bæklingum og að þið getið farið inn í næstu sjoppu og keypt ykkur miklu girnilegri rit, til lesturs, en þetta er, en samt, kaupið blaðið okkar, fylgizt með baráttu hinna fötluðu og styrkið um leið samtök okkar. í trausti þess að þannig séu nú flestir gerðir, að þeir hafi áhuga á fleiru en því, sem er kynæsandi og morðritum, látum við þetta rit koma fyrir almennings sjónir. Emil Andersen. L Ö G SJÁLFSBJARGAR landssambands fatlaðra I. kafli: Nafn og tilgangur. 1. gr. Sambandið heitir Sjálfsbjörg — landssam- band fatlaðra. Lögheimili þess er í Reykja- vík. 2. gr. Hlutvei'k sambandsins er að hafa forystu í baráttu fatlaðs fólks fyrir auknum réttind- um og bættri aðstöðu í þjóðfélaginu, meðal annars með því: a) að veita félögum innan sambandsins og fötluðum einstaklingum utan sambands- ins jafnt og innan þess þá fyrirgreiðslu og hjálp senr það getur í té látið. b) að koma á fót og starfrækja félagsheim- ili, þar sem starfsemi sambandsins geti farið fram. c) að styðja fatlað fólk til þess að afla sér þeirrar menntúnar, bóklegrar eða verk- legrar, sem það hefir löngun og hæfileika til. d) að aðstoða fatlað fólk til þess að leita sér þeirrar vinnu sem það er fært til að leysa af hendi í atvinnurekstri eða þjónustu. e) að stuðla að því að félögin geti komið upp félags- og vinnuheimilum fyrir sam- tökin, hvert á sínu félagssvæði, og með því bætt aðstöðu fatlaðs fólks til félagslífs og atvinnu. f) að koma upp þjálfunarstöðvum fyrir fatlað fólk úti um land, þar sem slíkar stöðv- ar eru ekki fyrir hendi. g) að vinna að bættri löggjöf um mál- efni fatlaðs fólks. h) að efla samstarf við önnur öryrkja- samtök innan lands og utan. sjálfsbjörg 7

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.