Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 14

Bjarmi - 01.12.2016, Side 14
Hvers vegna sækir iolk ekki kírkjjn*? VIGFÚS INGVAR INGVARSSON Þegar stórt er spurt verður oft lítið um svör. Athyglisverðar rannsóknir hafa þó verið gerðar í Ameríku til að svara þessari spurningu. Þó að margt sé þar öðruvísi í menningu og ekki síst kirkjulífi en við þekkjum hérlendis þá má ætla að nokkuð af niðurstöðunum megi heimfæra til íslands. Hafa má í huga að margt í þjóðfélags- þróuninni á Vesturlöndum síðustu áratugina er fjölþjóðlegt. Yngra fólkið er meira og minna undir sömu áhrifum, hverrar þjóðar sem það er, og margt í mannlegu eðli er óháð menningu. Kirkjusókn hefur vissulega verið langt- um meiri í Norður-Ameríku en Evrópu og kristni þar haldið meira á lofti í almennri þjóðfélagsumræðu. Það mætti jafnvel halda því fram að tengsl ríkis og kirkju hafi verið þar mikil þrátt fyrir formlegan aðskilnað þar á milli. Miðað við (sland hefur kristnilíf vestanhafs meira tengst reglulegri kirkju- sókn og virkri þátttöku í safnaðarstarfi sem hefur byggst á miklu sjálfboðastarfi og reglulegum fjárframlögum safnaðarfólks (tíund). Að vera virkur í söfnuði sínum hefur einnig oft skipt máli fyrir frama í atvinnulífi eða stjórnmálum. Vissulega er talað um minnkandi kirkjusókn víða í Evrópu en þess má minnast að þungamiðja kristni er að færast frá Vesturlöndum áokkartímum. Hnignunin í kirkjusókn og kirkjulegu starfi er hins vegar hraðari i Ameríku enda þar úr hærri söðli að detta. Hröð hnignun vestanhafs síðustu áratugí, sem sums staðar mætti kalla hrun, hefur þó að nokkru dulist fyrir mörgum. Sums staðar hafa innflytjendur, ekki síst frá Suður-Ameríku, fyllt nokkuð í skörðin sem heimafólk skildi eftir í kirkjunni. Annað, sem komið hefur í Ijós, er að ýmsar kannanir um kirkjusókn eru ekki marktækar. Þ.e. kannanir sem byggja á úrtaki fólks sem spurt er um kirkjusókn sína. Fjöldi fólks segist sækja kirkju miklu oftar en raun ber vitni - það virðist skammast sín fyrir að viðurkenna staðreyndina. Aðrar og lægri tölur koma fram þegar kirkjugestir eru einfaldlega taldir skipulega. ÁHUGAVERÐ BÓK En hér er komið að því að kynna bók sem barst mér nýlega í hendur og er kveikjan að þessari grein: Why Nobody Wants to Go to Church Anymore (Hvers vegna enginn vill lengur sækja kirkju, Group, 2013) eftir Tom og Joani Schultz. Þau hjónin hafa mikla reynslu af margvíslegu safnaðarstarfi og ráðgjöf og efnisgerð í því samhengi. Eftir áratuga vinnu við gerð kristilegs fræðsluefnis, einkum fyrir börn og unglinga, hafa Schultz-hjónin viðurkennt, að þau og útgáfufyrirtæki þeirra hafi einblínt um of á fræðslu sem grunn safnaðarstarfs og trúaruppeldis. Ekki að fræðslan skipti ekki máli en viðurkenna þurfi að trúin sé ekki námsefni - trúin er tengsl fremur en efni til að rannsaka. Schultz-hjónin tóku mikinn fjölda viðtala við fólk til að svara spurningunni um það, hvers vegna þetta fólk sækti ekki kirkju. Þess ber að geta að margt af þessu fólki ólst upp við reglulega kirkjusókn og þátttöku í safnaðarlífi og þekkti því vel til 14 | bjarmi | desember2m6

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.