Bjarmi - 01.12.2016, Síða 54
HALLGRÍMUR
ER MJÖG
UPPTEKINN AF
HVERFULLEIK
TILVERUNNAR
OG YRKIR
NOKKRA SÁLMA
UM FALLVELTI
MANNLÍFSINS
Píslarsögunnar, hann lýsir því sem gerist út
frá frásögn guðspjallanna og leggur út af
því í einföldu máli og stuttum setningum,
sem hvert barn skilur. Því fylgir síðan
eintal skáldsins við sína eigin sál („Sál mín,
skoðum þá sætu fórn“ o. s. frv.) og hvaða
lærdóm, trúarlegan og siðferðilegan, megi
af efninu draga. Sérhver sálmur endar svo í
raun á áminningu, bæn og lofgjörð.
Skáldið stillir sjálfum sér upp gagnvart
þjáningum Jesú sem syndaranum, sem
Jesús deyr fyrir. Dauði Jesú á krossi er
alltaf það líknarmeðal, sem verður hans
frelsun frá eilífum dauða og vörn fyrir „þeim
háa dómi“. Hallgrímur er alltaf einhvern
veginn hann sjálfur í sálmunum, lífsreynsla
hans og djúp lífsspeki skín þar hvarvetna
í gegn.
Hann er þar alltaf með syndavitund
sína á eintali við Guð sinn, um leið og hann
bendir öðrum á hjálpræðisveginn, veginn
til lífsins. Þetta tjáir hann á persónulegan
hátt með margs konar orðalagi, eftir því
sem píslarsagan gefur tilefni til hverju sinni,
með þeirri trúarauðmýkt og andagift, sem
gengur hverri manneskju til hjarta.
Kannski er þar að finna einn leyndar-
dóminn að vinsældum Passíusálmanna,
þeir ná til hjartans.
í Hallgrímskveri eru fimm Passíusálmar;
hinn fyrsti, áttundi, tuttugasti og fimmti,
fertugasti og fjórði og fimmtugasti sálmur,
auk formálans. Guðhræddum lesara
heilsun, sem jafnan fylgir hverri útgáfu.
Um það má deila, hvaða sálma skuli taka í
slíka útgáfur, þar sem pláss er takmarkað,
en vart orkar það tvímælis, að áðurnefndir
fimm sálmar standi meðal hins besta.
Aðrir sálmar og kvæði
En víkjum nú að öðrum sálmum og
kvæðum Hallgríms. Áður var minnst á
Samúelssálma, sem standa nokkuð að
baki Passíusálmunum, enda lauk skáldið
ekki við þá og segist í formála þar ekki hafa
„djúpfundinn skáldskap stundað".
í Hallgrímskveri koma fyrir augu margir
kunnuglegir sálmar, en líka allmargir sálmar
og kvæði, er lítt hafa komið fyrir augu
almennings fyrr. Kennir þar margra grasa,
og marga perluna er þar að finna. Ég
nefni sem dæmi morgun- og kvöldsálma,
nýárssálma og sálma er tengjast árstíða-
skiptum, sem margir eru afar fallegir. Þar
sér Hallgrímur hönd Drottins að verki, sem
vakir yfir mönnum og málleysingjum, þótt
margt breytist.
Þá má nefna huggunarsálma. Þekktur
er sálmurinn „Guð er minn Guð þó geisi
nauð“ (Hugbót), sem Hallgrímur orti, eftir
að bær hans í Saurbæ brann sumarið
1662. Óvíða kemur innilegt trúartraust
hans betur fram en í lokastefi hvers erindis
þessa sálms: „Nafn drottins sætt fær bölið
bætt/ blessað sé það án enda. “ Hann var
líka bænheyrður, því sagt er, að bærinn hafi
verið endurreistur það haust með aðstoð
sóknarfólks.
Mannlífið er hverfult
Hallgrímur er mjög upptekinn af hverfulleik
tilverunnar og yrkir nokkra sálma um
fallvelti mannlífsins. Ýmsir kannast
við sálminn „Um fallvalt heimslán, Allt
heimsins glysið, fordildin fríð,“ sem ekki er
í Hallgrímskverí. Þar er hins vegar kvæðið
„Um fallvaltleik mannlífsins," er svo byrjar:
„Mannsins stuttur er, ég inni,/ andardráttur
í nösunum." Þar varar skáldið sterklega
við því að setja traust sitt á auðæfin, því
auðurinn sé fallvaltastur alls og hjálpi
engum á dauðastundinni. „ . . . lítið sálu
líknar þinni/ þótt liggi féð í kösunum. “ Þar
eru það hin eilífu verðmæti trúarinnar, sem
ein gilda, „. . . á Jesúm sannan son Guðs
treysta/ sálunni mun þarflegast."
Þetta er sá rauði þráður, sem liggur
gegnum hverfulleikakvæði skáldsins. Að
treysta ekki á efnisleg gæði, heldur Jesúm
Krist einan, krossfestan og upprisinn, sem
engum bregst.
í Ijóðum sínum varar Hallgrímur við
hvers kyns ágirnd og auðsöfnun, því
ágirndin er „undirrót allra lasta“, eins og
hann yrkir í 16. Passíusálmi. Þetta vers í
16. Sálmi hlýtur að höfða sterkt til okkar
fslendinga nú um stundir, eftir að við höfum
upplifað afleiðingar græðginnar á eigin
skinni. Hér og víðar er Hallgrímur bitur og
hreinskiptinn í sinni átíeilu.
54 | bjarmi
desember20ió