Bjarmi - 01.12.2016, Síða 20
Krnstíleg vakjiing
meðal lloinahVillvs
VIGFÚS INGVAR INGVARSSON
Á miðöldum barst sérstök þjóð til Evrópu,
alla leið frá Indlandi, oft kölluð sígaunar
eða á ensku Gypsies en það heiti mun
dregið af þeirri skröksögu að fólkið væri
frá Egyptalandi. Sjálf kalla þau sig Róma
sem þýðir manneskja. Þorleifur Friðriksson
sagnfræðingur fjallar um Rómafólkið í nýrri
bók sinni: Hulduþjóðir Evrópu - Ferð um
framandi samfélög.' Þetta fólk hefur víða
verið ofsótt öldum saman og hlaut sína
helför undir veldi nasista á líkan hátt og
Gyðingar.
Flökkueðli virðist Rómafólki í blóð borið
og samkvæmt hefðinni ferðast það um á
stórum hestvögnum sem tjaldað er yfir.
Það sætir enn oft illu umtali, svo sem víða
í Suðaustur-Evrópu. Sagt vera þjófótt, latt
og lygið. Satt virðist það vera, að ekki er
fátítt að þetta fólk afli sér tekna með mjög
vafasömum hætti jafnvel hnupli.
Hefðbundið mun að Rómafólk tilheyri
almennt kaþólsku kirkjunni en hugmyndir
og siðferði þess þó ekki endilega í samræmi
við almennar kenningar rómversk-kaþólsku
kirkjunnar eða annarra kirkjudeilda.
Nú heyrist af markvissri trúarvakningu
á meðal þessa fólks í Englandi og áhrifin
ná væntanlega víðar hjá þessu hreyfanlega
fólki. Á fréttavef Breska ríkisútvarpsins var
grein um þessa vakningu.2
Mikill fjöldi Rómafólks í Englandi hefur
gengið til liðs við hreyfinguna Ljós og líf
(Light and Life). Þetta fólk hefur snúið baki
við áfengisdrykkju og því að spá fyrir fólki.
Margt af þessu fólki hefur einnig sagt sig
frá aðild að kaþólsku kirkjunni. Allt á að
verða nýtt.
Þessi hreyfing lýtur forystu fólks úr eigin
röðum og fullyrðir að á u.þ.b. 30 árum hafi
um 40 af hundraði Rómafólks í Bretlandi
gengið í hana.
Boðun og þjónusta innan þessarar
hreyfingar leggur áherslu á náðargjafir,
tungutal og trúarlegar lækningar. Rredik-
unin er einföld og skýr.
Sagt er að upp úr 1980 hafi komið
boðunarhópur Rómafólks frá Frakklandi
og ferðast um Norðaustur-England.
Hann tilheyrði samsvarandi hreyfingu á
meginlandinu (Vie et Lumiére) sem mun
hafa orðið til meðal eftirlifenda helfararinnar
í síðari heimstyrjöldinni.
Frá Wales berast fréttir af kristilegu móti
Rómafólks þar sem sjö hundruð vögnum
var raðað í kringum risastórt samkomutjald
og 6.000 af Rómfólki hlýddu á predikanir
og báðust fyrir.
Diane Stephenson, sem eftir 10 ára hik
gekk til liðs við hreyfinguna, segir: „Móðir
mín var vön að spá fyrir fólki og selja
verndargripi... mér fannst ekkert rangt við
það ... en í Biblíunni segirað við eigum ekki
að fást við galdur eða spásagnir."
Ýmsir vitna um nýjan kraft til að takast
á við freistingar lífsins og nýja möguleika til
heiðarlegra og sannara lífs.
1Sjá viðtal í Fréttatímanum 18/11 2016, bls. 20.
2„How Gypsies have moved from fortune-telling to fervent Christianity“, e. Alex Strangwayes-Booth.
http://www.bbc.com/news/uk-england-38016090 (sótt 20/11 '16).
20 | bjarmi | desember2oi6