Bjarmi - 01.06.2017, Page 8
Tolur í IKihlíunni:
Eitt himdrað
íúnmtín og þrír!
ÓLAFUR JÓHANNSSON
„Hann sagði: „Kastið netinu hægra megin
við bátinn og þið munuð verða varir.“...
Símon Pétur fór í bátinn og dró netið á
iand, fullt af stórum fiskum, eitt hundrað
fimmtíu og þremur. Og netið rifnaði ekki
þótt þeir væru svo margir." (Jóh. 21:6-
11)
Talan 153 í þessari frásögn hefur
valdið miklum heilabrotum og verið skýrð
með ýmsu móti. Hvers vegna er talað
um 153 fiska? Ýmsar tilgátur hafa komið
fram.
ALLT MANNKYNIÐ OG GUÐ?
í dæmisögum Jesú er hundrað tala
heiðingjanna (=allra þjóðanna utan ísraels)
sem verða með í guðsríkinu. Sæðið ber
hundraðfaldan ávöxt (Lúk. 8:8 og 15) og
hirðirinn á hundrað sauði (Lúk. 15:4).
Talar fimmtíu táknar Gyðingana, leifar
ísraels sem væntu komu Messíasar.
Guð er þríeinn og talan þrír er því
tala heilagrar þrenningar sem fullkomnar
hjálpræðið.
Eitt hundrað fimmtíu og þrír er þannig
tala hins fullkomna hjálpræðis sem Guð
kemur til leiðar og er ætlað bæði Gyðingum
og heiðingjum.
SUMMA EÐA MARGFELDI
NÁÐARINNAR?
Talan 153 er summa allra talna frá 1 til og
með 17 og að sama skapi útkoman þegar
17 er margfaldað með 9.
Ein skýringin snýst um að 10 tákni
lögmálið (sbr. boðorðin tíu) en 7 náðina
(sbr. sjö gjafir Andans). Þannig fást 17 og
margfaldað með heilagri þrenningu kemur
út 51 en 153 þegar aftur er margfaldað
með þrenningunni.
Flóknari útgáfan af þessari skýringu
felur í sér að allar tölurnar frá 1-17 hafi
trúarlega skírskotun, talað er um 9
englakóra, 8 sæluboð o. s. frv. Summan
153 stendur þá fyrir þau öll sem náð Guðs
nær til með einhverjum hætti.
TALA NAFNS?
Ein skýringin snýst um að talan 153 sé tala
nafns Símonar Péturs: Símon (71) sonur (22)
Jónasar(31) Kefas (=klettur/Pétur 29). Önnur
skýring fær sömu samtölu út úr orðunum á
bak við gríska orðið IXÞYS sem þýðir fiskur
en var líka hluti af dulmáli frumkirkjunnar því
á grísku eru þetta fyrstu stafir orðanna Jesús
Kristur Guðs sonur frelsari.
SAMTALA MÓTSAGNANNA?
Við yfirlestur þessarar greinar var höfundi
bent á forna útlistun Evagriusar frá
Pontus. Hann fullyrðiur að 100 sé tala
rétthyrningsins, 28 tákni þríhyrninginn
og 25 kúluna. í samtölunni 153 renna
þessar þrjár mótsagnir saman, rétt eins
og fagnaðarerindið yfirskyggir allt sem
aðgreinir.
8 | bjarmi | júní 2017