Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.06.2017, Page 4

Bjarmi - 01.06.2017, Page 4
A jslóðnm helgra manna í IVorðTmbralandi VIGFÚS INGVAR INGVARSSON Minnist leiðtoga ykkar sem Guðs orð hafa til ykkar talað. Virðið fyrir ykkur hvernig ævi þeirra lauk og tíkið eftir trúþeirra. Heb 13.7 Það er þakkarefní að fá að heimsækja staði og fólk sem iðkun kristinnar trúar hefur mótað og þar sem gestum er fagnað af einlægri hlýju. Þessa naut ég á Norðymbralandi og í Durhamskíri í nýliðnum marsmánuði ásamt Ástríði Kristinsdóttur eiginkonu minni og vinkonu okkar Sigríði Halldórsdóttur prófessor á Akureyri. Norðymbraland (Northumberland) var víst óljóst heiti í hugum okkar, hvað þá að við þekktum sögu þess eða sérstöðu. En margt lærðum við í nokkurra daga dvöl í þessari nyrstu sýslu á austanverðu Englandi. Þetta er strjálbýlasta sýsla Englands og íbúafjöldinn er tæplega á við hérlendis - borgin Newcastle er stjórnunarlega sér sem „sýsla" (county). Fyrr á öldum var þarna kjarninn í stundum stóru konungsríki og mörkin við Skotland hafa verið fljótandi. Áhrifa gætir frá keltneskri menningu og sömuleiðis heyrast gömul orð úr máli engilsaxa á Newcastle-svæðinu. Þar er að finna sérstaka mállýsku, geordie, með nokkur kunnugleg orð eins og „barn“ eða „kalt“. Þarna má hlusta á hina sérstöku sekkjapípu sem ekki er blásið í, eins og hjá Hálandaskotum, heldur er lítill físibelgur knúinn með olnboganum og pípurnar eru lokaðar í endann. Harpan var þarna einnig til staðar. Hrun kolavinnslunnar og víst fiskveiðanna líka hefur komið hart niður á íbúunum en til sveita sýnist mest um sauðfjárrækt. Það markar sérstöðu í kirkjusögu Norðymbralands að svæðið var alfarið kristnað frá Lindisfarne af írskum munkum úr klaustrinu á eynni lona, vestan við Skotland. Það einstaka fólk, sem kom mikið við sögu þess að rótfesta kristni þarna, var í forgrunni dvalarinnar í Minsteracres, myndarlegu kyrrðarsetri suðvestur af Newcastle og er raunar sunnan núverandi marka héraðsins við Durhamskíri. Þarna vorum við íslendingarnir á vegum samtakanna Spiritual Directors in Europe - ég í fimmta sinn í slíkri árlegri dvöl á ýmsum stöðum í Evrópu. „Markmið slíkrar dvalar mætti í sem fæstum orðum segja vera að skerpa vitundina um návist Guðs og deila reynslu. Einnig að jarðbinda og útvíkka reynslu sína með því að tengjast lífi og sögu fólks í landi gestgjafanna." Áður hefur verið greint frá slíkum dvölum í Bjarma og sagt lítið eitt frá hefð andlegrar fylgdar. GJAFMILDIR AUÐMENN Silvertop-fjölskyldan, sem auðgaðist mjög á námavinnslu, byggði Minsteracres- setrið á 18. öld og stækkaði margsinnis síðar, bætti m.a við sambyggðri kirkju fyrir kaþólska söfnuðinn en fyrir var stór 4 | bjarmi | júní 2017

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.