Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.2016, Page 19

Bjarmi - 01.12.2016, Page 19
þess að viðurkenna og ræða efa sinn; það er gott að ræða efann.2 Því fleiri staðreyndir sem ég skoða, þeim mun sannfærðari er ég um að kristni er sönn. Það merkir til dæmis að kristni er rétt lýsing á því hver við erum, hvaðan við komum og hvert við stefnum, til hvers við erum hér og hvers virði við erum. Með því að nýta bæði vísindi og kristni öðlumst við góða þekkingu á því hvernig heimurinn varð til, hvernig hann verkar og hvernig tilvera okkar verkar í þessum heimi. Ég býð heiðarlegar spurningar vel- komnar og óttast þær ekki því ef kristni er sönn og rétt lýsing á raunveruleikanum (því hvernig hlutirnir eru í raun og veru) þá veit ég að það koma góð svör að lokum. Raunveruleikinn er einmitt það sem stendur eftir þegar aðrar hugmyndir hafa runnið sitt skeið á enda. Og ef kristni er ósönn vil ég sannarlega komast að því sem fyrst sömuleiðis. Vandamálið er því það að menn hvorki bera upp spurningar né hugsa rökrétt. Ég hvet þig því til að lesa þessa bók án þess að hafa ákveðið niðurstöðuna fyrirfram. Veittu sjálfum/sjálfri þér þann munað að takast af einlægni á við þær spurningar sem bókin tekur á eins og: • Trúi ég á Guð? Ef ekki, hverjar eru meginástæður þess og hvernig komst ég að þeirri niðurstöðu? • Af hverju er ég hér? • Hvers vegna varð heimurinn til? • Hefur lífið einhvern tilgang og einhverja merkingu? • Hvernig útskýri ég tilvist lífsins? • Hver eða hvað ákveður hvað er rétt og hvað er rangt? Ef enginn er nokkurn tímann tilbúinn að skipta um skoðun verður aldrei neinn framgangur á þekkingu í heiminum. Sá sem virkilega vill læra þarf því að hafa vissa auðmýkt gagnvart eigin afstöðu og hugrekki til að líta hlutlaust á staðreyndirnar eftir bestu getu. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni http://www.guderekkidainn.is '• Dallas Willard, The Allure of Gentleness: Defending the Faith in the Manner of Jesus (New York: HarperCollins, Kindle Edition 2015), 17. 2 Sama rit, 27-28. bjarmi | desember20i6 | 19

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.