Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 32

Bjarmi - 01.12.2016, Side 32
Látill Heímixr ÞÓ MARGT SÉ ÓLÍKT EIGUM VIÐ MARGT SAMEIGINLEGT KARÍTAS HRUNDAR PÁLSDÓTTIR Karítas Hrundar Pálsdóttir stundaöi nám í japönsku við Waseda háskóla í Tókýó síðastliðið skólaár. f síðasta tölublaði sagði hún frá upplifun sinni og þátttöku í safnaðarstarfi í lchigaya kirkju, sem er lútersk kirkja í Tókýó. Þá lýsti hún messu í lchigaya kirkju og bar hana saman við það messuform sem hún er von úr þjóðkirkjunni á íslandi. Hér segir Karítas nánar frá safnaðarstarfinu og kynnum sínum af fólkinu í söfnuðinum. Síðastliðið haust ferðaðist ég yfir hálfan hnöttinn til að stunda nám í japönsku við Waseda háskóla í Tókýó. Þegar ég kom fyrst til Japan var margt sem kom mér „spánskt" fyrir sjónir. Að mæta í kirkju í Japan var engin undantekning. En þrátt fyrir að margt í lchigaya kirkju væri ólíkt því sem ég var vön heima á íslandi upplifði ég mig strax heima. Ástæðuna tel ég vera hve vel söfnuðurinn tók á móti mér. Fyrst þegar ég kynnti mig fyrir fólki í kirkjunni voru viðþrögðin eins og ég hafði oft upplifað áður í Japan. Viðmælandinn endurtók nafnið mitt: „Karítas. h 'J ? X. Ka-ri-ta-su“. Síðan bætti hann við afsakandi: „Ég er hræddur um að það eigi eftir að taka mig langan tíma að læra nafnið þitt.“ Ég brosti bara og skyldi það mæta vel. Ég átti sjálf erfitt með að muna öll japönsku nöfnin. Ég gat ekki nýtt sömu minnistækni og á íslandi. Þarna var engin Guðrún eins og frænka mín eða Snorri eins og Snorri Sturluson, heldur nöfn á við Yuri, Yoko, Masato, Kentaro og Kazuki. En svo var það einu sinni sem einhver sagði: „Ah! Karitas eins og háskólinn". Ég skildi ekki við hvað var átt. Síðan þá kom það nokkrum sinnum fyrir að fólk tengdi nafn mitt við þennan háskóla. ii ) 9 X/ Karitasar háskóli er kaþólskur kvennaskóli í Tókýó. Mér finnst skemmtilegt að nafnið mitt, sem kemur úr latínu, þekkist ekki einungis í Evrópu heldureinnig ÍJapan. Það 32 | bjarmi | desember20ió

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.