Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Side 43

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Side 43
andi að sem flestir ættu þess kost að dvelja um stund í Dómkirkjunni að Hólum, það er áreiðanlega mannbætandi að konra þar. Frá Hólum var haldið heim á leið og ihvergi stanzað fyrr en til Akureyrar kom. Allir, senr í þessa ferð fóru, virtust vera ánægðir með ferðalagið og sumir spurðu hvenær ætti að fara í næstu ferð. Að endingu vil ég svo þakka öllum, senr voru með í þessari ferð, fyrir ánægjulegar stundir, og vona að við eigum eftir að fara margar slíkar ferðir á vegum Sjálfsbjargar, því hvað er skemnrtilegra en að ferðast unr landið og skoða fagrar sveitir, og kynnast bæði inn á við og út á við? Ég vil svo fyrir hönd Sjálfsbjargar á Ak- ureyri þakka öllum þeim, sem á einn eða annan hátt greiddu fyrir okkur á þessu ferðalagi. Sérstaklega vil ég þakka þeim bílstjórun- um Gísla og Svavari fyrir alla þá lipurð og Ferðahópurinn í brekliunni fyrir framan skóla- húsið að Hólum. góðhug er þeir sýndu okkur allan tímann, sem við vorum saman. Emil Andersen. HÓPFERÐ. (Framhald af bls. 30) er sagnir herma að Jón biskup Arason muni hafa keypt og gefið kirkjunni. Þá sagði hann frá líkneskju og myndum af Kristi á Krossinum, frá biskupamyndunum og af hverjum hver þeirra sé og síðast frá gröf- um biskupanna undir kórgólfinu og í hverja hver þeirra hafi verið lagður. Að því búnu lék ........ Traustason 4 sálma á nýja kirkjuorgelið. Hann og skóiastjóri sungu og margir af aðkomugestum tóku undir. Á meðan ég dvaldi í Hólakirkju, fannst mér ég vera staddur í tvenns konar heimi — heimi hins áþreifanlega veruleika — og lieimi fortíðarinnar — fyrir mörgunr öldum. Farið var úr kirkju í Turn Jóns Arasonar biskups, upp alla stiga svo langt, sem komizt varð. Þaðan að sjá, voru þeir sem dvöldu á jörðu niðri heldur smávaxn- ir. Að því búnu var horft yfir Hólastað og hið undurfagra útsýni þaðan, eftir það feng- um við okkur hressingu úr skrínum okkar. Kl. 6 kvöddum við Hóla og héldum heim- leiðis. Á vegamótunum við Hjaltadalsárbrú stönzuðu báðir hóparnir og kvöddust hress- ir í anda eftir sameiginlega skemmtun og óskuðu hver öðrum allra heilla og ham- ingju í framtíðinni og góðrar heimkomu. Að því búnu fór hver sína leið. Komið var til Siglufjarðar kl. 9 um kvöldið. G. S. Annar bílstjórinn okkar i ferðinni, Svavar. SJÁLFSBJÖRG 41

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.