Bjarmi - 01.06.2017, Page 15
kirkjur dreifast yfir nokkra staði í vesturhluta
Japans.
Elsta hús biblíubúðanna í Hiruzen.
MIÐSTÖÐ í KOBE
Undirritaður heimsótti Japan í mars sem leið
til að hitta kristniboðana, fá innsýn í starfið
og átta sig betur á þörf og aðstæðum.
Ferðin lá fyrst til Kobe sem er borg með
um 1,5 milljónir íbúa og er samvaxin
Osaka og er enn fjölmennari. Kobe komst í
heimsfréttir þegar hrikalegur jarðskjálfti reið
þar yfir 17. janúar árið 1995. Skjálftinn var
upp á 6,9 stig og stóð yfir í 20 sekúndur.
Upptökin voru aðeins 20 km frá höfninni og
á 16 km dýpi. Fjöldi fólks, um 140 þúsund,
dó og langan tíma tók að byggja upp þau
mannvirki sem eyðilögðust og koma fólki
(um 300 þúsund) úr bráðabirgðahúsnæði
í húsnæði til frambúðar. Áhersla var lögð
á að læra af reynslunni og byggja sterkari
hús í framtíðinni. Segja má að það sé eins
gott því sumar byggingarnar eru 40 hæða
Á tindi Rokkófjalls, uppfyllinqinq Rokkóeyjar í baksýn.
háar og sú hæsta sem undirritaður sá 55
hæðir. í Kobe rekur WJELC biblíuskóla,
guðfræðiskóla, leikskóla og kirkju og þar
eru einnig skrifstofur kristniboðsins.
Leifur Sigurðsson og kona hans
Katsuko búa í úthverfi Kobe, sem byggt
er á uppfyllingu og heitir Rokkó-eyja.
Starfsstöð þeirra er kirkja sem staðsett
er í kjallara blokkarinnar sem er við hlið
þeirra sem þau búa í. Hlutverk þeirra er
m.a. að ná til nýrra og sinna unglingastarfi
kirkjunnar.
í heimsókn minni tók ég m.a.
þátt í aðalfundi kirkjunnar og flutti þar
kveðjur frá SÍK og eins Kristniboðs- og
hjálparstarfsnefnd kirkjunnar. Þátttakendur
bjarmi | júní 2017 | 15