Bjarmi - 01.06.2017, Page 25
ASTIN ER
MEIRA
EN SLÍK
HUGHRIF,
HÚN ER
EITTHVAÐ
SEM
VEXOG
NÆRIST AF
ÁRALANGRI
TRYGGÐ OG
VINÁTTU.
stór bygging og viðhaldskostnaöur mikill.
Að afhenda þeim þetta hús til umráða
er líkt og að láta févana hjónum eftir litla
skólabyggingu til heimilisnota nú á dögum.
Siðbótin hafði margar afdrifaríkar
afleiðingar. Mótmælendur voru oft reknir í
burtu eða þurftu að flýja heimili sín. Stöðugur
„flóttamannastraumur" var til Wittenberg.
Leituðu margir á náðir Lúthers og bjuggu
lengri eða skemmri tíma hjá þeim hjónum.
Katarína gerði sér fljótlega grein fyrir því að
fjárhagsleg staða heimilisins yrði að batna
ef ekkert átti undan að láta. Hún brá á
það ráð að leigja stúdentum herbergi og
sjá þeim fyrir fæði. Þannig rak hún svo að
segja stúdentagarð í klaustrinu. Auk þess
tóku þau hjónin að sér mörg fósturbörn um
skemmri eða lengri tíma og þau opnuðu
hús sitt fyrir sjúklingum og hlúðu að þeim.
Slíkt lá í eðli þeirra þar sem klaustrin voru
frá fornu fari einnig sjúkrahús, sértaklega
nunnuklaustrin. Þegar mest var um að
vera bjuggu um 40 til 50 manns hjá Lúther
og Katarínu, en að meðaltali voru um
30 manns í heimili. Þess ber að geta að
Katarína naut hér dyggs stuðnings nunnu
sem flúið hafði úr sama klaustri og var hún
hjá þeim hjónum alla tíð. Þá má reikna með
að upp undir tíu vinnukarlar og -konur hafi
starfað undir stjórn hjónanna. Katarína
var því „húsmóðir" og húsrekstrarstjóri á
heimilinu. Hún tók síðar á leigu bóndabýli
og hóf svínarækt og margt fleira. Það var
því ekki bara góðlátlegt grín þegar Lúther
kallaði hana „Drottin sinn og Herra".
Heimilið sem hún rak jafngildir meðalstóru
fyrirtæki nú á dögum, en fjármálin voru
jafnan í höndum hennar. Ekki svo að
skilja að Lúther hafi setið úti í horni með
bjarmi | júní 2017 | 25