Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 63

Bjarmi - 01.12.2016, Side 63
venjur. Sexur geta lært að þeim er óhætt. Þær geta eignast öryggi í Jesú Kristi og lifað án ótta þótt þær viti að lífið bjóði upp á áhættur. Sjöan er bjartsýn manneskja. Hún líturá sjálfa sig sem hamingjusama og hefur mikla þörf fyrir að allt sé skemmtilegt. Sjöan er áköf og býryfirgleði og ævintýraþrá. Hún er stöðugt að skipuleggja spennandi atburði. Sjöur eru fólkið sem vill „aðra umferð" eða halda aðeins lengur áfram. Þær lífga upp á samræður og áhugamálin eru fjölmörg. Þær vinna að því að allir skemmti sér. Þær hafa lært að setja upp grímu jákvæðni. Þeim finnst rútínur leiðinlegar. Veikleikar sjöunnar eru ýmsir. Þær flýja sorgarhús og forðast eigin þjáningu og annarra og öll leiðindi. Stundum endar þessi flótti í neyslu fíknar. Þroskaðar sjöur horfast í augu við erfiðar og óþægilegar tilfinningar sínar. Þær hafa lært að sorgin þarf j ekki að slökkva gleðina heldur geti þvert á móti dýpkað hana. Áttan er með stjórnunaráráttu. Hún lítur á sig sem sterka persónu og sjálfstæða. Hún ögrar fólki og er skipandi, áköf og dugleg. Hún 6 er knúin áfram af því að vera sterk og sýna hvorki vanmátt né breyskleika. Áttur breyta andrúmslofti með því einu að mæta á staðinn. Þærfara ekki hálfa leið, en vinna hörðum höndum, stefna hátt og geta verið ásæknar og krefjandi. Þær eru uppteknar af réttlæti og vilja verja þá sem hafa orðið undir í lífinu. Þeim líður best haldandi um stjórnartauma við allar aðstæður. Meðvitaðar um sjálfa sig veita þær forystu með valdi - alltaf meðvitaðar um þau sem eru verr sett og á jaðrinum. Óþroskaðar áttur geta valtað yfir fólk og rutt því úr vegi í ákafa sínum. Heilbrigðar áttur hins vegar temja ákafa sinn og nota hann til góðs. Þær hafa lært að sjá sig ekki í Ijósi eigin afkasta og geta afsalað sér eigin valdi. Áttur geta séð framtíðina í björtu Ijósi þótt aðrir eigi erfitt með það. Nían er friðflytjandi og samningamaður. Hún hefur þörf fyrir sátt og frið og forðast átök. Henni finnst i lagi að gera hlutina á morgun. Nían er þægileg og auðveld í umgengni. Hún hefur mikinn hæfileika til að sýna samkennd og setja sig í spor annarra. f rökræðum er hún góður málamiðlari en hún hjálpar andstæðum fylkingum að sjá málin frá sjónarhorni hins. Tilhneiging níunnar er hins vegar að skipta heiminum upp í hið leysta og hið óleysta sem lýtur að veikleika hennar - að flýja deilur og átök. Níur geta látið sem allt sé í lagi þegar svo er ekki og geta forðast erfið samtöl. Þroskaðar níur eru sannkallaðir sáttasemjarar og vita hvað hefur græðandi áhrif. Þær reynast oft góðir vinir, ráðgjafar og sálgæsluaðilar. 9 GUÐ ER NÁLÆGUR Enneagrammið byggir á víxlverkan milli sjálfshjálpar, hjálpar frá öðrum og hjálpar frá Guði. Nánasta umhverfi okkar hefur mun skýrari sjón á eðli okkar en við höfum sjálf. Ómetanlegt er að fá hjálp frá þeim manneskjum sem við þorum að opna okkur fyrir og viðurkenna mistök okkar og bresti fyrir. Guð hefur alltaf verið nálægur okkur. En við lokum Guð úti þegar við í sjálfselsku gerum okkur sjálf að þungamiðju alls: Við ráðskumst með umhverfið svo að við fáum það sem við viljum. Við setjum okkur á hærri stall en aðra: Ég er betri en aðrir því ég er árangursríkari, fróðari, hjálpsamari, afslappaðri og svo framvegis. Við skiljum ekki val annarra og teljum að okkar eigin ákvarðanir séu betri. Betra væri ef sæjum að við glímum öll við sömu grundvallarspurningarnar en beitum ólíkum aðferðum. Grundvallarspurningar okkar snúast allar á einhvern hátt um kærleikann. Við söknum þess að ekki sé litið við okkur og að við séum ekki viðurkennd, samþykkt og elskuð eins og við erum. Dýpsta þrá okkar verður ekki uppfyllt nema af kærleikanum sjálfum. Dýpsta lækningin á sér þess vegna stað í persónulegu sambandi við Guð sem er uppspretta kærleikans. Þegar við höfum sleppt takinu þá uppgötvum við þörf okkar fyrir lækningu og við verðum móttækileg fyrir læknandi kraft Guðs og förum að þora að trúa því að við fáum það sem við þurfum hjá Guði. Styrkur Enneagrammsins er að það afhjúpar á hvaða sviðum við þurfum græðslu, hvaða veikleikar valdi óöryggi og núningi í samskiptum s við aðra og jafnvel innra með okkur sjálfum. Sem kristnir einstaklingar getum við notað Enneagrammið sem verkfæri til að finna lækningu, ekki með því að verða „okkar eigið sjálf' heldur með því að sjá og upplifa okkur í vaxandi mæli í Kristi. Kostir okkar og ávöxtur andans vex síðan fram með því að vera sönn í eftirfylgdinni við Jesú Krist. í framhaldsgrein í næsta tölublaði Bjarma verður fjallað nánar um hvern persónuleika fyrir sig og Enneagrammið sem verkfæri á braut heilbrigðra samskipta og helgunar í Jesú Kristi. Helstu heimildir: Bernéli, Marie: Enneagrammet: Om skapelse, brustenhet og helande. Vitis forlag, 2009. Bernéli, Marie: Omvandelsen i Enneagrammet. Vitis forlag, 2015. Cron, lan Morgan og Stabile, Suzanne: The Road Back to You: An Enneagram Journey to Self-Discovery. IVP 2016. Ebert, Andreas: Enneagrammet som ándelig veiviser. Verbum 2009. Rohr, Richard og Ebert, Andreas: The Enneagram: A Christian Perspective. 2002. Starke, John: An Evangelical s Guide to the Ennegram. Whaf s beyond the popular self- assessment tool making its way to your church. Christianity Today, November 2016. bjarmi | descmber 2016 | 63

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.