Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Side 31
tími, en Rakel litla notaði þann tíma vel.
Hún var óvenjnlega bráðþroska og greind-
arlegt barn, kurteis og prúð svo af bar, ætíð
þýð og lipur í allri umgengni.
Allir, sem til hennar þekktu, elskuðu
hana og virtu, þeim er sár harmur kveðinn
við fráfall hennar, þó elskulegir foreldrar
og ung systkini eigi þar drýgstan ldut að
máli. Sérstaklega var Rakel litla móður
sinni mikils virði fyrir alla þá hjálp og um-
hyggju, sem hún veitti henni, hverja stund
í hennar erfiðu kringumstæðum. Snúning-
ar heimilisins lentu óumflýjanlega mikið á
herðum þessa barns, þar sem húsmóðirin
var mikið fotluð. Allt þetta bar Rakel litla
með svo mikilli ró og hugprýði, að sb'ks
munu fá dæmi.
bað eru bjartar minningar, sem fylgja
henni út yfir landamæri lífs og dauða, og
vissan um það, að köllun hennar héðan til
æðri starfa kom svo snemma, vegna kær-
leika hennar og trúar á hið góða og sanna í
heiminum, hjálpar syrgjendum að bera
harma sína.
Rakel litla var elzt fjögurra systkina,
dóttir hjónanna Jónínu Egilsdóttur og
Guðna Gestssonar, og flyt ég þeim í nafni
Sjálfsbjargar innilegar samúðankveðjur.
Blessuð sé minning þessarar litlu stúlku.
Hulda Steinsdóttir.
SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR
FÆDD 18. DESEMBER 1905. DÁIN 17. JÚNÍ 1959.
NOKKUR MINNINGARORÐ
Skjótt vill oft sól sumri bregða í lífi okk-
ar mannanna. Svo fannst mörgum þegar
andlátsfregn þessarar góðu konu barst um
bæinn frá Sjúkrahúsi Siglufjarðar þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní síðastliðinn.
Að vísu var hún aldrei heilsuhraust og
mun sjaldan hafa gengið heil til skógar.
Fyrir tveim árum leitaði hún læknisaðstoð-
ar hjá læknum í Reykjavík og mun hafa þar
fengið einhverja bót á veikindum sínum,
svo síðastl. ár gekk hún til vinnu í Hrað-
frystihúsi hér í bæ og virtist hress og glað-
leg við vinnu. En svo skipti um á svip-
stundu og eftir nokikurra daga legu á
Sjúkrahúsinu var hún liðið lík.
Sigrún var fædd að Þrasastöðum í Stíflu
í Austur-Fljótum 18. des. 1905, eins og að
ofan greinir. Fluttist með foreldrum sínum
að Berghyl í sömu sveit, en þau voru Anna
Jóhannesdóttir og Stefán Benediktsson.
Voru þau hjón bæði af góðu bergi brotin
Sigríður Stefánsdóttir.
SJÁLFSBJÖRG 29