Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 7

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 7
Jarrow við Tyne, Sf. Paul's klausfur, sfofnað á 7. öld. í St. Mary's kirkjunni (anglikönsk) kynnti Kate Tristram - sagnfræðingur og guðfræðingur, fyrrum prófessor við Durhamháskólaog meðal fyrstu kvenpresta í ensku kirkjunni - okkur söguna með smitandi innlifun. Oswald konungur, sem ungur dvaldist í útlegð á eynni lona, kallaði eftir liði þaðan til að kristna ríki sitt. Sá sem leiddi það verk var Aidan en hann kom árið 635 með hóp munka með sér. Hann hafði annan hátt á en tíðkaðist gjarnan við kristniboð á þessum tímum. Fór gangandi og vopnlaus um þorpin - þar sem jafnvel konur báru beitta hnífa - og ræddi við fólk sem jafningja eftir að hafa lært tungumál engilsaxa en fyrst túlkaði konungurinn fyrir hann. Miðstöð fékk hann að reisa, látlaust timburklaustur, á Lindisfarne. Megi ég vera aleinn með Guði eins og frekast má verða. Gerðu mig að eyju, eins og er flóðaldan dregur vötnin fast upp að ströndinni, aðgreindan, einan með þér, Guð, helgaðan þér. Búðu mig síðan, með útfallinu, undir að færa önnum köfnum heimi, handan eyjunnar, návist þína, heiminum sem ryðst inn á mig þar til vötnin koma á ný og umlykja mig hjá þér. Bæn heilags Aidans - sótt í bækling St. Mary's kirkjunnar á Lindisfarne En ég bið þig um að þurfa ekki að bíða þar til ég verð níræð og barnshafandi. Skoska kirkjan Á HELGRl EYJU Af margvíslegri gefandi reynslu slær ekkert út lokadag okkarflestra „pílagrímanna“ með för út í Lindisfarne (Holy Island). Þann stað hafa margir heyrt nefndan sem viðmiðun um upphaf víkingaaldar - árás víkinga árið 793 á hið merka klaustur eyjarinnar sem er landföst hluta sólarhringsins á háfjöru. Eins og pílagrímum sæmir gengum við flest yfir leirurnar í kjölfar útfallsins, rúmlega þriggja kílómetra leið. Varað var við gúmmístígvélum, þau eru sleipari og geta setið föst í eðju, frekar skyldi fólk ganga berfætt sem nokkrir gerðu. Við hjónin fórum bil beggja, fórum úr gönguskónum við dýpsta álinn sem útfallið hafði skilið eftir og brettum vel upp skálmarnar (ég flutti jafnvel léttbyggða Litháa yfir). Þessi morgunganga mót rísandi sól var áhrifamikill aðdragandi komu á þennan helga stað sem baðaður er bænum fólks allt frá 7. öld. Á þessari allstóru eyju er afmarkað fallegt um 500 manna þorp en þar er víst örtröð ferðafólks á sumrum. Ekki hafa eyjaskeggjar freistast til að skemma umhverfið með nýjum hótelbyggingum en nóg er af veitingastöðum og ýmsum afdrepum fyrir gesti, að ekki sé minnst á kirkjur og klausturrústir. Jafnvel á pósthúsinu fást bækur um kristið trúarlíf og helga sögu eyjarinnar. Okkar beið heitt kaffi og ósvikið meðlæti í miðstöð „Samfélags Aidans og Hildu" (The Open Gate) sem býður ýmiss konar uppbyggingardvalir eða einstaklingsbundin tækifæri til hvíldar og uppbyggingar eftir óskum og þörfum fólks. M.a. er ekki óalgengt að útbrunnir prestar leiti þarna hælis um hríð. „Hafið bara samband“ - var sagt við okkur. Leiðsögumaður okkar, Þenny Warren, er einmitt í forystuhópi þessa samfélags. Meðal skipulagðra kyrrðardvala eru þær sem flétta fuglaskoðun inn í dagskrána en eyjan og leirurnar eru einstök fuglaparadís jafnvel með lunda og kríur. Þetta er staður sem kvaddur er með söknuði. Jarrow við Tyne, Sf. Paul's klausfur, sfofnað á 7. öld. bjarmi | júní 2017 7

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.