Bjarmi - 01.12.2016, Page 59
BÓKAKYNNING
HVOLF
i/o.wjf?/uúff f/nyj jnpwuupivj
cion
Nýlega kom út Ijóðabókin Hvolf eftir Guðmund Karl Brynjarsson, sóknarprest í Lindakirkju
sem um tíma sat í ritnefnd þessa ágæta tímarits, Bjarma. Bjarmi hafði samband við
Guðmund Karl vegna útgáfu bókarinnar til að fá að vita meira um þennan merkilega grip.
Að sögn höfundar eru Ijóðin samansett úr leiftrum minninga og drauma, hugsunum
um bresti mannanna, glímu trúarinnar og hina sönnu von. í bókinni bregður einnig fyrir
mörgum af persónum Gamla testamentisins, þekktum og síður þekktum, þar sem þær
eru látnar takast á við lífið í nútímanum.
Bókin er óvenjuleg fyrir margra hluta sakir. Til dæmis er hún lesin á hvolfi og henni er
flett frá hægri til vinstri. Þegar bókin er opnuð kemur í Ijós að lesmálið er innsiglað í himnu
sem þarf að rífa til að geta lesið bókina. Guðmundur Karl segir útlit og uppsetninguna
vera hluta af tjáningu bókarinnar og að himnan umlyki Ijóðin og tengi þau saman frá hinu
fyrsta til hins síðasta.
bjarmi | desemberzoió | 59