Bjarmi - 01.06.2017, Síða 16
ASUMRIN
ERU BIBLÍU-
VIKUR MEÐ
ÚTIVIST
OG BIBLÍU-
FRÆÐSLU
FYRIRFJÖL-
SKYLDUR,
UNGLINGA
OG ÝMSA
HÓPA.
A aðalfundi krikjunnar með 150 jaáttiakendum.
á fundinum voru um 150 manns og stóð
hann yfir í sólarhring.
Undirritaður tók síðan þátt í árlegri
ráðstefnu, e.k. aðalfundi kristniboðs-
starfsins í landinu. Hann var haldinn á
einum þessara staða, á landsbyggðinni
í fjöllunum í Hiruzen, um 500 metra yfir
sjávarmáli. Þar rak NLM upprunalega
landbúnaðarskóla sem hefur verið lagður
af og hefur undanfarið verið rekinn
svipaður og sumarbúðir fyrir fólk á öllum
aldri, svokallaðar biblíubúðir.
SAGA WJELC í STUTTU MÁLI
Á ráðstefnu eða ársfund kristniboðanna
komu forsvarsmenn kirkjunnar í heimsókn.
Þeir tjáðu þakklæti sitt fyrir starf kristni-
boðanna öll þessi ár og að hafa komið
með hinn lútherska arf með áherslu á
Ritninguna, trúna og náðina. Þar að auki
er áherslan á lifandi trú og vakningu, náið
samband við Jesú og þátttöku leikmanna
í starfinu.
Fyrstu kristniboðarnir komu árið f 949.
Kirkjan sjálf var stofnuð árið 1962 en fyrstu
japönsku prestarnir voru vígðir árið 1959.
Hlutverk öldunga hefur alltaf verið afar
mikilvægt.
f upphafi árs 20f7 voru 3.843 manns
skráðir í kirkjuna, þar af 637 börn. Af
þessum eru margir óvirkir, virkir eru
1739 samkvæmt viðmiðum sem kirkjan
hefur sett sér um mætingu og stuðning
við starfið. Meðalmæting í kirkju á
sunnudögum er 1186, og auk þess 247
böm í sunnudagaskóla. 35 voru skírðir í
fyrra, þar af 8 börn, en árið á undan voru
57 skírðir. Góður hópur undirbýr sig nú fyrir
skírn á þessu ári.
Kirkjur eða söfnuðir eru 42, prestarnir
27 og kristniboðar að störfum 11 talsins.
Margir sjálfboðaliðar leggja sitt af mörkum
fyrir kirkjustarfið.
ANNAÐ STARF
Fyrir utan safnaðarstarfið eru deildir
eða stofnanir kirkjunnar, þ.e. biblíu-
og guðfræðiskólar og biblíubúðir og
kristniboðs- og fjölmiðladeildir.
Stofnanirnar eru að mati forsvars-
manna kirkjunnar afar mikilvægur hluti
af kirkjustarfinu. Engin kirkja er með
svo margar stofnanir miðað við jafnfáa
kirkjumeðlimi. Tveir leikskólar eru reknir af
kirkjunni með samtals um 80 börn.
Ein deildin er kristniboðsdeild. Kirkjan
hefur rekið kristniboðsstarf erlendis í Hong
Kong frá 1980. Unglingastarf kirkjunnar er
16 | bjarmi
júní 2017