Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2016, Síða 28

Bjarmi - 01.12.2016, Síða 28
Eitthvað uppbyggilegt að horfa á 11111 jólin RAGNAR GUNNARSSON Nóg er af sjónvarpsefni um víðan völl. Gæði og innihald geta þó verið mjög misjöfn. Þess vegna er ekki úr vegi að benda á gott og uppbyggilegt efni sem tiltölulega auðvelt er að nálgast með löglegum hætti. Kvikmyndin The Nativity story (Jóla- frásagan) var gerð fyrir 10 árum og gekk þá í kvikmyndahúsum borgarinnar. Þessi mynd er víða til á DVD heima hjá fólki og gæti leynst víðar. Myndin er sagan af Maríu og Jósef og spennunni þegar uppgötvast að María er ólétt. Fylgst er með ferðinni til Betlehem, vitringunum og hermönnum Heródesar, leitinni að gististað og fæðingu frelsarans. Þessi kvikmynd er klassísk og vel þess virði á aðventu eða jólum að verja tíma í að fara gegnum frásögu jólanna með þessum hætti. Myndin fær einkunnina 6,8 álMDB. Kvikmyndin Miracles from Heaven (Kraftaverk frá himnum) kom út fyrr á þessu ári og er aðgengileg á kvikmyndaleigum símafyrirtækjanna með íslenskum texta. Kvikmyndin byggir á sönnum atburðum sem áttu sér stað í Beam-fjölskyldunni. Móðirin Christy uppgötvaði að tíu ára gömul dóttir hennar, Anna, væri með mjög sjaldgæfan, ólæknandi sjúkdóm og fer upp frá því að leita lausnar og lækningar fyrir dóttur sína. Eftir alvarlegt slys sem Anna hafði lent í kom í Ijós að óvenjulegt kraftaverk átti sér stað í kjölfar björgunaraðgerða en sérfræðingum í læknastétt fannst þetta undarlegt. Ávöxturinn var ómæld blessun tyrir fjölskylduna og samfélaginu sem þau bjuggu í til hvatningar. Tengslin við kirkjuna og trúarganga fjölskyldunnar skipti einnig miklu máli. Myndin fær einkunnina 6,9 á IMDB. Kvikmyndin Risen (Upprisinn) kom út í aðdraganda páska og var sýnd víða í kvikmyndahúsum þó svo hún rataði ekki þangað hér á landi. En hún er aðgengileg með íslenskum texta á kvikmyndaleigum símafyrirtækjanna. Kvikmyndin fylgir frásögu Biblíunnar um krossfestingu og upprisu Jesú. Sagan er að miklu leyti sögð frá sjónarhorni Klavíusar, valdamikils rómversks herforingja sem þarf, ásamt öðrum, að tryggja að gröfin sé vöktuð og síðan að glíma við leyndardóminn, hvað varð um líkama Jesú eftir dauða hans. Við fylgjum Jesú þegar hann birtist lærisveinunum í Jerúsalem og eins för eða flótta þeirra norður eftir til Galíleu, þar sem Jesús birtist þeim aftur og að lokum, fyrir uppstigningu sína. Kvikmyndin fær einkunnina 6,3 á kvikmyndavefnum IMDB. Kvikmyndin Ben Húr var frumsýnd hér á landi og víða um heim fyrr á árinu. Myndin segir fræga sögu tveggja vina sem alast upp saman og svo skilja leiðir. Sagan gerist á tímum Jesú og hefur áður verið kvikmynduð, á undan þessari var stórmyndin Ben Húr sem gerð var 1959, hlaut verðlaun og gerði garðinn frægan. Myndin frá 1959 fær einkunnina 8,1 á IMBD en sú nýja 5,9. í báðum tilvikum er það sama sagan með sterkum boðskap eins og skáldsagan sjálf. 28 | bjarmi | desember20ió

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.