Bjarmi - 01.12.2016, Side 60
IYíii persónnleikar
NOKKUR ORÐ UM ENNEAGRAMM í KRISTNU SAMHENGI
SIGRÍÐUR HRÖNN SIGURÐARDÓTTIR
RAGNAR GUNNARSSON
í námsleyfi á liðnum vetri og tveggja vikna
leiðsögn á sálgæslustofnun í Noregi (Institut
for sjelesorg) var Ragnari kynnt svokallað
Enneagramm. Vinna hans og sálgætis
sneri að því að skoða sjálfan sig, fortíð sína,
hvernig honum liði persónulega og í starfi
og hvernig hann gæti vaxið og þroskast á
göngu sinni með Guði með því að þekkja
sjálfan sig betur. Rætur mótunar eru taldar
vera í æsku í samskiptum okkar við annað
fólk. Persónuleikalýsing hvers og eins, sem
Enneagramm hjálpar okkur að uppgötva,
bendir á veikleika og bresti en jafnframt
styrkleika og tækifæri. Enneagramm hjálpar
okkur að skilja að við erum ólík og hvers
vegna. Það vísar okkur veg ef við viljum bæta
okkur eða styðja við bakið hvert á öðru. Það
sýnir okkur einnig hvernig guðsmynd okkar
mótast af persónuleika okkar og hefur áhrif
á samfélag okkar við Guð. Við hjónin ætlum
að reyna að gefa innsýn í þetta verkfæri
sem Enneagrammið er.
MERKING OG UPPRUNI
Orðið enneagramm er samsett úr ennea
(níu) og gram (sem í þessu samhengi
mætti þýða sem lýsingu, kortlagningu eða
uppdrátt). Enneagramm mætti því þýða
sem Níupersónuleikalýsing. Misjafnt er eftir
bókum á hvaða persónuleika er byrjað og
endað og sjálfur fann Ragnar sig heima í
síðustu lýsingunni, í bók eftir Richard Rohr.
„Satt að segja var það sérstök upplifun að
sjá hvað margt átti vel við um mig, bæði
jákvætt og neikvætt, þó svo að um almenna
lýsingu væri að ræða,“ segir Ragnar. Fólk
sem hefur þroskast mikið og breyst þarf
hugsanlega að minnast þess hvernig
það var um tvítugt til að finna alveg réttu
lýsinguna.
Áhuginn á Enneagramm hefur vaxið
ört á liðnum tveim áratugum og nokkur
fjöldi bóka verið gefinn út, vefsíður settar
upp og námskeið haldin eftir að ýmsir
enduruppgötvuðu þessa aldagömlu speki.
Áhugi sumra sálfræðinga og sálgæsluaðila
hefur eflaust ýtt undir áhugann. Kaþólikkinn
Richard Rohr á þó trúlega mestan þátt í að
koma hugsun Enneagrammsins á framfæri í
kirkjulegu samhengi.
Ekki er auðvelt að gera grein fyrir
upphafinu enda birtist Enneagrammið í
margvíslegu samhengi, trúarlegu og ver-
aldlegu. Um tíma töldu sumir að þessi
fræði væru upprunnin meðal súfista,
hugleiðsluhreyfingar innan íslam. En síðan
hefur komið í Ijós að ræturnar eru eldri.
Má þar nefna eyðimerkurfeðurna á fyrstu
öldum kristninnar en þeir hafa trúlega fengið
viskuna úr gyðingdómi þó svo erfitt sé að
staðhæfa það. Eflaust hefur spekin slípast
til en grunnhugsunin sú sama og hún var
fyrir mörgum öldum.
SJÁLFSMYNDIN
Sjálfsmyndin er miðlægt hugtak í
Enneagramminu en hún er sú takmarkaða
mynd sem við höfum gert okkur af okkur
sjálfum. Sjálfsmyndin mótar hugsun okkar,
líf og störf. Hún gefur okkur gildi og gerir
okkur fær um að stjórna og hafa áhrif á
umheiminn: Ef ég er hjálpsöm þá líkar fólki
við mig. Ef ég er sterk þá keyrir mig enginn
niður. Ef ég fylgi reglunum get ég fundið mig
örugga o.s.frv. Sjálfsmyndin er ómeðvituð
og situr svo djúpt að hún stjórnar næstum
öllu sem við gerum og látum vera að gera.
Sjálfsmyndina viljum við gjarnan sýna. Hún
tengist verðleikum okkar og þess vegna
viljum við ógjarnan sleppa takinu á henni.
Þegar við byrjum að vinna í okkur sjálfum
með hjálp Enneagrammsins, og verðum
meðvitaðri um sjálfsmynd okkar, sjáum
við hve mikill styrkur hennar er. Að efast
um réttmæti hennar vekur upp mikinn
mótþróa hið innra með okkur. Boðskapur
Enneagrammsins er: „Þú ert miklu meiri en
sú mynd sem þú hefur gert þér af sjálfri eða
sjálfum þér, þú þarft ekki að halda svonafast
í sjálfsmynd þína, slepptu takinu á henni.“
Sjálfsmyndin endurspeglar hvernig við
upplifum stöðu okkar í heiminum en þrjú
mismunandi viðhorf finnast:
Ég er stærri en umheimurinn.
Ég verð að laga mig að umheiminum.
Ég er minni en umheimurinn.
60 | bjarmi | desembei’2016