Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Qupperneq 36
Frá vinnukvöldi Sjálfsbjargar á Akureyri.
Stefánsson, arkitekt. Byggingameistarar
verða þeir Jón B. Jónsson og Jón Gíslason.
Nú þegar þessar línur eru skrifaðar, er
búið að grafa fyrir húsinu og steypa í rásir,
og uppsláttur er hafinn fyrir sökk I i. Húsið
verður hlaðið úr vikurholsteini, ein lueð,
það sem byggt verður í ár er 170 fermetrar,
en teikning er af mun stærra húsi, og fer
viðbygging eftir því hvað okkur gengur vel
af afla okkur fjár til liennar. Húsinu verður
skipt í vinnusal og geymslur. F.nn fremur
verður þar eldhús og snyrtiherbergi.
Við vonum að þetta átak okkar verði til
hvatningar fyrir önnur félög innan samtaka
okkar. Það er vissulega þetta sem koma skal
á hverjum þeim stað, sem Sjálfsbjargarfélög
eru starfandi.
Að lokum, kæru félagar í Sjálfsbjörg á
Akureyri, þið hafið sýnt alveg sérstakan fé-
lagsþroska, með samheldni ykkar á síðast-
liðnu ári. Látið aldrei annað um ykkur
spyrjast, en það að þið haldið áfranr af sama
dugnaði og liingað til, ef þið gerið það, þá
verður ekki langt þangað til að þið sjáið
flesta drauma ykkar rætast.
Vinnum öll að bættum hag okkar og
styðjum hvort annað, þá fyrst getum við
vænzt árangurs af starfi okkar.
Að lokum vil ég svo vona að Sjálfsbjarg-
arfélögunum megi auðnast það, að vinna
gott og árangursríkt starf í þágu hinna fötl-
uðu, og að þjóð okkar megi sjá, að þó að
einn af þegnum hennar fatlist, þá er ekki
þar með sagt, að hann sé dæmdur úr leik.
Ég vona svo, þó að Sjálfsbjörg hér á A.k-
ureyri njóti ekki minna krafta lengur, þá
komi annar og taki við, og haldi áfram þar
sem ég hætti.
Guð blessi ykkur.
Emil Andersen.
34 SJÁLFSBJÖRG