Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Qupperneq 13
GUÐMUNDURSKALDBERGÞORSSON
í hitt eð fyrra átti Guðmundur skáld
Bergþórsson þriggja alda afmæli. Fæddur
1657, dáinn 1705. Hann var eitt af merk-
ustu rímnaskáldum þjóðarinnar á 17. öld.
Guðmundur var maður mjög fatlaður
allt frá fjögurra.ára aldri. Gat ekki hreyft
hendur né fætur utan vinstri handlegg. En
með vinstri hendi skrifaði hann.
Um Guðmund Bergþórsson skrifar Finn-
ur Sigmundsson landsbókavörður í formála
fyrir Olgeirsrímum danska:
„Ævi Guðmundar Bergþórssonar er um
margt raunasaga, en þó jafnframt saga mik-
illa sigra. Hann er kominn af fátækum og
umkomulitlum foreldrum. Fjögurra ára að
aldri veikist hann og er farlama upp frá
því, máttvana í fótum og hægri hönd að
mestu og mjög krepptur. Sakir gáfna sinna
og stakrar námfýsi tekst honum þó að læra
að lesa og skrifa og síðan að afla sér marg-
víslegs fróðleiks. Hann fer snemrna að
yrkja, og tuttugu og þriggja ára að aldri
ræðst hann í það stórvirki að kveða Olgeirs-
rímur. Hann vinnur hylli almennings og
þjóðsögur skapast um hann. Lærðir menn
veita honum athygli, og þá rekur í roga-
stanz þegar þeir kynnast gáfum hans og
þekkingu."
Síðar í sama formála segir Finnur:
„Til sannindamerkis um gáfur Guð-
mundar og andríki segja þjóðsögurnar frá
því, að eitt sinn á efri árum hans hafi fund-
um þeirra Jóns biskups Vídalíns borið sam-
an og hafi þeir ræðst við um hríð. Segir
sagan að biskup hafi ntjög undrast gáfur
hans og þekkingu og er honum eignuð vísa
þessi um Guðmund:
Heiðarle'gur hjörva grér
hlaðinn mennt og sóma,
yfir hann ég ekkert ber
utan hempu tóma.
Hvað sem segja má um slíkar sagnir, felst
í þeim mikil viðurkenning samtímamanna
á hæfileikum Guðmundar. Til eru nokkrar
lofvísur merkra manna um Guðmund og
skáldskap hans og sést af mörgu, að hann
hefur þótt hinn mikilhæfasti maður.“
Fyrsta ársirit Sjálfsbjargar — landssam-
bands fatlaðra vill með þessum orðum
minnast þriggja alda afmælis þessa m'kil-
hæfa, fatlaða manns.
SKIPIN KOMA
Sérðu skipin er sigla inn flóann
sína votu leið.
Ú tþráin kallar á okkur bæði
út á höfin breið.
En skipin sigla, skipin koma
og skipin fara sinn veg,
aðeins tveir eru eftir heima
það erum við, þú og ég.
Skipin koma að landi, líða og láta í haf
í kvöld.
En heima eru margir sem bundnir bíða
bundnir við örlög köld.
Horfa eftir þeim sem fleygir og færir
frjálsir ganga sinn veg.
Það eru fleiri eftir heima
en aðeins þú og ég.
St.
SJÁLFSBJÖRG 11