Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 26

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 26
KAREN Á síðustu árum hefur verið m'kið rætt og nokkuð ritað um „spastíska l<)mun“ eða lamastjarfa eins og það hefur verið nefnt á íslenzku. Saga sú, er hér fer á eftir, er saga um óvenjulegt barn og hugrakka for- eldra, sem tóku tíma frá daglegum önnum heima fyrir til þess að breiða þá þekkingu út manna á meðal, að barn með lamastjarfa þurfi ekki að vera dæmt til einangrunar — og vöktu með því von þúsunda manna. Þetta er saga um fjölskyldu, sem neitaði að viðurkenna þann úrskurð margra lækna, að „tilfelli“ Karenar væri vonlaust. Bókina um Karen hefur frú Marie Killilea, móðir hennar, ritað, og það, sem hér er birt, er aðeins lauslegur útdráttur úr henni. Karen var fædd í Bandaríkjunum árið 1940, svo ófullburða, að henni var vart hug- að líf. Þegar hún átta mánaða gömul fór af sjúkraluisinu, komst yfirlæknirinn svo að orði að samkvæmt vísindalögmáli hefði þetta barn ekki átt að vera á lífi. Guð liefði vafalaust þyrmt lífi hennar í einhverjum ákveðnum tilgangi. Þegar Karen var orðin eins árs gömul og hvorki farin að hreyfa sig né tala eins og önnur börn, urðu foreldrar hennar s'kelfd- ir og létu lækni skoða hana. Hann felldi þann úrskurð, að hún væri með lamastjarfa og myndi sennilega aldrei geta setzt upp, notað hendur sínar eða talað. Þau fóru með barnið til hvers læknisins af öðrum, en þá var þessi veiki lítt þekkt. Einn sérfræðingurinn sagðist enga trú hafa á því, að þessi börn hefðu nokkra andlega hælile'ka. Annar ráðlagði þeim að senda barnið á eitthvert hæli og gleyma því, að þau hefðu nokkurn tíma eignazt það. En þrátt fyrir allt þetta misstu hinir ungu foreldrar ekki kjarkinn, en ákváðu að hætta ekki fyrr en þau hefðu fundið ein- hvern, sem gæti hjálpað Karen. Og nú hófst erfiður tími. Tvö og hálft ár liðu — ár von- leysis og árangurslausrar leitar. Þau fóru um landið þvert og endilangt og alla leið til Kanada, heimsóttu sjúkrahús eftir sjúkrahús og leituðu til tuttugu og þriggja helztu lækna landsins. Þau steyptu sér í botnlausar skuldir, en allt til einskis. Karen var nú orðin þriggja og hálfs árs og gat setið ofurlítið uppi og talað fáein orð. Þetta var að vísu ekki mikið miðað við önnur þriggja ára börn, en framfarir voru það samt. Efst í huga þeirra voru þó and- legir hæfileikar hennar. Þau hvor.ki vildu né gátu trúað að hún væri vangefin, svo skýrleg voru augu hennar. En gat það verið, að þau hefðu rétt fyrir sér og læknarnir rangt? Loks, dag einn, þegar móðir Karenar sat við sjúkrabeð manns síns, las hún, af tilvilj- un, í kvöldblaði einu, að dr. B„ sérfræðing- ur í lamastjarfa væri staddur í borginni í fyrirlestrarferð. Hún flýtti sér þegar daginn eftir á fund hans með Karen, en lét engan vita um för sína, því að það var almenn skoðun ættingja þeirra og vina, að leit þeirra væri löngu gengin út í öfgar. Læknirinn var lengi að rannsaka Karen og spurði móður hennar margra spurninga, sem hún hafði aldrei verið spurð áður. Loks sagði hann, að Karen þarfnaðist hjálp- ar, mikillar hjálpar. Það mætti kenna henni að sitja uppi og nota hendur sínar. Og Karen ætti eftir að ganga. Hvað viðvék and- legum hæfileikum hennar, kvað hann eng- an vafa leika á því, að hún hefði meira en meðalgreind. Oll þessi ár vonlausra drauma og árang- urslausrar leitar hafði móðir Karenar aldrei fellt tár, en nú grét hún, gleðitárum. — Leitinni var lokið. 24 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.