Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 49

Bjarmi - 01.12.2016, Side 49
FRETTAMOLAR Aiiiiír á Ílalíii Með aukinni djöfladýrkun vex eftirspurn eftir hjálp vegna illra afla á Ítalíu Mjög hefur færst í vöxt að prestar á Ítalíu séu beðnir um aðstoð vegna illra afla sem fólk finnur fyrir eða af fólki sem telur sig haldið af eða undir áhrifum illra anda. í sumum borgum er stöðugur straumur fólks til þeirra presta rómversk-kaþólsku kirkjunnar sem sérhæfa sig í þessari þjónustu. Di Fulvio er einn þeirra og segir að greina þurfi vel á milli þeirra sem haldnir eru illum öndum og þeirra sem þjást af krónísku þunglyndi eða geðsjúkdómi. Djöfullinn hefur það hins vegar á dagskrá að sannfæra fólk um að hann sjálfur sé ekki til. Meðal þess sem hjálpar Di Fulvio og samferðamönnum hans að greina á milli sjúkra og þeirra sem eru undir áhrifum Satans er að fylgjast með andlitsdráttum, raddbeitingu, hverju fólk skyrpir út úr sér, að fólk talar fornt tungumál sem það hefur ekki lært, eins og hebresku, forngrísku eða latínu, óvenjulegur líkamlegur styrkur sem fólk býr að jafnaði ekki yfir og hörkuleg viðbrögð við bænum og helgu vatni. Presturinn nefnir einnig að oft megi rekja hin illu áhrif til þátttöku í Satans-messum eða þátttöku í djöflatrúarhópum. Fjöldi þeirra sem leita á vit töframanna, norna, sjáenda og stjörnuspekinga hefur aukist til muna á liðnum árum. Sumir sem veita þjónustuna nýta sér örvinglaða neytendur, en meðal þessa fólks eru líka einstaklingar sem eru djöflatrúar. Prestar sem reka út ill öfl af fólki nota krossa, heilagt vatn og bænir sérsniðnar fyrir tækifæri sem þessi. Til að hjálpa þarf oft að leiða skjólstæðinginn í gegnum andlegt ferðalag og ræða við nánustu ættingja og geðlækna til að útiloka að um læknisfræðilegan vanda sé að ræða. http://www.breitbart.com/ london/2016/10/13/report-satanism- grows-italy-experiencing-boom-exorcisms/ Téo eim á ferðiimi Hollenski guðfræðingurinn Téo van der Weele [frb. Veile], sem á drjúgan hóp aðdáenda hérlendis, stefnir að því að heimsækja okkur enn einu sinni. Hann hefur haldið undraverðu þreki þótt aldur færist yfir. Áformað er að hann fljúgi hingað 2. febrúar á næsta ári og heimleiðis þann 15. Námskeið verður væntanlega með honum í Lindakirkju fyrri helgina en gert ráð fyrir að þá síðari verði hann á Austurlandi. Téo er þekktur fyrir sína miklu innsýn í sálgæslu og alúð við að auka skilning á málum fólks sem orðið hefur fyrir misnotkun og þá að efla stuðning við slíkt fólk. Hann hefur beitt sér mikið fyrir grunnþjálfun leikfólks til sálgæslu og að styrkja samvinnu milli fagfólks og sjálfboðaliða á þessu sviði. Með aldrinum virðist Téo leggja meiri áherslu á hin einföldustu grundvallaratriði eins og blessandi viðhorf og framgangs- máta fólks. Áhersla hans í kennslu nú verður einmitt á blessun en lengra og vel sótt námskeið hans í fyrra, í Lindakirkju og Vídalínskirkju, beindist einmitt að því að blessa. Út frá því spratt „blessunarhópur“ sem hefur hist í Hjallakirkju. Kristnir flóttameim beittir ofbeldi Samkvæmt skýrslu Opinna dyra (Open Doors) í Þýskalandi hefur kristið fólk í sumum flóttamannabúðum í Þýskalandi mætt ofsóknum og ofbeldi. Hópur ungra karlmanna réðst á konu frá írak fyrir það að útbúa sér mat á meðan ramadan, föstumánuður múslíma stóð yfir fyrr á árinu, þó svo þeir vissu að hún væri kristin. Synir hennar urðu einnig fyrir barsmíðum. Viðtal var tekið við 753 flóttamenn, flestir þeirra voru kristnir. Flestir höfðu annaðhvort orðið fyrir morðhótun, líkamlegu eða kyn- ferðislegu ofbeldi í flóttamannabúðunum, þar af sögðu 83% hafa upplifað slíkt oftar en einu sinni. Af skýrslunni má ráða að mörg fórnarlambanna eigi erfitt með að segja frá og tilkynna atburðina, bæði vegna skammar og auk þess er fólk ekki vant því að geta treyst lögreglunni í heimalandi sínu. Þeir sem ofbeldinu beita þvertaka gjarnan fyrir eða eru með allt aðrar útgáfur af því sem gerðist. Þar fyrir utan óttast fólk afleiðingarnar fyrir sig sjálft eða nánustu ættingja ýmist í Þýskalandi eða heimalandinu. Rúmlega helmingur þeirra sem tóku þátt í rannsókninni kemur frá Sýrlandi og (rak. Oft eru hinir seku aðrir flóttamenn, en einnig er talað um gæslufólk í flóttamannabúðunum sem brjóti á þeim beint eða með því að þegja. Niðurstaða skýrslunnar er að hvetja til aukinnar aðgreiningar í búðunum, eða að jafnmargir kristnir og múslímar séu á sama stað. Einnig að kristið fólk og aðrir trúarlegir minnihlutahópar búi í sér herbergjum eða íbúðum, hugsanlega utan búðanna og að fjölgað sé í hópi gæslufólks sem ekki er múslímar. Kristið flóttafólk þarf kristið fólk sem styður við það og sem það getur leitað til þegar vandamál koma upp. Tro og mission, nr. 20, 18. nóvember 2016. VII bjarmi | desember2oi6 | 49

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.