Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2016, Síða 7

Bjarmi - 01.12.2016, Síða 7
niður búslóðinni og skiluðum síðan inn tilboði í jörðina." KENNT FYRIR NORÐAN Aðalsteinn réði sig til kennslu bæði við grunnskólann á staðnum og framhalds- skólann en á sama tíma komust þau að því að Cornelia gengi með yngsta barnið þeirra og því Ijóst að hún yrði heimavinnandi til að byrja með. „Þetta er auðvitað nokkuð óvanaleg röð á því að gera hlutina og þetta sumar var óneitanlega svolítið sérstakt, fyrst á meðan við biðum eftir því hvort jörðin yrði ekki örugglega auglýst, síðan á meðan við biðum eftir því hvort okkar tilboð myndi reynast hæst og að lokum á meðan við biðum eftir staðfestingu á því að tilboðinu væri tekið og að við mættum flytja inn. Dagurinn sem tilboðin voru opnuð var líka mjög sérstakur. Það leit nefnilega út þannig í fyrstu eins og að okkar tilboð væri ekki hæst en eftir frekari útreikninga kom þó í Ijós að við áttum hæsta tilboðið en munurinn var óverulegur. Svo margt í þessari reynslu okkar var og er fyrir okkur mikil staðfesting og vitnisburður um það hversu undursamlegur Guð er og kærleiki hans staðfestist í verki við þá sem leita hans og leggja traust sitt á hann. Að rifja þessa sögu reglulega upp hefur líka minnt okkur á það að vera trú þeirri hugsjón sem við lögðum af stað með í upphafi." UPPBYGGINGASTARF Allt þar til á síðasta ári hafa hjónin bæði verið meira eða minna viðloðandi kennslu í grunnskólanum á Laugum. „Fljótlega hófum við þó uppbyggingu og undirbúning að því að geta hér unnið það starf sem hugur okkar stendur til. Þó svo að hafa til þess takmarkað rými þá hefur alla tíð verið mjög gestkvæmt og bæði einstaklingar sem og fjölskyldur hafa komið til lengri eða skemmri tíma til þess að dvelja hjá okkur, vinna með okkur og eiga tíma hér og saman með okkur til vaxtar í trúnni. Við komum upp tjaldstæði til þess að hafa aðeins meira svigrúm til þess að taka á móti fólki en það hefur síðustu árin einnig nýst vel sem tæki til þess að ná til fólks og sem fjáröflun. Við stofnuðum sjálfseignarstofnun, Lífsmótun, til þess að geta haldíð starfinu aðskildu frá okkar eigin fjárhag og hún rekur tjaldstæðið og hefur af því tekjur. í fimm ár fékk Lífsmótun einnig styrki frá Evrópusambandinu til þess að halda úti verkefnum innan „Evrópu unga fólksins" þar sem ungt fólk frá Evrópu kom og dvaldi hér í tæpt ár og vann að ýmsum samfélagsverkefnum, t.d. í skólum, fyrir bjarmi | desember20i6 | 7

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.