Bjarmi - 01.12.2016, Síða 10
Fimm alda
mhming
sidbótarínnar 2017
VIÐTAL VIÐ GUNNAR J. GUNNARSSON
Á næsta ári verður fimm alda afmælis
siðbótarinnar minnst víða um heim. Þá
verða 500 ár liðin frá því að Marteinn
Lúther hengdi skjal með 95 greinum á dyr
Hallarkirkjunnar í Wittenberg, 31. október
árið 1517. Tilgangurinn var að efna til
guðfræðilegrar umræðu um réttmæti
aflátssölu kirkjunnar og fleira. Sá atburður
markaði upphaf siðbótarhreyfingarinnar
sem átti eftir að hafa víðtæk áhrif víða í
Evrópu, meðal annars á íslandi. Af þessu
tilefni hafði Bjarmi samband við Gunnar J.
Gunnarsson, en hann er formaður nefndar
sem kirkjuráð skipaði til að undirbúa
siðbótarafmælið hér á landi.
Hvaða megináherslur verða lagðar
í sambandi við fimm alda minningu
siðbótarinnar?
Lútherskar kirkjur víða um lönd munu
minnast þessara tímamóta með
margvíslegum hætti. Þjóðkirkjan á íslandi
er í þeim hópi og vill stuðla að því að fimm
alda afmælis siðbótarinnar verði minnst
á fjölbreyttan hátt hér á landi. Þótt sjálf
siðbreytingin hafi öðru fremur verið pólitísk
hér á landi hafði siðbótin smám saman
margvísleg áhrif á menningu og samfélag.
Ástæða er til að beina athyglinni að þeim
áhrifum þegar tímamótanna er minnst.
í löndum þar sem lútherska kirkjan hefur
fest rætur er eðlilegt að staldra við á
þessum tímamótum, líta um öxl og horfa
fram á veginn, og vega og meta áhrif
Lúthers og siðbótarinnar. Ekki einungis
með því að horfa til baka og minnast
liðinna atburða eða eins manns, heldur til
að draga lærdóma af hinu liðna fyrir bæði
samtíð og framtíð.
Hverjir sitja í undirbúningsnefndinni?
Kirkjuráð þjóðkirkjunnar skipaði nefnd
árið 2012 til að undirbúa og skipuleggja
margvíslega viðburði af þessu tilefni.
Nefndin tók til starfa í ársbyrjun
2013, en í henni eiga sæti Gunnar J.
Gunnarsson, formaður, tilnefndur af
biskupi, Solveig Lára Guðmundsdóttir,
kjörin af kirkjuþingi, Sigurjón Árni
Eyjólfsson, kjörinn af kirkjuþingi, Arnfríður
Guðmundsdóttir, tilnefnd af guðfræði-
og trúarbragðafræðideild Háskóla
íslands, og Ævar Kjartansson, tilnefndur
af innanríkisráðherra. Með nefndinni
hefur Þorvaldur Víðisson, biskupsritari,
starfað, og frá miðju þessu ári hefur Arna
Grétarsdóttir, sóknarprestur á Reynivöllum,
bæst við sem verkefnisstjóri, sem er hluti af
hennar starfsskyldum.
Hvað stendur svo til að gera í tilefni af
siðbótarafmælinu?
í upphafi ákvað nefndin að leitast yrði
við að minnast siðbótarinnar með sem
fjölbreyttustum hætti. Þegar hafa verið
haldin nokkur málþing þar sem tekin hafa
verið til umræðu valin efni sem tengjast
siðbótinni. Sem dæmi má nefna efnin
„Siðbótarmaðurinn Hallgrímur", „Upprisan
í sálmum og predikun Lúthers", „Lúther og
Biblían", „Konur og Siðbótin" og „Lúthersk
10 | bjarmi | desember20i6