Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 24
og sona. í bréfum sínum getur Lúther yfirleitt þungunar Katarínu snemma á megðgöngutímanum, enda eru gleðitíðindin samofin beiðni um fyrirbæn til handa móðurinni og þeim báðum um að allt gangi að óskum. Þegar Lúther greinir svo frá fæðingu barna sinna er fregnin ætíð bundin þökk fyrir þá miklu náð sem Guð hefur sýnt þeim hjónum. Og hann segir: „Þökk sé Guði og dýrð,“ eða: „Lof sé Kristi og dýrð fyrir að Guð hefur stækkað fjölskyldu okkar.“ Hér er nauðsynlegt að hafa í huga að á þessum tíma var meðganga og fæðing lífshættuleg konum og það er því ekki að undra að Lúther hafi verið þakklæti efst í huga fyrir að halda Kötu sinni og börnunum. Þegar börn Lúthers og Katarínu fæddust hvert af öðru varð hjónalíf þeirra eins og opinberun. í bréfum sínum og borðræðum vekur Lúther oft máls á því hve ólík veröldin sé í augum barna og fullorðinna. Hegðun barnanna varð honum endalaus uppspretta dæmisagna um náð Guðs og hvernig menn eiga að taka við henni. Börnin lifa eins og þau séu nú þegar í Þaradís og hafa óendanlegan hæfileika til að læra af umhverfi sínu. Þau ganga í sjálfsögðu trausti inn í lífið og taka fullan þátt í lífi hinna fullorðnu. Þeim er það einfaldlega sjálfgefið. Þannig gefur „Lenchen" rétt fjögurra ára mikilvægar ráðleggingar um efnahagsmál á sama tíma og Hans hægir sér í áhyggjuleysi sínu úti í horni í vinnuherbergi Lúthers. Lúther var mjög vökull gegnvart börnum sínum og það má teljast aðdáunarvert hve næmur hann var á veruleika þeirra. í athugunum sínum fylgdi hann ekki hugmyndum fornmenntastefnunnar um uppeldismál. Fylgismenn hennar litu á barndóm og æsku sem vanþróað stig mennskunnar. Þessi mennska næði ekki fullum þroska nema hjá fullvaxinni manneskju. Þessu hafnaði Lúther og sagði að barnið hefði fulla mennsku og eigin virðingu.13 Lúther horfði á börnin með augum trúarinnar og skynjaði að þau eru manninum gefin af Kristi til að vera leiðbeinendurfullorðinna um hvað felst í því að vera Guðs elskað barn (Matt 18.3). Hinir fullorðnu eiga að læra af hegðun þeirra: Þau deila ekki, heldur treysta orði Guðs í hreinni trú sem gamlir þverhausar eiga svo erfitt með að tileinka sér! Ást og umhyggju foreldra sinna taka börnin sem sjálfsögðum hlut; allt fellur þetta þeim í skaut fyrir það eitt að fæðast í heiminn. Þau borða, dekka, sofa og gera í bleiu í fangi móður sinnar, allt í fullkomnu trausti. Þannig eru þau fullorðnum eilíf fyrirmynd um hvernig maðurinn á að taka við náð og kærleika Guðs.19 Lúther snýr þessu dæmi einnig við og horfir á manninn í hlutverki barnanna. Hann lætur Guð spyrja manninn eins og foreldri: „Hvað hefur þú gert sem veldur því að ég elska þig svo mikið að ég geri þig að erfingja mínum? Þú sem skítur, mígur og fyllir húsið með gráti og öskrum!“20 Og við þessari spurningu er bara til eitt svar, sem er kærleikurinn sem Guð ber til mannsins, eins og foreldri til barns síns. Lúther var störfum hlaðinn alla sína ævi og margir kröfðust starfskrafta hans. Hann var því oft að heiman, en í fjarveru sinni var hann iðinn við að skrifa heim til konu og barna. Mörg af þeim bréfum sem varðveist hafa eru einmitt skrifuð við slíkar aðstæður. Því miður hafa flest bréf Katarínu glatast og verðum við því að skoða líf þeirra í Ijósi bréfa og borðræðna Marteins Lúthers. Af þeim heimildum sem við höfum virðist Lúther hafa verið eins og flestir feður, eftirlátssamari við dætur sínar en syni. Þegar þau hjón missa Magdalenu, eða „Lenchen", var það mikið áfall fyrir alla fjölskylduna. Lúther greinir frá því að hann hefði ekki getað gert sér í hugarlund hve missir barns gengur nærri hjarta mansins og rænir hann öllum lífsvilja nema vegna þess að þau hjónin misstu tvö af sínum eigin börnum. Lengi eftir dauða „Lenchen" fjallar Lúther um hryggð sína og hve erfitt þau hjón eiga með að sigrast á sorginni. Þau gráti þótt þau viti að dóttir þeirra búi í gleði í ríki lífsins hjá Guði. Hér lokast hringurinn, segir hann: Það er ekki verk foreldranna að kalla börnin til lífsins, heldur þiggja þau barnið úr hendi Guðs. Þannig hverfur barnið aftur til þess sem gaf það. Og í þessari trú er tekist á við sorgina og allt endanlega falið í hendurGuði. Mörg bréf sem Lúther skrifaði gagngert til þess að hugga fólk sem misst hafði ástvini sína hafa varðveist. Hvernig hann ber sig við að hughreysta aðra í Ijósi eigin hryggðar í bréfunum, og hversu einarðlega hann bendir á Krist í sorginni, lætur engan ósnortinn. FJÖLSKYLDULÍF INNAN KLAUSTURVEGGJA En kjarni fjölskyldulífsins varsamband þeirra hjóna, Marteins og Katarínu. Hjúskaparár þeirra urðu samtals tuttugu og eitt. Lúther skrifar á einum stað: „Margir eiga konur, en fáir finna konu.“21 Hér varar hann við að blanda saman ást og fyrstu hrifningu. Ástin er meira en slík hughrif, hún er eitthvað sem vex og nærist af áralangri tryggð og vináttu. Hjónaband þeirra Katarínu var mótað af samspili trúar og reynslu, en það gekk ekki átakalaust. Hér verður aftur að hafa í huga þær aðstæður sem þau bjuggu við. Þegar þau gengu í hjónaband áttu þau ekkert nema hvort annað. Lúther var févana munkur og prófessorslaun hans nægðu rétt tii að framfleyta honum. Þau hjónin fengu til umráða klaustrið sem nú hafði verið yfirgefið af munkunum - öllum nema Lúther! Þetta er gríðarlega “Karin Bornkamm, „Gott gab mir Frau und Kinder," Wartburg-Jahrbuch, Sonderband Eisenaoh 1996, 75. 19WA 29, 190 (Predigum 27. 12. 1529). 20WA TR 1,505 (nr. 1004). 21CI 2, 351 (Vom ehelichen Leben 1522). 24 | bjarmi | júní 2017

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.