Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 22

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 22
sig undir hana og einn meginþátturinn í. þeim undirbúningi var að forðast allt sem tengdist holdinu, þar á meðal samlífi kynjanna. Hjónabandið var að vísu lofað af kirkjunni í Ijósi nauðsynjarinnar, enda gegndi það mikilvægu hlutverki í viðhaldi þjóðarinnar og uppeldi barna. Hin andlega stétt var hins vegar yfir hjónabandið sett; samlífi hjóna féll undir synd og var jafnvel gert að inntaki hennar. Auk þess var hjónabandið skilgreint sem sakramenti og í Ijósi þess voru bundnar við það ýmsar forskriftir sem kirkjan notfærði sér til að ná taki á samvisku fólks.6 Við þetta allt bættist að margir prestar bjuggu með konum sínum í óvígri sambúð, oft í sárri fátækt. Konur þeirra og börn voru réttindalaus í sambandi við framfærslu og erfðir. Prestarnir voru síðan þjakaðir af samviskubiti í allri þjónustu. í Ijósi skilnings Ritningarinnar á hjónabandinu hafnaði Lúther allri slíkri tvíhyggju og öllum tilraunum til að hefja meinlætið yfir daglegt líf fólks.7 Hann hvatti m.a. presta til þess að kvænast sambýliskonum sínum og létta þar með af samvisku sinni. Lúther sagði við prest sem átti við þennan vanda að glíma að hann skyldi „kvænast konu sinni og búa með henni sem eiginkonu hvort sem páfi leyfði það eða ekki'L8 Hið sama ráðlagði hann þeim ungu nunnum og munkum sem vildu ekki né gátu haldið skírlífisheit sitt. Lúther hafnaði alfarið þeim skilningi að meinlætalíf væri hafið yfir hjónabandið og benti á þá blessun sem Guð hefur gefið 1524 að sjálfur gæti hann lítt staðið í hjónabandshugleiðingum, maður sem á hverri stundu gat átt von á því að verða brenndur sem trúvillingur.10 Það er því ekki að undra að ákvörðun Lúthers um að kvænast Katarínu frá Bóra hinn 13. júní 1525 hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þó var þetta ekki eins óvænt og ætla mætti. Lúther hafði skipulagt flótta þrettán nunna úr klaustri í Nimbschen og ein úr hópi þeirra var Katarína frá Bóra. Þar sem nunnurnar áttu í engin hús að venda bjuggu þær í Ágústínusarklaustrinu í Wittenberg og með tíð og tíma fundu þær sér nýjan starfsvettvang og gengu margar í hjónaband. Katarína frá Bóra var orðin ein eftir og gekk illa að koma henni fyrir. Þessu olli stolt hennar, sögðu menn, og hversu ákveðin hún var og ósveigjanleg. Lúther reyndi eftir mætti að finna mannsefni handa henni og mælti með hinum og þessum, en hún hafnaði þeim öllum og skrifaði að lokum eigin lista yfir hugsanleg mannsefni. Á honum voru tvö nöfn, þ.e. Lúthers og vinar hans. Til eru ýmsar sögur um það að Katarína hafi ávallt ætlað sér að giftast Lúther, en hér vitum við góðu heilli minna en við vildum. Lúther skrifar í bréfi til vinar að hann líti svo á að það sé vilji Guðs að hann taki Katarínu að sér og biður Guð að veita sér hamingjusamt hjónaband.11 Hér verðum við að huga að sögulegu samhengi til þess að skilja þann jarðveg sem hjónaband þeirra Katarínu og Marteins er sprottið úr. Bændauppreisnin geisaði um allt Þýskaland. Lúther var mjög því. Á einum stað segir hann að Guð hafi skapað karl og konu til þess að þau dragist hvort að öðru og að það sé vilji hans að þau njóti hvort annars. Þessi löngun er svo sterk sem raun ber vitni af því að Guð hefur bundið hana við sköpunarorð sitt. Og Orð Guðs stendur og blessun þess þótt maðurinn sé fallinn. Að karl og kona dragist hvort að öðru og njóti samlífs samræmist góðum vilja Guðs. Og þar sem þetta er vilji hans getur maðurinn ekki sett .^ílílltlllk nokkur lög eða reglur um einlífi sem hindra hann.9 Lúther benti þó á að vissulega væru til undantekningar frá þessu, en þær væru sjaldgæfar. AÐDRAGANDI AÐ HJÓNABANDI Lúther skrifaði vini sínum, Spalatín, árið 8Luthers Werke in Auswahl [framvegis skammstafað Cl], útg. Otto Clemen, Verlag von Walter de Gruyter & Co, Berlín 1933-1936, 2, 340-345. 7Sigurjón Árni Eyjólfsson, „Ágrip af kristnum hjónabandsskilningi," Skírnir, haust 1998, 307-338. 8CI 2, 397. 9„Eine christliche Schrift an H.W. ReiRenbusch, [...] sioh in den ehelichen Stand zu begeben," WA 18, 275 (1525). 10D. Martin Luthers Werke. Briefwechsel [framvegis skammstafað WA Br.j, Hermann Böhlaus Nachfolger, Weimar 1883-2009, 3, 394 (nr. 800 til Spalatíns 30. 1. 1524). "WA Br. 3, 482 (nr. 860 til Jóhanns Ruhls 25. 4.1525). 22 | bjarmi | júní 2017

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.