Bjarmi - 01.06.2017, Side 2
Afmælisárié
í ár er þess minnst víða um heim, ekki
síst í löndum með lútherskar þjóðkirkjur,
að 500 ár eru liðin á þessu ári frá því sem
telst upphaf siðbótarinnar, þegar Marteinn
Lúther negldi 95 greinar sínar á dyr
dómkirkjunnar í Wittenberg. Síðan hefur
mikið vatn runnið til sjávar og fjöldi kynslóða
gengið eilífðinni á vit. Enn eru stórar
þjóðkirkjur á Norðurlöndunum en þær hafa
minnkað og dregið hefur úr krafti þeirra á
liðnum áratugum. Lútherskar fríkirkjur hafa
sprottið fram fyrr og síðar og af ýmsum
ástæðum. Skipulag og stjórnunarumhverfi
þjóðkirknanna er einnig nokkuð ólíkt milli
landa. Stærstu lúthersku kirkjur heims eru
ekki lengur á Norðurlöndum heldur í Afríku,
nánar tiltekið í Eþíópíu (Mekane Yesus) og
Tansaníu (Evangelical Lutheran Church of
Tanzania).
Það er hollt að líta til baka og skoða
grunninn og arfinn. Lúther var mikill
hugsuður og sá margt í skýru Ijósi. Hann
lagði í starfi sínu og boðun áherslu á
náðina eina, trúna eina og Ritninguna eina.
Full ástæða er til að halda þeim arfi á lofti,
því að á öllum öldum hættir okkur til að
ýta þessu til hliðar fyrir eitthvað annað. í
þessu tölublaði minnumst við Katrínar af
Bóra, eiginkonu Lúthers og birtum tvær
greinar um guðfræði hans, um 1. boðorðið
og önnur trúarbrögð. Hvort tveggja á
erindi til okkar í samtímanum. Lúther
hjálpaði og hefur hjálpað mörgum, beint
og óbeint, ásamt öðrum frumkvöðlum
siðbótarinnar, til að festast ekki í trúrækni
og hefðum eingöngu, heldur að lifa trúnni
í nánu samfélagi við Drottin, krossfestan
og upprisinn frelsara. Til stendur að kynna
Lúther betur á þessu ári.
Árið 2017 er jafnframt afmælisár
Bjarma sem hefur nú komið út í 110
ár. íslenskt samfélag, heimurinn allur,
prenttækni og Bjarmi með hafa breyst
mikið á þessum tíma. Umhverfi prentaðra
tímarita sömuleiðis. En enn höldum við út
í nýtt ár, þrátt fyrir tafir á fyrsta tölublaði
ársins, sem skrifast á annir og ferðalög
umsjónarmanna þess. Stefnt er að þremur
tölublöðum eins og hefur verið í reynd
undanfarin ár.
Ýmissa grasa kennir í þessu blaði sem
endranær, þar sem horft er nær og fjær.
Við vonum að lesturinn verði til uppörvunar,
gleði, trúarstyrkingar og fræðslu. Áformuð
framhaldsgrein um Enneagram sem
var kynnt í síðasta blaði verður ekki birt
að sinni en stefnt að útgáfu bókar eða
heftis vegna umfangs efnisins. Getum við
vonandi kynnt það í haustblaði Bjarma og
boðið áskrifendum á góðum kjörum.
Ragnar Gunnarsson
S. Waage ehf.
Garðabæ
GA
SMI'ÐAJÁRN
INGI
E R Ð I R
5544466
/i /*>
HÓPFERÐIR
Hjálparstarf
'QTy kirkjunnar
Bjarmi í. tbl. m. árgangur, júní 2017. ISSN1026-5244
Útgefandi: Salt ehf í samstarfi við Samband íslenskra kristniboðsfélaga
Ritstjórn: Ragnar Gunnarssonn og Vigfús Ingvar Ingvarsson.
Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson og Vigfús Ingvar Ingvarsson.
Afgreiðsla: Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík, sími 533 4900, fax 533 4909.
Kennitala Salts: 600678 0789, reikningsnúmer 01x7 26 017476,
IBAN: IS18 0117 26017476 6006 7807 89, SWIFT: NBIIISRE
Vefslóðir: www.bjarmi.is,www.sik.is og www.saltforlag.is. Netpóstur: ragnar@sik.is
Árgjald kr.4.950 (þrjú tölublöð), kr. 5.950 til útlanda. Gjalddagi 1. júní. Verð í lausasölu kr. 1.750.
Forsíðumynd: Lightstock
Umbrot og hönnun: Emil Hreiðar Björnsson
Prentun: Litróf
bjarmi.is