Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 24

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 24
Allt í einu tók Gvendur Jóns undir sig stökk. Hann þaut eins og örskot út. Lárus prédikari hafði hætt lestrinum um stund, hvort sem það var til þess að draga andann, eða vegna þess að efnið var þrotið, en nú kom andinn aftur yfir hann. Hann mundi eftir bænakunnáttunni lians Gvendar og hóf ræðuna á ný. Það var æskulýður þessa lands, sem hann lagði útaf. Það var alveg víst, að ekki myndi nema einn af hverjum hundrað sleppa við pottana, rotturnar og pöddurnar á efsta degi. Ég var ekkert hræddur við rottur og mýs, en pöddur og svoleiðis dót var mér ekki vei við. Lárus snéri sér að mér, og nú fór hann að fræða okktir á því, að fæturnir á mér væru snúnir í refsingarskyni fyrir syndir mínar. Þá var Einari nóg boðið. Hann skaut fram í með hægð, kankvísfegur á svipinn: „Það getur nú varla verið vegna synda, að fæturnir á honum eru snúnir. Hann fæddist svona í þennan heim.“ Prédikarinn þaut á fætur, barði rækilega í borðið og spurði Einar hvort hann ætlaði að voga sér að draga í efa heilagt orð. Allir menn fæddust í heiminn, syndum hlaðnir í bak og fyrir. Svo héit liann áfram og lagði útaf eplisræflinum í aldingarðinum. Einar svaraði ekki, en Bjössi á sjótrjánum stakk upp í sig tóbakstölu. Meðan Lárus lét dæluna ganga, snaraðist Gvendur Jóns aftur inn. Hann gekk að prédikaranum, rjátlaði eitthvað við vasann á honum og spurði svo ofboð sákleysislega: „Heyrðu manni — eru þær stórar, rott- urnar, sem eiga að narta í mann þarna niðri lijá ljóta kallinum?“ „Já, þær eru á stærð við meðalkött og baneitraðar. Þær gera bæði að bíta og klóra.“ Nú var tækifærið til þess að lýsa öllum illkvikindunum í neðra, jötunuxum, kongulóm, sporðdrekum, marflóm, sala- möndrum, slöngum, randaflugum, eðlum, færilúsum og hrökkálum. Munnvatnið gus- aðist út úr fræðaranum þgear hann lýsti eiturtegundum hvers dýrsins fyrir sig. 22 SJÁLFSBJÖRC Bibliusetningar þutu inn á milli til frekari uppbyggingar. Allt í einu greip hann hendinni í treyju- vasann. Hann steinhætti lestrinum, náföln- aði og kippti hendinni upp úr vasanum. Hann hélt á stærðar rottu, sem tísti og spriklaði. Hann sleppti henni og hún datt á gólfið og skreið nötrandi út í horn. Lárus prédikari kom ekki upp einu orði, en Einar skósmiður sleppti hamrinum, hallaði sér afturábak og hló og hló. Allir hlóu nema prédikarinn. Loks kom Jón sinnep upp orði, en hann tók andköf á milli: „Ja — sérernúhvað. Ekki hefði ég haldið, að þér yrðuð fyrir þessari ásókn í lifanda lífi, Lárus minn. En svona er það nú. Þá vitið þér það.“ Trúboðinn greip hattinn sinn. Hann horfði yfir hópinn og gekk síðan til dyra og þaut út. Hann skildi dyrnar opnar og rottu- ræfillinn var ekki lengi að bjarga sér út með honum. Það var mikið um þetta talað í Vestur- bænum á eftir, en Lárus metodisti ákvað að láta okkur deyja í syndunum, að minnsta kosti kom liann aldrei í verkstæðið hjá hon- um Einari. Við söknuðum hans ekki. Fyrir nokkrum árum var tekinn upp út- varpsþáttur á Selfossi, já eða nei. Ein stúlk- an sem þar var, var spurð að því hvort Hekla væri í Árnessýslu, og svaraði hún því neitandi, en spyrjandi taldi Heklu vera í Árnessýslu. Þetta varð tilefni til þess að ónefndur Árnesingur kvað eftirfarandi vísu: Hann Sveinn ætlar að flytja fjöll, fræga tók hann Heklu. Vestan Þjórsár vígði völl, varð að hornaskellu. Selfyssingur.

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.