Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.06.2017, Page 23

Bjarmi - 01.06.2017, Page 23
áhyggjufullur vegna hennar og reyndi að tala um fyrir bændum og furstum. Hann varð að sætta sig við að orð sín um að halda frið og semja féllu í grýtta jörð. í Ijósi þessa varð hann ákveðnari í að kvænast. „Ég ætla að storka djöflinum og áður en ég dey ætla ég að kvænast Kötu minni sama hvernig djöfullinn lætur.“12 Mitt í ófriðnum vildi Lúther undirstrika að Guð væri góður og sköpun hans öll þótt veruleikinn virtist um stund mæla gegn því. Katarína frá Bóra sýndi mikið hugrekki. Hún, nunnan, gekk að eiga munk, sem var í banni! Með þvi kallaði hún sömu bannfæringu yfir sjálfa sig, sem bættist ofan á þá bölvun sem almennt hvíldi í hugum fólks yfir hjónabandi munks og nunnu (og var bannað samkvæmt kononískum rétti). Það var almannarómur að afkvæmi munks og nunnu yrði antíkristur.13 Það eitt var nóg. Hjónaband þeirra hafði því mikilvægt játningargildi og um leið mótandi áhrif fyrir kirkjudeild mótmælanda. Einmitt þessi þáttur varð þess valdandi að þau urðu fyrir svívirðilegum árásum og rógburði öll hjónabandsárin.14 Var jafnvel samið háðsleikrit um hjónalíf þeirra, veggspjöldum af þeim dreift á götum úti og þeim send nafnlaus níð- og hótunarbréf. Þau hjónin létu þó ekki þessar árásir eða varnirnar gegn þeim ná tökum á hjónabandi sínu, heldur létu þau leiðast af þeirri þekkingu sem fólst í réttlætingunni af trú og þeirri nýju lífssýn sem hún veitti. Lúther tók á gagnrýni með kímni og lét rógburð ekki skyggja á gleði þeirra hjóna. Þegar þau gengu í hjónaband var Lúther 42 ára og Kataría var 14 árum yngri, eða 26 ára. í borðræðu segir hann síðar: „Þegar þú situr við eldhúsborðið: Sjá, hugsar þú, þú varst um tíma einn, en nú er hún þar. Og í rúminu lítur þú til hliðar og við hliðina á þér sérð þú tværfléttur, sem voru ekki þar áður.“15 HEILÖG STOFNUN f bréfum Lúthers er Katarína ávallt nærri. Hann skilar ætíð kveðju „frá Kötu, Evu minni“, eða kallar hana ýmsum gælunöfnum eins og „kveðjuna sína“, „mína elskulegu Kötu, „drottningu og stjórnanda", „keisaraynju" eða „herra minn Katarínu". Fallegasta kveðjan er líklega þegar hann nefnir hana „morgunstjörnu Wittenbergs". Þegar hann skrifar vini sínum bréf í tilefni fæðingar sonar síns hættir hann í miðjum klíðum með orðunum: „Þegar ég skrifa þessa stafi, kallar Kata, sem er máttfarin, á mig.“16 Hjónabandið varð Lúther tilefni stöðugs þakklætis og trúarvitnisburðar um að þessi stofnun væri heilög, guðleg og dásamleg. En vissulega mæta okkur einnig í bréfum og borðræðum Lúthers margar frásagnir um erfiðleika og streð sem fylgir fjölskyldulífinu. Þannig segir hann á einum stað: „Guð hefur búið hjónabandinu kross og heldur honum yfir því," en bætir síðan við: „Ég mun samt elska og lofsyngja hjónabandið, jafnvel á dauðastundinni."17 Á sama hátt og Lúther skilgreinir hjónabandið í Ijósi trúarinnar skilgreinir hann líf sitt og hlutverk sem faðir barna sinna út frá trúnni. Börn eru ekki einungis afleiðing getnaðar samkvæmt Lúther, heldur gjöf Guðs. Börn gera hjónabandið að merkustu stofnun sköpunarinnar. Þeim hjónum varð sex barna auðið á rúmlega átta ára tímabili; þau eignuðust þrjár dætur og þrjá syni. í júní 1526 fæddist Jóhannes, síðan Elísabet, þá Magdalena (kölluð „Lenchen"), Marteinn, Páll og loks Margareta í desember 1534. Tvö barnanna létust ung. Elísabet dó rétt átta mánaða en Magdalena, sem var augasteinn þeirra hjóna, lést 13 ára. Öll voru börnin gjöf Guðs í augum foreldra sinna og þannig umgengust þau börnin og gerðu ekki upp á milli dætra 12WA Br. 3, 541 (nr. 900 til Nicolas frá Amsdorf). ,3Kurt Aland, Die Reformatoren, 3. útg., Gutersloh 1983, 38. 14T.d. WA Br. 3, 650 (nr. 956. 28. 12. 1525, bréf Georgs hertoga til Lúthers). 15WA TR 2, 165 (nr. 1656). ,6WA Br. 4, 87 (nr. 1017, frá 8. 6. 1525). ,7WA TR 1,506 (nr. 1007) og WA TR 1,493 (nr. 974). LÚTHER HAFÐI SKIPULAGT FL.ÓTTA ÞRETTÁN NUNNA ÚR KLAUSTRI ÍNIMB- SCHEN OG EIN ÚR HÓPI ÞEIRRA VAR KATARÍNA FRÁ BÓRA. bjarmi | júní 2017 | 23

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.