Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2016, Blaðsíða 26

Bjarmi - 01.12.2016, Blaðsíða 26
B ma I UMSJA MAGNUSAR VIÐARS SKÚLASONAR DRAMATÍSKUR TÖLVUPÓSTUR Eldri hjón úr Hafnarfirðinum höfðu ákveðið að núna um jólin myndu þau endurtaka 20 ára gamla jólaferð sem þau fóru til Kanarí á sínum tíma. Hugmyndin var að endurgera ferðina sem mest eins og ferðin hafði verið 20 árum fyrr enda hafði hún tekist með eindæmum vel og er enn talað um að þetta hafi verið besta jólaferð sem þau hafa nokkurn tímann farið í. Hjónin voru mjög upptekin í sínum störfum og voru bæði mikið á faraldsfæti sökum þess. Það reyndist því þrautinni þyngra að samhæfa ferðaáætlanir þeirra í desember. Niðurstaðan varð sú að þar sem maðurinn var að koma til baka frá Asíu, þá myndi hann taka skiptiflug í gegnum London og fljúga þaðan beint til Kanarí. Konan hans myndi síðan koma daginn eftir frá Bandaríkjunum, taka sams konar flug í gegnum London til Kanarí. Þegar maðurinn var kominn á staðinn, þá skráði hann sig inn á sama hótel og þau höfðu verið á fyrir 20 árum. Það gekk síðan eftir að hann fékk sama herbergið og þau voru í á sínum tíma. í gleði sinni þá ákvað maðurinn að senda konunni sinni tölvupóst og láta hana vita af því hvernig hefði gengið og hvernig staðan væri. Hins vegar gerði maðurinn dálítil mistök þegar hann sló inn tölvupóstfangið og áttaði sig ekki á mistökunum þegar hann sendi tölvupóstinn. Á meðan allur þessi hamagangur átti sér stað þá var ekkja nokkur að koma heim til sín eftir jarðarför eiginmanns síns. Maðurinn hafði verið prestur til margra ára norður í landi og bar andlátið brátt að þar sem hann hafði fengið hjartaáfall. Ekkjan settist niður fyrir framan tölvuna sína og ákvað að lesa þau skilaboð sem hún taldi sig hafa verið að fá frá vinum og vandamönnum vegna þessa atburðar. Eftir að hún las fyrsta tölvupóstinn þá leið yfir hana. Sonur hennar kom þá inn í herbergið til að sinna móður sinni en leit síðan á tölvuskjáinn og sá þessi skilaboð: 77/: Mín elskulega eiginkona Efni: Ég er kominn! Dags: 15. desember 2016 Ég veit að það kemur þér á óvart að heyra frá mér. Þeir eru með tölvur hérna núna og það er í lagi að senda tölvupóst til ástvina hérna. Ég er nýkominn og búinn að skrá mig inn. Ég sé að allt er til reiðu fyrir komu þína hingað á morgun. Hlakka mikið til að sjá þig. Vona að ferðin þín verði ekki eins leiðinleg og mín. E.S. Það er svakalega heitt hérna niðri! KRÖFUHARÐI JÓLASVEINNINN Atli litli fór með pabba sínum í IKEA til að hitta jólasveininn. Búið var að auglýsa með góðum fyrirvara að jólasveinninn yrði á svæðinu og hægt væri að setjast í fangið á honum og jafnvel að fá Ijósmynd af sér með sveinka. Feðgarnir stóðu í röð í dágóða stund þar til röðin kom að Atla litla. Jólasveinninn spurði Atla hvað hann langaði í í jólagjöf. Atli svaraði: „Playmo- slökkvistöð og Star Wars-geimskip.“ Sveinki sagði þá og brosti breitt: „Það er nú aldeilis, við skulum sjá hvað er hægt að gera í því.“ Seinna um daginn voru þeir feðgar á röltinu í Kringiunni og sáu að þar var líka jólasveinninn að bjóða þeim sem vildu að setjast í fangið á sér og ræða aðeins málin. Atli litli lét ekki bjóða sér það tvisvar heldur brunaði í átt að sveinka og hoppaði í kjöltuna hjá honum. Jólasveinninn spurði Atla litla hvað hann langaði í jólagjöf. Atli fór með sömu rulluna og áður: „Playmo- slökkvistöð og Star Wars-geimskip.“ Jólasveinninn hló og spurði Atla þá móti: „Ætlar þú þá að vera góður strákur og hlýða því sem pabbi þinn segir?“ 26 | bjaraii | september 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.