Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.2016, Qupperneq 33

Bjarmi - 01.12.2016, Qupperneq 33
er eitthvað notalegt við það að sömu orðin séu notuð í ólíkum heimsálfum. Þegar ég var svo spurð hvað nafnið mitt merkir kom í Ijós að ég á „nöfnu“ í söfnuðinum. Ein stúlkan heitir Ai sem þýðir einnig kærleikur. Allar þessar tengingar eru skemmtilegar. Mér finnst þær dæmi um hvað við eigum margt sameiginlegt -já, þetta er lítill heimur. Mérfannst ég strax verða hluti af „kirkju- fjölskyldunni". Ég upplifði að samskipti fólks í kirkjunni voru mun persónulegri en í skólanum og börnin full af fjöri. Áður en ég mætti í kirkjuna í fyrsta skipti hafði ég aðeins séð prúðbúin börn á leið heim úr skólanum. Krakkarnir í kirkjunni sóttust eftir athygli þeirra eldri og skriðu upp í fang vina og kunníngja. Með öðrum orðum voru samskiptin eins og í íslensku fjölskylduboði sem mér þótti mjög notalegt. Mér fannst dýrmætt að fá að vera hluti af japönskum söfnuði. Að fá tækifæri til að umgangast Japani á öllum aldri var einstakt. Mér fannst það sérstaklega dýrmætt í Ijósi þess að á háskólasvæðinu var aðallega ungt fólk og stór hluti skiptinemar. Kirkjuna sækja börn á leik- og grunnskólaaldri, fólk á mínum aldri, feður og mæður, afar og ömmur. Þegar ég kom fyrst þótti mér vænt um það að eldri kona kom til mín og sagði mér að sonur hennar hefði verið í Waseda háskóla. Með því að benda á að við ættum þetta sameiginlegt upplifði ég að hún byði mig velkomna í kirkjuna. Þegar líða tók á haustið og ég fór að venjast lífinu í Tókýó fór lífið að taka á sig hversdagslegri blæ. Ég mætti í skólann sex daga vikunnar og hjólaði í kirkjuna á sunnudögum. Messan hófst klukkan 10:30 og eftir hana var sameiginlegur hádegismatur. Að honum loknum voru æfingar ungmennakórs kirkjunnar og kirkjukórsins. Ég var boðin velkomin í báða þessa kóra. Það er margt sterkt söngfólk í söfnuðinum og því fannst mér gaman að fá að vera hluti af þessum flottu kórum. Kóræfingarnar voru allt að fjögurra tíma langar. Þegar ekki voru kóræfingar eftir messu voru aldursskiptir fundir um málefni safnaðarins. Ég varði því öllum deginum í kirkjunni og kom oft ekki heim fyrr en um kvöldmatarleyti. í októbermánuði voru nokkrar kirkjur í Tókýó með sameiginlega tónleika. Þar söng ég með ungmennakórnum meðal annars „Oh, Happy Day“ sem ég þekki úr kvikmyndinni „Sister Act 2“. Það minnti mig á þar síðasta sumar þegar ég vann í eldhúsinu í Vatnaskógi með hressum stelpum. Þá spiluðum við þetta lag aftur og aftur og sungum hástöfum með. Já, heimurinn er lítill. Ungmenni í Japan og á fslandi syngja sömu lögin. í lok nóvember var kirkjukórinn með aðventutónleika. Lögin sem við sungum voru bæði á japönsku og latínu. Mér þótti ögn erfitt að ná japanska framburðinum á latínunni en hafði gaman af. Japönsku lögin voru þó í uppáhaldi hjá mér. Þau voru svo hæg að ég náði yfirleitt að lesa textann. í japönsku eru þrjú stafróf og eru þau misflókin fyrir Vesturlandabúa að lesa. Sálmarnir sem ritaðir voru með hiragana bjarmi | desember20i6 | 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.