Bjarmi - 01.12.2016, Page 17
Margir virðast ekki fá slíkum þörfum
fullnægt í söfnuðum en það er undirstrikað
að þó að fólk snúi baki við kirkjunni þá
merki það ekki að það þyrsti ekki lengur
eftir Guði og því sem Jesús Kristur býður.
Fólkið í þessum skoðanakönnunum
segist almennt trúa á Guð og telur trúna
mikilvæga. Fólk vill Guð en því finnst
söfnuðir oft ekki koma honum til skila.
Kjarni þess sem fólk tjáir er, að það
upplifi ekki návist Guðs í kirkjunni. Ef svo
er ekki þá dugar flest það sem þar er í
boði skammt, jafnvei vönduð predikun og
fræðsla. Það sem tjáð er í verki skiptir meira
máli en það sem sagt er. Miðlar söfnuður
kærleika Guðs? Minnumst þess að Jesús
hélt fram elsku til Guðs og manna sem
hinu æðsta boðorði.
Áskorunin sem skilin er eftir (og raunar
útfærð á ýmsan hátt í bókinni) er að skoða
safnaðarstarf og allt fyrirkomulag í kirkjunni
(t.d. skipan sæta) og framgöngu fólks í
Ijósi þess hvernig hvað eina stuðli að því
að tjá kærleika Guðs og efla kærleiksrík
samskipti á milli fólks.
Kærleikurinn sem Jesús sýnir og boðar
birtist með ýmsu móti. 1. Sem róttæk
gestrisni. 2. Óttalausar samræður. 3.
Ósvikin auðmýkt. 4. Guðleg eftirvænting.
Kröfur til leiðtoga
Það virðast gerðar miklar kröfur eða
e.t.v. aðrar kröfur, en oft hingað til, til
þeirra sem leiða safnaðarstarf. Líking er
tekin af leiðsögumanni í safaríferð í Afríku.
Flann vekur eftirvæntingu um að fólkið fái
að sjá áhugaverð villidýr. Eftirvæntingin
er raunhæf því að hann þekkir svæðið.
Hins vegar getur hann ekki lofað tiltekinni
upplifun. Hann sér svo líklega oftast
einhver áhugaverð dýr og reynir að hjálpa
fólki til að koma auga á þau. En svo eru
stundum einhverjir aðrir í hópnum fyrri til að
koma auga á dýrin.
Eftir stendur spurningin um það
hvort ekki þurfi meira til en akademíska
guðfræðimenntun til að geta vakið með
fólki eftirvæntingu um einhverja snertingu
Guðs og verið leiðsögumaður í leit fólks að
slíkri snertingu.
Ástæða er til að hvetja áhugasama til
að verða sér úti um bókina sem hér hefur
verið aðeins gripið niður í. Hér skulu svo
nefndar tvær eldri áhugaverðar bækur
um áþekk efni: Unleashing the Church:
Getting People Out of the Fortress and
into Ministry (Frank R. Tillapaugh) og
Hope for the Church: Contemporary
Strategies for Growth (Bob Jackson).
Sömuleiðis skal minnt á Náttúrulega
safnaðaruppbyggingu sbr. grein um hana
í síðasta tölublaði Bjarma. Margt fleira
gott mætti tína til í þessu samhengi en hér
verður þó látið staðar numið.
1Sjá bók hans, Guð sem kemur á óvart, Bókstafur, 2016.
2Why Nobody Wants to Go to Church Anymore, 26.
3Sama, 27.
bjarmi | desemlx'i 2016 | 17