Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2016, Síða 42

Bjarmi - 01.12.2016, Síða 42
SAMHENGI AFBROTA OG SKAMMAR Athyglisvert er hve lítið samhengi er oft á milli brota eða vanrækslu annars vegar og hins vegar sektarkenndar og upplifunar á skömm. Fólk sem ekki má vamm sitt vita getur verið heltekið af skömm en harðsvíruðustu afbrotamenn að mestu lausir við hana. Sektarkennd má í grófum dráttum skipta í tvo flokka:1 a) Viðeigandi og rökrétt sektar- kennd, þ.e. vegna einhvers sem hefur verið sagt eða gert sem hefur skaðað einhvern. b) Hugsýkisektarkennd (nevrótísk). Slík sektarkennd er lítið háð þeim skaða sem valdið hefur verið heldur stjórnast af þeim innri sársauka sem orð, gerðir eða hugsun veldur. Mjög sterk, inngróin vitund um að vera sek. Þess má geta, að við lifum á tímum upplausnar margra gilda og mismunandi hugmyndir um hvað teljist rétt eða rangt, dynja á okkur úr ýmsum áttum. Það kann því að vera erfitt að hafa góða samvisku og skýra vitund um að fylgja því rétta. Þetta veldur vanda sem getur ratað inn á borð þeirra sem fást við sálgæslu eða geðræn vandamál. Um orsakir réttmætrar, hlutlægrar sekt- arkenndar og þá oft meðfylgjandi skamm- ar þarf vart að fjölyrða. TILURÐ ÓRÉTTMÆTRAR SKAMMAR Hugsýkisektarkennd getur mótast í upp- eldi og eða vegna ýmissa áfalla sem fólk verður fyrir. Hún getur jafnvel erfst að einhverju leyti,2 þ.e. fólk getur tekið inn á sig skammartilfinningu úr fjölskyldunni án þess jafnvel að þekkja orsakir þess að fólk skammaðist sín. Afbrot valda ekki alltaf mikilli sekt- arkennd og skömm en skömm þróast oft vegna einhvers sem fólk hefur orðið fyrir og ber engan veginn ábyrgð á. Þetta er t.d. þekkt hjá fólki sem hefur orðið fyrir einhvers konar misnotkun sbr. slagorðið um að „skila skömminni þangað sem hún á heima." Þarna er um að ræða skýr dæmi um mun skammar og sektar. Hjá fólki og þá sérstaklega börnum er tilhneiging til að reyna að setja hlutina í rökrétt, sanngjarnt samhengi. Barn sem verður fyrir miklu ofbeldi, vanvirðingu, vanrækslu eðamisnotkun hefur tilhneigingu til að kenna sér um. Hafa ber í huga hve ung börn eru háð þeim sem annast um þau og að þetta fólk er nánast fullkomið I augum barnsins. Það getur ekki áttað sig á breyskleika foreldris en tekur fremur á sig ábyrgð á því sem illa fer. Því finnst að það hljóti á einhvern hátt að hafa unnið til þessarar meðferðar. Þetta er fyrir barni rökrétt orsakasamhengi sem vissulega getur framkallað skömm. Að sjálfsögðu getur hlutlæg og huglæg sektarkennd blandast saman I ýmsum hlutföllum. Skömm er stundum beitt sem stjórn- tæki (fjölskylda, vinnustaður, söfnuður o.s.frv.) þ.e. að fólk er niðurlægt með ýmsum hætti til að halda því auðsveipu undir valdi. í trúarlegu samhengi er þetta skelfileg misnotkun sem brýtur fólk mjög illa niður og getur skaðað mynd þess af Guði alvarlega.3 EINKENNI HUGSÝKISEKTARKENNDAR Það einkennir hugsýkisektarkennd að hún: a) Læknast ekki við einhvers konar játningar-(aflausnar)ferli, b) beinist að fremur léttvægum atriðum eða ímyndum (hugsunum) og tilfinningum, c) dugar sjaldnast til að bæta úr einhverju eða skapa varanlegar breytingar á hegðun, d) kann að skapa einhvers konar sjálfsrefsingarhvöt.4 Fólki með hugsýkisektarkennd getur létt við að „vera barið niður" t.d. af harðri predikun (léttir að vanlíðan). Hugsýkisektarkennd tengist einhvers konar sálarlegum vanþroska, ótta við refsingu eða höfnun. Slík sektarkennd er oft sprottin af því að finna sig brjóta gegn einhverju banni foreldra sem orðið hefur inngróið hjá viðkomandi.5 Þarna er um vissa þráhyggju að ræða fremur en frjálsa, rökræna siðferðilega dóma. Skömmin er þá oft undirliggjandi ótti við að nást, vera afhjúpuð og hljóta refsingu.6 Óeðlileg eða illviðráðanleg sektarkennd tengist gjarnan of ströngu gildakerfi. Náðin kemst ekki að og þörf er fyrir heilbrigða, kristilegra samvisku þar sem kærleikur Guðs knýr áfram fremur en ótti. Sjúklegri sektarkennd verður varla af komið í skyndingu - sjálfsfyrirgefning er m.a. nauð- synleg. Hugsýkissektarkennd sem tengist léttvægum atriðum kann einnig að vera hula yfir eitthvað dýpra undirliggjandi. Þrálátri, hamlandi sektarkennd fylgir oft einhvers konar lögmálshyggja (hvort sem hún telst orsök eða afleiðing) - tilhneiging til að hafa reglur að viðmiði í líf sínu fremur en grundvallarsjónarmið. Þessu fylgir gjarnan fullkomnunarárátta. NEIKVÆÐAR AFLEIÐINGAR SKAMMAR Skömm fylgir skert sjálfsvirðing, skert félagsgeta og einmanaleiki - neikvæð til- finning fyrir því að vera öðruvísi - ekki fyllilega gjaldgeng. Úthverft fólk á reyndar til að auglýsa skömm/sérleika sinn með ýkjukenndum hætti - hneykslanlegum trúðslátum, líkum þeim sem við sjáum í dönsku gamanþáttunum Klovn þar sem gert er út á að fara út fyrir velsæmismörk. Skömm skerðir frelsi og að einhverju leyti persónuþroska og virkar sem viss stýring (stjórnin tekin af fólki í einhverju samhengi). Skömm fylgir tilhneiging til að draga sig í hlé, fara í felur, og minnimáttarkennd, stundum tengd því að tilheyra hópi sem litið er niður á. Skömm hefur að gera með tengsl eða afstöðu gagnvart sjálfum sér, Guði og öðru fólki.7 Skömm getur gengið svo nærri fólki að það svipti sig lífi. SKÖMM OG FÍKN Rannsóknir benda til að skömm, jafn- vel þó að tilefnið sé óljóst, sé oft undirrót áráttuhegðunar eða fíknar. Mikilvægter, eins og áður segir, að greina á milli raunverulegrar sektar og skammartilfinningar svo sem hjá þolendum misnotkunar. 42 | bjarmi | desember20ió

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.