Bjarmi - 01.12.2016, Blaðsíða 43
bjarmi desember 2016 43
S k ö m m
getur verið eins
og eldsneyti fíknar.
Innri ófullnægja
og vanlíðun kallar
á einhverja deyfingu.
Mikilvægt er að átta
sig á þeim misskilningi
að fíklar kunni ekki að
skammast sín - það er frekar
að þeir skammist sín svo mikið
að þeir geti hvorki horfst í augu við
sig sjálfa eða aðra án þess að vera undir
deyfandi áhrifum.
Skömmin hamlar þá að viðkomandi
geti breytt um stefnu, horfst í augu við
stöðu sína og unnið úr málum.
Margir hafa heyrt um mann sem
gengið hefur undir nafninu Lalli Johns.
Hann var þekktur að því að fara inn og út
úr fangelsi áratugum saman. Svo gerðist
það að sjónvarpið tók viðtal við hann á
Litla-Hrauni. Hann var allt í einu spurður
álits, virtur sem viðmælandi í Kastljósi.
Hann fékk jafnframt að opna á og orða
sársauka vegna óréttlætis sem hann hafði
verið beittur en hafði legið í þagnarbanni. í
kjölfarið fékk hann viðurkenningu á að hafa
verið beittur alvarlegu ofbeldi.
Hann lauk sinni þáverandi afplánun
- síðan hefur hann ekki komið inn fyrir
fangelsisdyr.
Málið er þá ekki að taka sig á og losna
þannig við skömmina, nei, það snýst um
að losna undan skömminni til að geta tekið
sig á.
BIBLÍULEGT HUGTAK
Skömm er vissulega biblíulegt hugtak
sem birtist strax þegar Adam og Eva fela
sig í skömm sinni fyrir Guði og oft er þess
óskað
og spáð í
Gamla testamentinu,
að óvinirnir verði sér til skammar.
Útskýringar á eðli og afleiðingum
skammar eru þó ekki auðfundnar. í
guðspjöllunum er hins vegar mikil áhersla
á að mæta neikvæðum afleiðingum
skammar. Jesús gengur um og reisir
fólk upp undan skömm. Alls kyns
niðurbrjótandi niðurlægingu vegna kyns,
kynþáttar, sjúkleika, starfs o.s.frv. Og þá
í mörgum tilfellum vegna vangetu til að
fylgja flóknum og erfiðum reglum sem fólki
var talin trú um að væri forsenda bæði
viðurkenningar og virðingar samfélagsins
og þess að vera samþykkt af Guði.
Þarna birtist sá skilningur Jesú að •
syndin sé ekki einstök verk heldur fremur :
afstaða (sem vissulega hefur áhrif á
verkin). í Nýja testamentinu hefur orðið J
synd (gríska, hamartía) merkinguna „afr ,
'Sjá Howard Clinebell, Basic Types of Pastoral Care & Counseling : Resources for the Ministry:of ;
Healing and Growth, 1984, 14f.
2Sumt í þessari grein er byggt á kennslu Téo van der Weele og bók hans, From Shame to
sjá greinina „Frá skömm til friðar - sálgæsla og stuðningur við þolendur kynferðislegrar misnotkun
Kirkjuritið 2. tbl. 1999.
3Sjá greinina „Trúarlegt ofbeldi", Bjarmi 3. tbl. 2004, um guðsmyndina, sjá Guð sem kemur á óvart
4Clinebell, 150.
5Sama, 141.
6Sama, 142.
TRE (þýska guðfræðiorðabókin) 30. bindi, „Scham", 65 (65-72).
Tólf sporin -Andlegt ferðalag - Vinnubók, nýjasta útg. er frá 2015.
i' 9