Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 23

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Blaðsíða 23
á götu — skaut inn orði og orði á stangli, en hann reifst aldrei við kallana. Það var einu sinni um sumarmál, að ég skauzt inn til hans Einars. Þarna sátu þeir, Einar og Óli. Óli var mállaus, en hann tal- aði bara nteð puttunum og þeir ltéldu uppi hrókaræðum, meistarinn og sveinninn. Það var náttúrlega ekki gaman að því að vera heyrnarlaus, en stundum gat það verið þægilegt, einkum þegar hann Lárus metód- isti lét gamminn geisa. Það var ekki alltaf fallegt, sem liann Lárus lét út tir sér þegar honum tétkst vel upp. Stundum lá við að maður fyndi stybbuna úr strompunum í neðra, þegar hann Lárus var í essinu sínu. Það var víst meiri brennisteinsbrælan þar, ef það var allt satt, sem liann sagði. Mér þótti stundum gaman að honum Lárusi, en liann var fyrir löngu btiinn að brennimerkja mig markinu hans gamla með hornin. Einar skósmiður sagði, að hann Lárus ætti að hætta þessu orðbragði, þegar blessuð börnin væru inni. í þetta sinn vissi ég af honum Lárusi inni í verkstæðinu. Hann Gvendur Jóns var þar líka, svo að mér þótti vel mætt þar. Þegar ég kom inn, tyllti ég mér á stól, tók gamla pjötlu og skóarahníf. Þeir voru eitthvað að skattyrðast, hann Lárus metod- isti og hann Gvendur fóns. Eg lagði við hlustirnar, báðir gátu komið fyrir sig orði. „Þú minn ungi vinur,“ sagði Lárus við mig og var mildur, eins og hann var alltaf fyrst. „Heldurðu ekki að þessi strákdeli þarna hefði gott af því að lesa bænirnar sín- ar á hverju kvöldi? Hann segist ekki kunna nema blessunarorðin, og svo kann hann þau ekki.“ „Víst kann ég þau,“ sagði Gvendur og var sármóðgaður, „en ég er ekkert að þylja þau fyrir svona kalla eins og þig. Þtt ert alltaf að prédika, en ert saml enginn séra." Ekki vildi ég skipta mér af þessum um- ræðum, enda komu nú inn tveir nýir gestir. Það voru nú hvorki meira né minna en liann Jón sinnep og hann Bjössi á sjótrján- um. Þeir komu beina leið neðan úr Svína- stíjunni á Hótel ísland og voru báðir svona rétt lága-skjönt. Trúboðinn, sem ekki var neinn séra, gleymdi samstundis bænalestrinum hans Gvendar Jóns. Hann hóf augu sín til lofts í verkstæðinu, spennti greipar og sagði þrumandi rtiddu: „Þarna komið þið, djöfulsins þjónar, dinglandi eftir braut syndarinnar. Hvar haldið þið að þið lendið, Belials synir?" „Já — hvar við lendum — hv-hvar vi-við lendum?" sagði Bjössi á sjótrjánum og var hugsi. „I versta falli uppi á Skólavörðu- stígnum hjá honum Sigurði fangaverði.“ „Nei þið lendið í bikpyttunum hjá hús- bónda ykkar — þaðan eigið þið aldrei aftur- kvæmt. Hvað stendur ekki skrifað...." Nú greip Einar frammí fyrir Lárusi og sagði með liægð: „Þú skalt nú ekki vera að þessu Lárus minn. Þeir Bjössi og Jón eru ekki syndugri en fólk er flest.“ „Þeir fara samt norður og niður,“ æpti Lárus og barði í borðið. Svo hóf hann upp hinn ógnarlegasta reiðilestur yfir þeim fé- lögunum. Hann sagði þeim frá öllu því, sem þeir ættu í vændum eftir að búið væi; að koma þeim fyrir í kvíarnar hjá höfrun- um. Þar loguðu eldar dag og nótt — pottar og pönnur og önnur ílát væru til þess að steikja eða sjóða hafrana, allt eftir smekk húsbóndans. Svo væru þar rottur og mýs, eiturslöngur og önnur illkvikindi, sem hefðu það helzt fyrir stafni, að narta í liafr- ana, en meðal þeirra voru þeir Jón sinnep og Bjössi á sjótrjánum. Þá fór að þyrsta, félagana, undir þessum reiðilestri um eld og steikarapönnur. Bjössi dró hálfflösku af Bröndums brennivíni upp tir vasa sínum og saup á. Jón sinnep fékk sér líka einn, en Einar skósmiður afþakk- aði. Hann vildi ekki bragð við vinnuna, Óli mállausi hélt áfram að plukka skó. Hann var áreiðanlega feginn því núna, að heyra ekki það, sem fram fór. S JÁLFSB JÖRG 2 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.