Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 27

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 27
Nokkru síðar héldu foreldrarnir með Karen suður í land til dr.. B. til frekari skoðunar. Hann tjáði þeim, að hún þyrfti endurhæfingar með, lamastjarfi orsakaðist af skemmd á einhverjum hluta heilans og með endurhæfingunni væri annar hluti heilans æfður tíl þess að gegna hlutverki hins skemmda hluta, þ. e. að senda boð út í líkamann. Karen þyrfti tvenns konar æfing- ar, og hvora æfingu a. m. k. tvisvar í viku. Vegna hins afar mikla kostnaðar við þetta, ákváðu foreldrar Karenar að læra æfinoarn- o ar sjálf til þess að geta kennt henni. Eftir. margra vikna nám, sagði læknirinn þeim loks, að nú væru þau fær um að taka við kennslunni og kvaðst vildu óska þess, að allir „sínir foreldrar“ gætu unnið saman. Hann bætti því við, að starfið myndi ekki alltaf reynast auðvelt. Því yrði að halda áfram ekki mánuðum, heldur árum saman. En launin væru þess lí'ka verð. Þann dag, sem Karen tæki sitt fyrsta skref, fyndu þau til gleði, sem fulllaunaði allt þeirra erfiði. Karen tók smárn saman framförum, og foreldrum liennar varð tíðrætt unt öll þau lamastjarfa börn og foreldra þeirra, sem höfðu orðið á vegi þeirra á ferðalögunum; fólk með sama vandamál og þau sjálf, sem liefði þó engrar Itjálpar notið. Ef hægt yrði að komast að raun um, live margir sjúkl- ingarnir væru, kom þeim saman um, að ef til vill mætti eitthvað gera. Með aðstoð heilbrigðisfulltrúans (ifluðu þau sér vitn- eskju um 58 fjölskyldur, þar sem voru lama- stjarfa sjúklingar, en þóttust þó viss um, að þeir væru miklu fleiri í landinu. Nú ákváðu þau að kalla saman fund í því skyni að koma á fót félagsskap til gagnkvæmrar hjálpar og upplýsinga. Þau skrifuðu þessum 58 fjcjls'kyldum og auglýstu auk þess fund- inn rækilega í blöðum og útvarpi. Þau bjuggust við um 30 manns, en 117 mættu á fundinum. Daginn eftir birtu cjll hlöðin frásagnir af fundinum ásamt þeirri frétt, að sett hefði verið á stofn félag lamastjarfa fólks. Brátt var félagið önnum kafið við að safna fé til þess að koma sér upp hentugu húsnæði, æfingarstöð og ráða til sín sér- fræðinga o. s. frv. Fleiri félög risu upp, og 10. júní 1946 var miklum áfanga náð, þeg- ar 16 fulltrúar frá ýmsum ríkjum Banda ríkjanna stofnuðu Landssamhand félag- anna. Mánuðirnir liðu, og læknirinn hafði reynzt sannspár. Oft var daglega stritið við fjögurra klukkustunda æfingar nærri því ofraun Karen og móður hennar. En ekki þurfti nema lítið „kraftaverk“, eins og t. d. þegar Karen tókst eftir þriggja vikna árang- urslausar tilraunir að hneppa einum hnappi og lyfta öðrum fætinum, til þess að gefa þeirn aftur trri á lífið, og þreytunni var svipt burtu á svipstundu. Fyrri hluta nóvembermánaðar, þegar Karen var rétt sjö ára og hafði í þrjti og hálft ár gert gönguæfingar í grind, var enn haldið suður í land til dr. B. Hann komst svo að orði um Karen, að hún hefði tekið furðulega miklum framförum, og hún væri einn allra bezti sjúklingurinn, sem hann hefði nokkru sinni haft. Þessar hröðu fram farir væru henni einni að þakka, skörpum skilningi hennar, viljaþreki og áhuga. Nú væri því kominn tími til, að hún æfði sig í að ganga við hækjur. Eftir að heim var komið var beðið með óþreyju eftir hækjunum ,og þann 17. nóv. birtust þær loks, skínandi fagrar. Strax við fyrstu tilraunina gat Karen gengið, en hægt og hikandi, að vísu. Nú voru morgunæfing- arnar ekki lengur þreytandi. Hún tók geysi- hröðum framförum, og aðeins mánuði síð- ar var aftur lagt af stað suður. Það var sannkcjlluð sigurganga fyrir Karen. A þess- um ljcjrum árum voru ailir farnir að þekkja hana og fylgdust vel með framförum lienn- ar; burðarmennirnir, lestarstjcjrinn, þjón- arnir og hótelstjcjrinn á hótelinu, sem Jiau sjálfsbjörg 25

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.