Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 11

Bjarmi - 01.12.2016, Side 11
arfleifð í nútímasamfélagi". Á næsta ári verða svo haldin tvö til þrjú málþing til viðbótar, meðal annars um siðbótina í samkirkjulegu Ijósi. í haust komu tveir prófessorar frá Háskólanum í Kiel hingað til lands og héldu seminar í Skálholti ásamt því að flytja fyrirlestra í Reykjavík. Sú heimsókn var í samstarfi við Háskólann í Kiel, Háskóla íslands og Guðfræðistofnun. Á afmælisárinu verður svo ýmislegt á dagskrá. Sunnudaginn 29. janúar verður upphafsguðsþjónusta afmælisársins í Hallgrímskirkju í Reykjavík þar sem biskup (slands, Agnes M. Sigurðardóttir, mun predika og veður guðsþjónustunni útvarpað. f beinu framhaldi verða síðan tónleikar í kirkjunni sem setja siðbótarkonur í brennidepil. Það á við vel við þar sem þessi dagur er fæðingardagur Katarínu frá Bóra, eiginkonu Lúthers, en hún og fleiri konur höfðu mikil áhrif í siðbótarhreyfingunni og full ástæða er til að vekja athygli á hlut þeirra. Á árinu stendur til að gefa út nokkur af ritum Lúthers á íslensku í tveimur bindum í samvinnu við Skálholtsútgáfuna og stuðlað verður að gerð fræðsluefnis um Lúther og siðbótina fyrir börn, unglinga og fullorðna. Gerður hefur verið samningur við Stoppleikhópinn um að semja og setja upp leiksýningu um Lúther og siðbótina. Um verður að ræða farandsýningu sem sýna má í kirkjum víða um land og vonast nefndin til að áhugi verði á því að fá sýninguna í heimsókn. Verður verkið væntanlega frumsýnt snemma hausts. Einnig er unnið að því í samstarfi við tvær listakonur að gera og setja upp sýningu á verki sem meðal annars minnir á þátt prentverks í siðbótinni. Þá verður leitast við að halda á lofti sálma- og tónlistararfi siðbótarinnar, bæði í söfnuðum þjóðkirkjunnar og með öðrum hætti. Því hefur einnig verið beint til Sinfóníuhljómsveitar íslands að hafa siðbótarafmælið í huga í verkefnavali sínu á næstastarfsári. Svo standavonirtil að þýsk jazz-hljómsveit komi hingað til lands í boði þýska sendiráðsins til að halda tónleika. Fjölmiðlar eru einnig mikilvægir í sambandi GERÐUR HEFUR VERIÐ SAMNINGUR VIÐ STOPP- LEIKHÓPINN UM AÐSEMJA OG SETJA UPP LEIKSÝNINGU UM LÚTHER OG SIÐBÓTINA bjarnii | desember20ió | 11

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.