Bjarmi - 01.06.2017, Side 21
einungis gagnrýna aflátssöluna. Ef einhver
hefði sagt mér að ég færi á ríkisþingið í
Ágsborg og eignast eiginkonu og heimili sex
árum síðar hefði ég aldrei trúað honum.3
Það vekur athygli að Lúther telur
starf sitt sem prófessor, brautryðjanda
siðbótarinnar eða ráðgjafa furstans ekki
byltingarkenndustu þættina í lífi sínu,
heldur þá staðreynd að Guð hafði gefið
honum konu og heimili. Þessum einlæga
munki! Það stendur upp úr og er í augum
hans kraftaverk. Þetta skref var með
öllu óhugsandi í samtíð Lúthers áður en
siðbótin ruddi sér braut í Evrópu.
í annarri borðræðu ítrekar Lúther þetta
enn frekar og segir: „Guð gaf mér konu og
heimili."4 (þessum orðum kemurfram kjarni
kenningarinnar um réttlætinguna af trú sem
mótar, eða réttara sagt opnar, manninum
nýja sýn á heiminn og lífið. Lúther fær að
reyna í Ijósi réttlætingarinnar að líf hans
er í hinu smæsta sem hinu stærsta gjöf
Guðs. Og hann sér einna skýrast innan
fjölskyldu sinnar, sem eiginmaður og faðir,
hve dýrmætar gjafir Guðs eru. Við skulum
aðeins fara yfir sögu Lúthers út frá þessum
sjónarhóli og athuga aðdragandann að
því að hann kvæntist Katarínu frá Bóra og
hvernig fjölskyldulífi þeirra var háttað.
KENNING LÚTHERS UM
HJÓNABANDIÐ
Það var engin skyndiákvörðun hjá Lúther
að kvænast. Ákvörðun sína byggði
hann á áralangri íhugun og ritskýringu á
textum Ritningarinnar. Rannsóknir hans á
hjónabandinu og það sem hann skrifaði um
það efni tengdist ekki persónulegum vanda
hans, heldur var hann að bregðast við
þeirri raunverulegu neyð sem hjónabandið
bjó við í samtíð hans sem stofnun
samfélagsins. Þessi neyð kom meðal
annars fram í þeirri almennu vanvirðingu
sem hjónabandinu og fjölskyldunni var sýnd
á miðöldum. Ástæðna þessa er að leita í
þeirri líkamsfyrirlitningu sem ríkti í kenningu
miðaldakirkjunnar um hjónabandið og
kynlífið.5 Áhrif grískrar heimspeki, bæði
nýplatónismans og Aristótelesar, voru
mikil innan kirkjunnar og komu m.a.
fram í þeim skilningi að hið veraldlega líf,
með öllum sínum holdlegu gæðum, væri
einungis skuggi þeirrar andlegu sælu sem
biði manna að lífi loknu. Menn áttu að búa
3D. Martin Luthers Werke. Kritische Gesamtausgabe - Tischreden [framvegis skammstafað WA TR], Hermann Böhiaus Nachfolger, Weimar 1883-2009, 2, 165 (nr. 1654). Sjá
einnig: WA TR 3, 211 (nr. 3177).
4WATR4, 432 (nr. 4690).
5Um hjónabandsskilning miðaldakirkjunnar, sjá: Ranke-Heinemann, Eunuchen fur das Himmelreich. Katolische Kirche und Sexualitat, 50-67,81-104,158-222; Henri Crouzel,
„Ehe/Eherecht/Ehescheidung V. Alte Kirche", Theologische Realenzyklopádie, 9. bindi, Walter de Gruyter, Berlín 1982,325-330; Leendert Brink, „Ehe/Eherecht/Ehescheidung
VI. Mittelalter," Theologische Realenzyklopadie IX, Walter de Gruyter, Berlín 1982, 330-336; Hermann Ringeling, Theologie und Sexualitát. Das private Verhalten als Thema der
Sozialethik, Gutersloher Verlagshaus Gerd Mohn, Gutersloh 1968, 9-47.
bjarmi | júní 2017 | 21