Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 6

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 6
ÞESSI MORGUN- GANGA MÓT RÍSANDI SÓL VAR ÁHRIFA- MIKILL AÐDRAG- ANDI KOMU Á ÞENNAN HELGA STAÐ SEM BAÐAÐUR ER BÆNUM FÓLKS ALLT FRÁ 7. ÖLD. gefandi. Ég á þá við daglegar messur og morgunbænastundir að ógleymdum einföldum borðbænum sem gátu verið alveg innblásnar. Sérlega hrífandi var margvísleg útfærsla á meira eða minna þöglu helgihaldi en einn dag vorum við í kyrrð. Litháísk algerlega þögul borðbæn, sem fólk af öllum tungum gat auðveldlega tileinkað sér, gleymist ekki. Ekki fremur en söngur á spænsku (Santo, santo ...) með afar fallegum og grípandi hreyfingum sem sama þjóð færði okkur. Tvö kvöld fengum við heimsóknir listafólks úr nágrenninu sem söng og lék á þjóðleg hljóðfæri og fékk fólk út á gólfíð í hinum virðulega danssal setursins. ÓgleymanlegurerdanshópurinnNewcastle Cloggies (klossadansarar). Dansað er á tréklossum sem gefa tvo smelli fyrir hvert skref, hæl og tá eða öfugt. Þessa hefð má að einhverju leyti rekja til kvenna sem stóðu við vefstólana í köldum verksmiðjuskálum og stöppuðu niður fótunum til að verjast kuldanum. Þetta fólk sagði einnig frá ýmsu úr lífi og hefðum fólksins í Norðymbralandi á einstaklega lifandi hátt. Og þar sem keltneskra hefða gætir, að ekki sé talað um ef frar eru á staðnum, er stutt í dansinn. Ekki þýddi að bera við getuleysi á þessu sviði og allt var vel útskýrt og leitt - og svo sagt: „Ef þú hefur gaman af þessu þá er það rétt.“ THE NORTHUMBRIA COMMUNITY Velja mátti um vinnustofur og ég sótti meðal annars einstaklega áhugaverða kynningu á The Northumbria Community undir yfirskriftinni: Drinking from the wells of Northumbrian Spirituality sem hjónin Þete og Catherine Askew önnuðust. Þetta samfélag varð til sem eitt þeirra er sækja til klaustrahefða en eru hvorki klaustur né kirkja heldur framlag til að byggja kirkjuna upp innan frá. Þetta nokkurra áratuga gamla samfélag var á sínum tíma tortryggt af kirkjulegum forystumönnum en nýtur nú trausts og virðingar þeirra. Pete þjónar t.d. samfélaginu sem prestur ensku kirkjunnar en meðlimirnir eru fjölmargir í ýmsum löndum. Einhverjir búa í miðstöð þeirra - breytilegur hópur - og þar er bænlíf og ýmislegt til að byggja fólk upp og afar metnaðarfull útgáfustarfsemi, þar á meðal tveggja binda verk - samtals um 1650 blaðsíður - Celtic Daily Prayer, með íhugunarefni fyrir hvern dag ársins (hvort bindi) og einnig gríðarmikið af alls kyns bæna- og íhugunarefni og formum fyrir bænastundir og margvíslegt helgihald. Þau hjón tóku vel í hugmynd um að heimsækja ísland á næsta ári og deila með okkur merkilegri reynslu úr sínu starfi. Ég þarf dálítinn hlátur, Drottinn Ég hef fengið nóg af döprum dýrlingum og fúlum trúarbrögðum Ég hef fengið nóg af syndaleit og efa um náðina. Ég þarf dálítinn hlátur, Drottinn, eins og þú gafst Söru. 6 | bjarmi | júní 2017

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.